Morgunblaðið - 01.06.2012, Qupperneq 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012
Myndlistarmessur – stökkpallur
inn á alþjóðlegan myndlist-
armarkað nefnist málþing sem
haldið verður í Norræna húsinu í
dag kl. 15 til 18 á vegum sam-
starfsverkefnisins MESSA Vision
og er það hluti af myndlistarverk-
efni Listahátíðar í Reykjavík, (I)
ndependent people, eða Sjálfstætt
fólk. Á málþinginu verður kynnt
hugmynd að því að halda fyrstu
söluráðstefnu myndlistar hér á
landi. Málþingið er haldið í kjölfar
MESSA Teaser 2011 sem var
prufukeyrsla á söluráðstefnu,
haldin á Kex Hosteli í fyrra.
„MESSA Vision er listamannarek-
ið samstarfsverkefni sem leggur
áherslu á að kynna þær hug-
myndir, nálgun og áherslur og
þann verðleika sem myndlistar-
messur skapa í myndlistarheim-
inum, bæði fyrir myndlistarmenn
og almenning“ segir í tilkynningu.
Nokkrir fyrirlestrar verða
haldnir á málþinginu en heið-
ursgestur þess er Andreas Ribb-
ung, stofnandi og framkvæmda-
stjóri alþjóðlegu myndlistarráð-
stefnunnar Supermarket í Stokk-
hólmi. Meðal þeirra sem halda
fyrirlestra eru Dórothée Kirsch,
framkvæmdastjóri Kynningarmið-
stöðvar íslenskrar myndlistar og
Curver Thoroddsen listamaður.
Stjórnandi málþingsins er Hanna
Styrmisdóttir, sjálfstæður
sýningarstjóri. Framkvæmdafélag
listamanna, FRAFL, er frum-
kvöðull verkefnisins.
Söluráðstefna mynd-
listar haldin á Íslandi?
Mælir Dorothée Kirch, framkvæmdastjóri KÍM, er meðal mælenda.
Morgunblaðið/Ernir
Kátínuvísindin nefnist nýtt tónverk
eftir Pál Ragnar Pálsson samið við
ljóð Eiríks Arnar Norðdahls sem
flutt verður í Kaldalóni í Hörpu í dag
kl. 17. Flytjendur verksins eru
sópransöngkonan Tui Hirv og Duo
Harpverk sem skipað er Katie
Buckley hörpuleikara og Frank
Aarnink ásláttarleikara.
„Við Eiríkur höfum þekkst nokk-
uð lengi, en þegar ég spilaði með
hljómsveitinni Maus á sínum tíma þá
vorum við mikið að spila á Ísafirði
þaðan sem hann er. Þegar Eiríkur
kom til Tallin til að taka þar þátt í
bókmenntahátíð þá nefndi ég það við
hann hvort ég ætti ekki að semja
tónlist við einhver af ljóðunum hans
og í framhaldinu sendi hann mér
bækur sínar. Þar rakst ég strax á
þessi tvö ljóð sem eru eins og hálf-
gerð systkin, þ.e. Hýperbólusetning
og Parabólusetning, og þau höfðuðu
strax til mín. Ímyndunaraflið er svo
dásamlega óbeislað hjá Eiríki og
þessi ljóð segja manni svo margt án
þess að þýða nokkurn skapaðan
hlut,“ segir Páll Ragnar sem leggur
stund á doktorsnám í tónsmíðum við
Tónlistarakademíuna í Eistlandi.
Að sögn Páls Ragnars hafa verkin
fengið að gerjast
yfir lengri tíma.
„Hýperbólusetn-
ingu samdi ég
sumarið 2010 og
Parabólusetningu
ári síðar. Þetta ár
sem leið á milli
verkanna tveggja
var gríðarlega af-
kastamikið og í
raun sýna verkin
vel hvernig ég þróaðist á þessum
tíma. Í Hýperbólusetningu reyndi
ég að laga tónlistina að taktinum í
textanum og þannig varð verkið eins
og röð af litlum einingum þar sem
fókusinn er á augnablikinu frekar en
heildarmyndinni. Í Parabólusetn-
ingu hafði ég hins vegar sama gegn-
umgangandi púlsinn undir öllu verk-
inu og þó það hljómi mótsagnakennt
þá gaf það mér meira frelsi til að
vinna með óreiðuna sem ljóðið fang-
ar,“ segir Páll Ragnar og bætir við:
„Markmiðið er að orkan og sköp-
unargleðin í textanum komi fram í
tónlistinni. Þannig að hið frjálsa
flæði ljóðanna finnist í tónlistinni
þar sem hún flýtur áfram í skipu-
lagðri óreglu.“
Aðspurður segist Páll Ragnar
hafa samið verkin sérstaklega með
flytjendurna í huga. „Tui, sambýlis-
kona mín, mun syngja verkin á ís-
lensku. Það er vissulega ákveðin
áskorun, en hún hefur gert það
nokkrum sinnum áður auk þess sem
hún er mikil tungumálamanneskja,“
segir Páll Ragnar og tekur fram að
hann hafi samið nokkur verk á ís-
lensku fyrir sambýliskonu sína áður.
„Við vinnum ansi mikið saman, höld-
um t.d. tónleika undir merkjum
Konveier og vinnum oft hugmynda-
vinnu saman þegar ég er að semja
fyrir aðra,“ segir Páll Ragnar og
tekur fram að það séu í raun mikil
forréttindi að semja fyrir Tui. „Ég
þekki rödd hennar mjög vel og veit
hvernig hún hljómar á ýmsum svið-
um. Ég fæ hana oft til að syngja fyr-
ir mig þegar ég er að semja og spyr
hana álits sem er mjög gefandi.“
Þess má að lokum geta að auk
verks Páls Ragnar verða á tónleik-
unum frumflutt verk eftir Völu
Gestsdóttur, Áskel Másson, Pétur
Grétarsson og rússneska tónskáldið
Andrew Gen. Popoff, en Úlfur Úlf-
aldi bætist þá í hóp ofangreindra
flytjenda. silja@mbl.is
„Tónlistin flýtur áfram
í skipulagðri óreglu“
Duo Harpverk og Tui Hirv frumflytja Kátínuvísindin
Páll Ragnar
Pálsson
Hönnunartvíeykið Ostwald Helga-
son hlaut í gær hæsta styrk úr vor-
úthlutun Hönnunarsjóðs Auroru.
Tvíeykið sem skipað er Susanne
Ostwald og Ingvari Helgasyni fékk
tveggja milljóna króna styrk til
þátttöku í tískuvikunni í New York í
september nk. Alls var úthlutað tíu
milljónum króna, fyrst og fremst til
fatahönnuða. Meðal annarra sem
hlutu styrk voru Eygló Margrét
Lárusdóttir fatahönnuður fyrir
áframhaldandi vöruþróun og mark-
aðssókn erlendis og María Ólafs-
dóttir, Guðrún Ragna Sigurjóns-
dóttir og Gréta Hlöðversdóttir fyrir
barnafatalínuna As we grow.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Úthlutun úr Hönn-
unarsjóði Auroru
Styrkur Ingvar Helgason úr hönnunartvíeykinu Ostwald Helgason, þakkar
fyrir sig við úthlutun hæsta styrkjarins úr Hönnunarsjóði Auroru í gær.
Afsláttur
Laugardaga kl. 11-16
Borðstofuhúsgögn
Hvíldarstólar
Sófar
Hornsófar
Sófasett
SvefnsófarGarðhúsgögn
við lokum versluninni
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fös 1/6 kl. 19:30 Lau 9/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30
Lau 2/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30
Fös 8/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30
Fimm stjörnu stórsýning! Síðasta sýning 22. júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Sun 3/6 kl. 19:30 Fim 7/6 kl. 19:30
Mið 6/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30 Allra
síð.sýn.
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Síðustu sýningar.
Afmælisveislan (Kassinn)
Fös 1/6 kl. 19:30 Lau 1/9 kl. 19:30
Lau 2/6 kl. 19:30 Sun 2/9 kl. 19:30
Eitt vinsælasta verk Pinters. Sýningar í september komnar í sölu.
Kristján Eldjárn - minningartónleikar (Stóra sviðið)
Fim 7/6 kl. 20:00
Allur ágóði rennur í minningarsjóð Kristjáns Eldjárn
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Fös 8/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30
Lau 9/6 kl. 19:30 Fim 14/6 kl. 19:30
Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012
Glymskrattinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 1/6 kl. 22:30 Lau 2/6 kl. 22:30 Sun 3/6 kl. 16:00
Danssýning eftir Melkorku Sigríði og Sigríði Soffíu Níelsdóttur. Listahátíð
568 8000 | borgarleikhus.is
Tengdó – HHHHH–JVJ. DV
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 aukas Þri 5/6 kl. 20:00 aukas Lau 9/6 kl. 20:00 20.k
Lau 2/6 kl. 20:00 17.k Mið 6/6 kl. 20:00 19.k Sun 10/6 kl. 20:00 lokas
Sun 3/6 kl. 20:00 18.k Fös 8/6 kl. 20:00 aukas
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Rómeó og Júlía (Stóra svið )
Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 Sun 10/6 kl. 20:00 aukas
Ógleymanleg uppfærsla Vesturports. Síðustu sýningar!
Tengdó (Litla sviðið)
Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar!
Bastards - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00
Í samstarfi við Vesturport ofl. Aðeins þessar sýningar á Listahátíð
Beðið eftir Godot (Litla sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00 Lau 9/6 kl. 20:00 lokas
Tímamótaverk í flutningi pörupilta