Morgunblaðið - 01.06.2012, Side 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Líklega var það kona í hrútsmerkinu
sem sagði: Súkkulaði, karlmenn, kaffi; sumt
er betra sterkt. Trygglyndi þitt er augljóst en
hugsanlega vanhugsað.
20. apríl - 20. maí
Naut Allt virðist vaxa þér í augum og fara í
taugarnar á þér og að sjálfsögðu nærðu ekki
tökum á neinu. Sýndu styrk, tími efasemd-
anna líður senn hjá.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú nýtur hæfileika þinna til að eiga
samskipti við fólk skriflega eða munnlega í
dag. Hikaðu ekki við að tala við yfirmann
þinn ef þú ert ekki ánægð/ur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það lífgar tvímælalaust upp á til-
veruna að eiga stund með góðum vinum. Ein-
hver kergja er í ungviðinu en hún líður hjá.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er engin ástæða til að óttast skuld-
bindingar. Byrjaðu á þvotta- og ruslahrúg-
unum og einbeittu þér að því að gera dvalar-
stað þinn fallegri og hagnýtari.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú munt að öllum líkindum fá óvænt-
an glaðning af einhverjum toga í dag. Líttu
svo á að allir séu að reyna að gera sitt besta
með þeim verkfærum sem þeir hafa yfir að
ráða.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur ríka hæfileika til þess að fá
aðra á þitt band. Kannski kynnist þú fljótlega
nýrri manneskju sem á eftir að fylgja þér út
lífið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nýttu þær hugmyndir sem þú
hefur aðgang að til að bæta umhverfi þitt,
bæði í vinnunni og á heimilinu. Taktu ákvörð-
un um að draga úr ósiðum og reyndu að hlúa
betur að jákvæðu þáttunum í skapgerð þinni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Bolmagn annarra gerir þér kleift
að ná lengra á framabrautinni um þessar
mundir. Sýndu aðgát í fjármálunum því of
mikil bjartsýni kann að verða dýrkeypt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert boðberi hinna góðu tíðinda
og þarft ekki að fyrirverða þig þótt þú baðir
þig í þakklæti. Gefðu annaðhvort mikið eða
heilan helling, ekkert hálfkák þar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ef þér líkar ekki hitinn skaltu
halda þig frá eldhúsinu, ef svo má segja. Ást-
vinir dragast að þér þegar þeir álíta að þú
gætir líka þarfnast þeirra.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ástvinur vill vera frír og frjáls, láttu
það eftir honum, annars færðu hann bara
upp á móti þér. Þú hefur náð tökum á ein-
hverju og ætlar þér alla leið með það.
Það féll í góðan jarðveg þegarvísnagáta birtist í Vísnahorninu
á dögunum. Þess vegna verður tek-
inn upp sá siður að birta vísnagátu á
föstudögum. Faðir minn kenndi mér
þessa gátu sem hann segist hafa
kunnað frá barnæsku:
Allsber gaur sem átti pell
á ýmsar hliðar skoppa vann
nefinu klórar niður í svell
nokkuð gruggótt drekkur hann.
Lausnarorðið má finna í lok
þáttarins. „Spark“ nefnist ný limru-
bók eftir vísindamanninn og líffræð-
inginn Sturlu Friðriksson. Hann hef-
ur gaman af að kasta fram vísum og
limrum á ferðalögum sínum erlendis.
Og þykir raunar best að yrkja í rút-
um!
Sturla yrkir ekki aðeins á ensku,
heldur spreytir sig einnig á færeysku
í Föroyarslag, sem hefst á erindinu:
Mangur hiðan fuglur fer,
farið er að heysta.
Í ti fagra flokki er
flogin Ása – Trausta.
Og svo kemur viðlagið:
– Lat hann sova á tínum armi, ríka
jómfrúva. –
Í löngum brag á dönsku um Ann og
Janus Paludan bregður fyrir ís-
lensku:
Í nótt er öll veröldin vor
með vinum er stígum við spor.
Hver einasta mær
er manni svo kær
og Ann sínum ambassador.
Sturla yrkir ekki aðeins í rútum,
heldur kemur andinn yfir hann í há-
loftunum. Hann orti limru í Con-
corde í flugi frá Hollandi árið 1985:
I tried to talk while on board
the supersonic Concorde.
But what came to my mind
was somewhere behind.
And I was ahead of the word.
Minnir óneitanlega á ensku limr-
una góðkunnu um ungu dömuna
Bright, sem birtist í Vísnahorni á
dögunum:
There was a young lady named Bright,
whose speed was much faster than light.
She set off one day
in a relative way
and returned on the previous night.
Það er siður íslenskra limruhöf-
unda að snara limrum á íslensku eða
enduryrkja þær. En það verður að
teljast frumlegt hjá Sturlu að endur-
yrkja enska limru á ensku!
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af allsberum gaur, limrum
og andagift í Concorde
Lausnarorðið er penni.
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
ile
g
i
F
er
d
in
a
n
d
VIÐ
EIGNUÐUMST
TVÍBURA
ÉG SÁ
ÞAÐ
MÉR
ÞYKIR ÞETTA
LEITT SNOOPY
MINN
ÉG VEIT EKKI HVORT ÞAÐ LÆTUR
ÞÉR LÍÐA BETUR EN MÉR SKILST
AÐ SAMBANDSSLIT SÉU BARA
PARTUR AF ÞVÍ AÐ VERA TIL
HANN HEFUR RÉTT FYRIR SÉR,
ÉG ÆTLA EKKI AÐ LÁTA ÞETTA
NÁ TIL MÍN
ÉG
KYNNTIST
HENNI Í
KEILU-
HÖLLINNI
GERIRÐU
ÞÉR GREIN FYRIR
ÞVÍ...
...AÐ FLEST VANDAMÁL Í
HJÓNABANDINU OKKAR MÁ REKJA
TIL ÞESS AÐ VIÐ HLUSTUM EKKI
Á HVORT ANNAÐ
HEYRÐIRÐU
HVAÐ ÉG
SAGÐI!?
NEI, VARSTU
AÐ SEGJA
EITTHVAÐ?
Alfreð Gíslason, aðalþjálfari hjáþýska handboltafélaginu Kiel,
stendur fremst og hæst allra Íslend-
inga um þessar mundir, að mati Vík-
verja. Um liðna helgi stýrði hann liði
sínu til sigurs í Meistaradeild Evr-
ópu eftir að það hafði sigrað í þýsku
meistarakeppninni í byrjun tímabils,
orðið bikarmeistari og tryggt sér
þýska meistaratitilinn. Fernan í
höfn á sama tímabilinu og möguleiki
á að liðið tapi ekki stigi í deildinni en
það á eftir að leika einn leik.
x x x
Þetta er ótrúlegur árangur. Sumirsegja að við þessu hafi mátt bú-
ast þar sem flestir af bestu hand-
boltamönnum heims leiki með Kiel.
Það er vissulega sjónarmið en til-
fellið er að það er ekki nóg að hafa
stjörnur heldur er það mikil kúnst
að láta þær spila saman sem eina
heild. Alfreð kann þá kúnst manna
best og þess vegna hefur hann verið
eins sigursæll og raun ber vitni í
gegnum tíðina.
x x x
Víkverji hefur fylgst með Alfreðsem leikmanni og þjálfara í um
þrjá áratugi. Alfreð hefur aldrei leg-
ið á liði sínu og aldrei sætt sig við
annað en sigur. Með krafti sínum
hefur hann drifið samherjana og
lærisveinana hverju sinni áfram og
fyrir líðandi tímabil var markmiðið
einfalt: Að vinna þrennuna, þ.e.
verða þýskur bikarmeistari, Þýska-
landsmeistari og Evrópumeistari.
Alfreð fagnaði innilega þegar áfang-
anum var náð og Víkverji samgladd-
ist honum svo sannarlega.
x x x
Annar íþróttamaður, Eyjamaður-inn Tryggvi Guðmundsson, náði
merkum áfanga sl. þriðjudagskvöld,
þegar hann sló 25 ára markamet í
efstu deild karla í fótbolta. Hann
hefur nú gert 127 mörk í efstu deild
og er Víkverji sannfærður um að
sennilega geti aðeins Tryggvi bætt
metið. Ástæðan er sú að bestu menn
fara í atvinnumennsku og spila því
ekki eins lengi heima, en þess ber að
geta að Tryggvi lék reyndar lengi
erlendis. Met hans er enn glæsilegra
fyrir vikið. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: En hjálparinn, andinn
heilagi, sem faðirinn mun senda í
mínu nafni, mun kenna yður allt og
minna yður á allt það, sem ég hef sagt
yður. (Jóh. 14, 25.)
Jarðvegsþjöppur - Vatnsdælur - Malbikunarvélar
Vinnustaðamerkingar - Vélsópar - Hellulagningatæki
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Tæki til verklegra
framkvæmda
Stofnað 1957