Morgunblaðið - 18.06.2012, Síða 1
Glatt á hjalla á þjóðhátíðardeginum
Gleðin var við völd í gær þegar þjóðhátíðardagurinn
var haldinn með skrúðgöngum, ávörpum, dansi og
skemmtunum af ýmsu tagi. Hátíðahöldin í Reykjavík
hófust að vanda með samhljómi kirkjuklukkna, guðs-
þjónustu í dómkirkjunni, hátíðardagskrá á Aust-
urvelli og skrúðgöngu í kirkjugarðinn við Suðurgötu
þar sem blómsveigur var lagður að leiði Jóns
Sigurðssonar.
Eftir skrúðgöngu frá Hlemmi niður Laugaveg
færðist fjör í leikinn með barna- og fjölskyldu-
skemmtunum í miðborginni. Á myndinni dansa
börn í þjóðbúningum á Árbæjarsafni.
Morgunblaðið/Ómar
M Á N U D A G U R 1 8. J Ú N Í 2 0 1 2
Stofnað 1913 140. tölublað 100. árgangur
EVRÓPUMÓTIÐ
HEFUR GENGIÐ
FRÁBÆRLEGA
OLÍUTUNNUR
URÐU AÐ
BARNALEST
HEF ÞÖRF FYRIR AÐ
SKAPA ÞVÍ LISTIN
AUÐGAR LÍFIÐ
TOMMI TOGVAGN 10 OLIVIER MANOURY 26GEIR VIÐ EFTIRLIT Í VARSJÁ 2
Baldur Arnarson
Ingvar P. Guðbjörnsson
„Ég tel að það sé orðið löngu tíma-
bært að við ljúkum þingfundum. Það
er hægt að ljúka þingi á einum degi,“
segir Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir, forseti Alþingis, um stöðuna.
Hún vill ekki ræða dagsetningar í
þessum efnum og bendir á að réttur
til þingfrestunar sé hjá Jóhönnu Sig-
urðardóttur forsætisráðherra.
Virði lög sem um þingið gilda
Spurð hvernig henni hugnist þing
í júlí kveðst hún ekki hrifin af því.
„Lögbundið sumarleyfi þingsins
er frá 1. júlí til 10. ágúst. Að sjálf-
sögðu vil ég virða lög sem um þingið
gilda. Það er ekki minn vilji að það sé
verið að funda hér í sumar. Svo má
minna á að innsetning forseta í emb-
ætti fer fram í Alþingishúsinu 1.
tala þar bara fyrir mína hönd,“ sagði
Steingrímur sem áskilur sér rétt fyr-
ir hönd VG til að endurskoða ESB-
umsóknina, í ljósi umbrotanna í Evr-
ópu.
Ólöf Nordal, varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins, segir ríkisstjórnina
hafa komið alltof seint fram með
vanbúin mál, slík vinnubrögð séu að
hennar mati ekki boðleg.
„Það gengur ekki að ef ríkis-
stjórnin kemur ekki sínum málum
fram eigi þingið að halda áfram út í
hið óendanlega.“
Magnús Orri Schram, þingflokks-
formaður Samfylkingar, sagði „ekk-
ert að frétta af þinglokum“ en vildi
að öðru leyti ekki ræða stöðuna.
Formaður Framsóknarflokksins
telur ótækt að þing starfi nánast
fram að forsetakosningum.
MStaðan á Alþingi »4 og 9
ágúst og það þarf að gera tímafrekar
ráðstafanir og breytingar í húsinu
fyrir þá athöfn. Á meðan þær standa
yfir er ekki hægt að halda þingfundi.
Því vonast ég til að mönnum takist
að ná samkomulagi um að ljúka
þinginu á morgun [í dag].“
„Verður ekki hleypt lengra“
Steingrímur J. Sigfússon segir
ekki koma til greina að láta undan
kröfum minnihlutans í lykilmálum,
þ.m.t. sjávarútvegsmálinu, til að
greiða fyrir samþykkt um þinglok.
„Það væri þvílíkur ábyrgðarhluti
að gera það og kemur auðvitað ekki
til greina. Nú held ég að þau verði að
fara að átta sig á því að þau hafa sótt
þetta það langt að þeim verður ekki
hleypt lengra … Annaðhvort fæst
botn í þetta á einum til þremur
næstu dögum eða sumarþing blasir
við. Þannig met ég stöðuna, en ég
Vill ekki þingfundi í júlí
Þingforseti vísar til lögbundins sumarleyfis starfsmanna
Formaður VG segir ekki verða hvikað frá áætlun á þingi
Björgunar-
sveitir frá
Borgarfirði,
Akranesi og
höfuðborg-
arsvæðinu
ásamt þyrlu
frá Landhelgisgæslunni voru kall-
aðar út rétt fyrir kl. 22 í gærkvöldi
til leitar að manni sem talið er að
hafi fallið fyrir borð á gúmmíbáti í
Borgarfirði. Maðurinn fannst í Mið-
fjarðarskeri og var bjargað um borð
í þyrluna um klukkan 23. Hann var
fluttur á sjúkrahús í Reykjavík, en
ekki var vitað um líðan hans er blað-
ið fór í prentun.
Dóttir mannsins var með honum í
för og komst hún af eigin rammleik í
land í einni af Borgareyjum skammt
frá Borgarnesi, þar sem báturinn
fannst. Þau voru bæði í flotbúningi.
Feðginum bjargað
úr Borgarfirði
Tveir forsetaframbjóðendur
telja að tafir á störfum þings-
ins geti haft neikvæð áhrif á
kosningabaráttuna.
Ari Trausti Guðmundsson
segir umræður um störf þings-
ins á vissan hátt koma niður á
baráttunni og Andrea Jóhanna
Ólafsdóttir telur þingið geta
truflað baráttuna en kosið
verður 30. júní.
Þó óttast Herdís Þorgeirs-
dóttir að áherslan á störf
þingsins geti takmarkað að-
gang frambjóðenda að fjöl-
miðlum. Þóra Arnórsdóttir tel-
ur rétt að gera þinghlé. »8
Hlé verði
gert á þingi
SÝN FRAMBJÓÐENDA
Íhaldsflokkurinn Nýtt lýðræði virð-
ist hafa farið með nauman sigur af
hólmi í grísku þingkosningunum í
gær. Antonis Samaras, formaður
flokksins, stefnir að því að mynda
nýja ríkisstjórn eins fljótt og auðið
verður. Hann sagði að Grikkir
myndu standa við skuldbindingar
sínar gagnvart alþjóðastofnunum.
Þetta voru aðrar þingkosningarn-
ar í landinu á fjörutíu dögum en ekki
tókst að mynda starfhæfa meiri-
hlutastjórn eftir fyrri kosningarnar
sem fóru fram í maí.
Vinstriflokkurinn Syriza, sem er á
móti neyðarlánum Evrópusam-
bandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins, vann mikið á og hlaut næstflest
atkvæði. Flokknum hafði jafnvel
verið spáð sigri í kosningunum og
óttast hafði verið að það gæti þýtt að
Grikkir þyrftu frá að hverfa í evru-
samstarfinu. »15
AFP
Úrslit Stuðningsmaður Nýs lýðræð-
is fagnar sigri í gærkvöldi.
ESB and-
ar léttar
Andstæðingar neyð-
arlána unnu mikið á
Spurn eftir æðardúni er mikil um
þessar mundir og hefur verð farið
hækkandi frá árinu 2010. Ef fram
heldur sem horfir fer verðmæti út-
flutts æðardúns yfir hálfan milljarð
á árinu. Mest af dúninum er flutt út
til Japans og er hann m.a. notaður í
hágæðasængur sem kosta 2-5 millj-
ónir króna í verslunum í Japan.
Æðarvarp telst til hlunninda á um
400 býlum og af hreinsuðum dún
fást um og yfir þrjú tonn. 160-300
þúsund krónur fást fyrir kílóið. Vor-
ið var gott fyrir æðarbændur víðast
hvar, en hret í maí gerði þó strik í
reikninginn hjá einhverjum bænd-
um á norðanverðu landinu. »6
Gott vor og dúnn
fyrir hálfan milljarð
Hugað að hreiðri Óðinn Ívarsson og Sig-
ríður Hanna Sigurðardóttir í Norðurkoti.
Ljósmynd/Guðbjörg Helga
Eftir miklu
er að slægj-
ast með því
að halda stór-
ar alþjóð-
legar ráð-
stefnur hér á
landi.
Þannig má áætla að gestir á ráð-
stefnu Norræna vegtækni-
sambandsins í Hörpu í síðustu viku
hafi skilið eftir um 160 milljónir
króna hér á landi í veitingahúsum,
verslunum og öðrum þjónustufyr-
irtækjum. Ef flugfélög og hótel eru
talin með gæti ráðstefnan hafa skil-
að þjóðarbúinu í heild um 300 millj-
ónum króna. Þegar er farið að bóka
og skipuleggja ráðstefnur á árinu
2017. »12
300 milljónir í kass-
ann frá tæknifólki