Morgunblaðið - 18.06.2012, Side 2

Morgunblaðið - 18.06.2012, Side 2
VIÐTAL Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Maður fann strax að stemningin var ekki sú sama og hún var áður. Bílarnir eru ekki skreyttir eins og þeir voru. Það hefur slegið á stemn- inguna hjá fólkinu. Þetta voru mikil vonbrigði,“ segir Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Ís- lands, um stemninguna hjá pólsku þjóðinni eftir að lið þeirra var á laugardag slegið út úr riðlakeppni Evrópumóts landsliða í knatt- spyrnu. Pólverjar og Úkraínumenn eru gestgjafar mótsins að þessu sinni. Geir er staddur í Varsjá sem eft- irlitsmaður Evrópska knattspyrnu- sambandsins UEFA. „Þó að maður verði að gæta hlutleysis hefði verið gaman að sjá gestgjafana komast lengra áfram,“ segir hann. Krefjandi leikir í Varsjá UEFA hefur eftirlitsmann í hverri borg þar sem leikir fara fram á mótinu og hefur Geir fylgst með leikjum í Varsjá þar sem höf- uðstöðvar mótsins eru. Alls fara fimm leikir fram í borginni en þrem- ur þeirra er þegar lokið. Einn leikur í 8 liða úrslitum fer svo fram þar auk annars undanúrslitaleiksins. Í starfi Geirs felst aðallega að undirbúa leiki með liðunum sem keppa hverju sinni og gæta að ör- yggismálum á vellinum. „Svo er eitt helsta starfið að vera hlutlaus aðili evrópskrar knatt- spyrnu og skila skýrslu um fram- gang leiksins, framkomu leikmanna, forráðamanna liðanna og áhorf- enda,“ segir hann. Geir segir að leikirnir í Varsjá hafi verið krefjandi en þar fór opn- unarleikurinn meðal annars fram og mikil áhersla lögð á að hann færi snurðulaust fram. Þá var mikil spenna í kringum leik Rússa og heimamanna í riðlakeppninni og kom til átaka á milli stuðnings- manna liðanna. Þurfti lögregla að beita gúmmíkúlum á ólátaseggina auk þess sem á annað hundrað manns voru handteknir. „Vissulega urðu ólæti í borginni en framkvæmdin á vellinum tókst vel fyrir utan nokkur smávægileg atvik. Þetta voru einangraðir litlir hópar, bullur að mínu viti og glæpa- lýður sem efndi til slagsmála. Hin 99% voru bara fólk sem var komið til að skemmta sér og fylgjast með fót- bolta,“ segir Geir. Opin og spennandi keppni Hinir hefðbundnu vestrænu fjöl- miðlar hafa að mörgu leyti gefið upp ranga mynd af framkvæmd mótsins í þessum tveimur fyrrverandi aust- antjaldslöndum að sögn Geirs. Leik- irnir í Varsjá fara fram á nýbyggð- um þjóðarleikvangi sem Geir segir með þeim glæsilegri í Evrópu. Fyrir utan ólætin hafi mótið gegnið frá- bærlega bæði í Póllandi og Úkraínu. „Fótboltinn hefur verið fínn. Það hefur enginn leikur verið markalaus. Það er mjög gaman að upplifa það að fyrir síðustu umferðina í riðla- keppninni voru aðeins tvö lið úr leik svo fjórtán lið áttu ennþá möguleika á að komast í 8 liða úrslit. Það sýnir bara jafnræðið í keppninni og að hún er opin og spennandi,“ segir hann. „Evrópumótið hefur gengið frábærlega“  Formaður KSÍ við eftirlit í Varsjá Eftirlit Geir stendur vaktina á þjóð- arleikvangi Pólverja í Varsjá. FRÉTTASKÝRING Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Innbrot í hesthús hafa verið tíð á und- anförnum vikum og mánuðum. Í gær- morgun komst upp um innbrot í sex hesthúsum á Hellu, þaðan sem stolið var hnökkum, reiðtygjum og verð- mætum járningatækjum. Þjófarnir voru vandlátir og stálu verðmætari hnökkum, reiðtygjum og járninga- tækjum. Þá höfðu þeir fyrir því að taka ístöð og ólar af hnökkum og skilja eftir í hnakkageymslunum. Taka málin í sínar hendur Í mars á þessu ár var farið ráns- hendi um hesthúsahverfið á Selfossi og nýlega greindi mbl.is frá því hvernig hesthúsaeigendur á Selfossi, Eyrarbakka, Stokkseyri, Hveragerði og í Þorlákshöfn ætla, í samstarfi við lögreglu og viðkomandi sveitarfélög, að verjast ágangi þjófa og jafnvel að leggja fyrir þá gildrur. Þar verður komið upp nágrannavörslu og öll bíl- númer sem heimsækja hverfin skráð niður. Þá verður aðgengi að þeim hverfum takmarkað og komið fyrir eftirlitsmyndavélum. Í samtali við hesthúsaeigendur á Hellu kom fram að brugðist verði svipað við þessari árás á hverfið þar og er unnið að því að koma upp myndavél í hverfinu sem í dag hefur takmarkað aðgengi með einstefnu. Í júní var tilkynnt um innbrot í þrjú hesthús í Víðidal í Reykjavík og einnig nýlega í Mosfellsbæ. Í janúar 2011 var lagt hald á yfir þrjátíu hnakkar sem fjórir einstak- lingar höfðu stolið víða á höfuðborg- arsvæðinu. Samkvæmt 264. grein al- mennra hegningarlaga bíður þess sem gerist uppvís að því að kaupa þýfi allt að tveggja ára fangelsisvist. Hægt að örmerkja hnakka Eftir innbrotin á Hellu kom upp umræða um hvaða leiðir væru tækar til að merkja hnakkana þannig að auð- velt væri að bera kennsl á þá. Þekkt er í hrossarækt að örmerkja hross og með sömu tækni er hægt að merkja alla hnakka á öruggan hátt. Þannig er með einfaldri leið hægt að bera kennsl á viðkomandi hnakk og rekja hann til rétts eiganda. Eini hæng- urinn er sá að til þess að þetta virki þarf að vera miðlægt kerfi sem geymir upplýs- ingar um eigendur og heldur utan um lögmæt eigendaskipti. Áfram farið ráns- hendi um hesthús  Hestamenn skipuleggja þjófavarnir vegna tíðra innbrota Ljósmyndir/Sigurður Kristinn Guðbjörnsson Fóru ránshendi Á vinstri mynd sést austari hluti hesthúsgötunnar á Hellu. Ekki var farið í neitt hús í vestari hlut- anum. Á hinni sjást í hrúgu ístöð, gjörð og ístaðsólar sem þjófarnir tóku af hnökkum á staðnum og skildu eftir. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja sé r ré tt til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri • Sími 461 1099 • www.heimsferdir.is 5.-12. september Fararstjóri: Trausti Hafsteinsson Gönguferð á Tenerife kr.196.800 á mann í tvíbýli 225.800 í einbýli E N N E M M / S IA • N M 53 0 43 Tenerife er afar vinsæll áfangastaður og sannarlega spennandi valkostur fyrir vandláta göngumenn. Dvalið er á góðu hóteli í bænum Puerto del la Cruz á norðurströnd Tenerife. Daglega verður farið í göngur um fjölbreytt og fagurt landsvæðið þar sem útsýnið er oft á tíðum stórkostlegt. Einnig er farið í dagsferð til nágrannaeyjunnar La Gomera og gengið um Garajonay-þjóðgarðinn. Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3* hóteli með hálfu fæði. Akstur til og frá flugvelli. Gönguferðir samkvæmt dagskrá. Dagsferð til La Gomera ásamt hádegisverði. Íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 16 manns. Sprengja sprakk í bíl í Kópavogi í gærmorgun með þeim afleiðingum að bíllinn skemmdist og rúða brotnaði í nálægu húsi. „Þetta var í [gær]morgun um fimmleytið og talsvert hár hvellur heyrðist víða,“ sagði Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknar- deildar lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu, um málið. Hann sagði tjón á bílnum hafa verið minniháttar. Friðrik segir frekar um skoteld að ræða en heimagerða sprengju og að engin vitni hafa verið að atburðinum. Friðrik segir að heyrst hafi í bifreið sem ekið var í burtu frá staðnum þar sem sprengjan sprakk. Mikið lið lög- reglumanna kom á vettvang og auk þess voru sprengisérfræðingar frá Landhelgisgæslunni kallaðir til. Bifreiðin stóð fyrir utan einbýlis- hús en eigandi hennar býr í húsinu. Viðmælendum blaðsins úr röðum íbúa í hverfinu bar ekki öllum saman um nákvæma tímasetningu enda voru flestir enn hálfsofandi þegar sprengj- an sprakk. Íbúi í Fossvogi segist hafa vaknað um fimmleytið um nóttina við mikinn hvell. Annað vitni segir sprenginguna hafa heyrst um allan Kópavog. Vegfarandi sem átti leið framhjá staðnum í gærmorgun segir að afturstuðari bílsins hafi verið skemmdur. Var skoteldinum að öllum líkindum komið fyrir milli afturhjóla bifreiðarinnar. Nágrannar héldu margir að þeir hefðu vaknað við þrumuveður en þeim brá heldur betur í brún þegar þeim varð litið út um morguninn þar sem lögreglan var með mikinn við- búnað og götunni var lokað um tíma. Skoteldur sprakk í bíl og rúða brotnaði í íbúðarhúsi Bílsprengja Á myndinni sést hvern- ig rúða í nærliggjandi húsi brotnaði.  Fjölmennt lið lögreglu kallað á vettvang „Það er búið að fara þrisvar inn hjá okkur,“ sagði Kristján Jóns- son, hesthúseigandi á Hellu, sem lenti í því að brotist var inn í hesthús hans um helgina þriðja árið í röð og þaðan stolið hnökk- um og fleiru. „Fyrst var nú stolið hnakk frá mér. Síðan í fyrra var stolið alveg nýjum hnakk sem sonur minn átti. Svo núna brutust þeir inn einu sinni enn og tóku fjóra hnakka.“ Heildartjón fjölskyld- unnar af hnökkunum sex er nálægt einni milljón en sá dýrasti var um hálfrar milljónar króna virði. „Þetta voru allt lítið notaðir hnakkar,“ sagði Kristján. Tjón upp á eina milljón RÆNDUR Í ÞRIÐJA SKIPTI Kristján Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.