Morgunblaðið - 18.06.2012, Síða 13
Ísland er í 11. sæti í sínum riðli eftir
12 umferðir í riðlakeppninni á
Evrópumótinu í brids. Ísland vann
Kýpur, 25:5, í 12. umferð í gær. Sex
leikir eru eftir í riðlakeppninni en 9
efstu liðin í hvorum riðli halda
áfram í úrslit.
Útlit er fyrir að hart verði barist
um úrslitasætin í B-riðli þar sem Ís-
land er en litlu munar á liðunum í
3.-11. sæti. Lið Mónakó og Eng-
lands, sem eru í efstu sætunum
tveimur, virðast hins vegar hafa
tryggt sér sæti í úrslitunum.
Aðeins var spilaður einn leikur í
gær en í dag spilar íslenska liðið við
Dani, Austurríkismenn og Sviss-
lendinga.
Íslenska bridsliðið
er í ellefta sæti
Óskað var eftir að-
stoð björgunarsveita
Slysavarnafélagsins
Landsbjargar í
Húnavatnssýslum í
gær. Þrír Belgar á
torfæruhjólum, svo-
kölluðum krossurum
höfðu fest eitt hjóla
sinna við Grettishæð
á Stórasandi. Þrátt fyrir margar til-
raunir tókst þeim ekki að losa hjólið
en gátu komið sér til byggða á hin-
um tveimur og óskuðu þar eftir að-
stoð björgunarsveita.
Eftir samráð við lögregluna á
Blönduósi og fjallskilanefndir var
ákveðið að verða ekki við beiðninni
að sinni. Landslag er viðkvæmt og
mikil bleyta er í jörðu og ekki þótti
réttlætanlegt að reyna að ná hjólinu
upp, of mikil hætta væri á skemmd-
um á gróðri og jörð. Skoða á málið
eftir um viku.
Lögregla tilkynnti ferðamönn-
unum niðurstöðuna og munu þeir
breyta ferðaplani sínu að minnsta
kosti næstu vikuna, segir í frétt frá
Landsbjörg.
Belgar á torfæru-
hjólum í vandræðum
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2012
Hringskonur afhentu Barnaspítala
Hringsins 70 milljónir króna í liðinni
viku þegar liðin voru rétt 70 ár frá
stofnun Barnaspítalasjóðs Hrings-
ins, eina milljón króna fyrir hvert ár.
Gjöfin var samþykkt á aðalfundi
Hringsins í vor og fer til tækjakaupa
eins og tilgreint er í gjafabréfi.
Valgerður Einarsdóttir, formaður
kvenfélagsins Hringsins, afhenti
gjöfina og þakkaði starfsfólki fyrir
frábært starf. Hún sagði það gert
sem hægt væri fyrir börnin í veik-
indum þeirra. Aðstaðan er góð og
betri en víðast, bæði fyrir sjúk-
lingana og fyrir aðstandendur, sagði
Valgerður.
Hún rifjaði upp að Hringurinn
hefði verið stofnaður árið 1904 og
aðalverkefnið fyrstu tæplega fjöru-
tíu árin hefði verið aðstoð við efna-
litla berklaveika sjúklinga. „Þar
unnu Hringskonur stórvirki,“ sagði
Valgerður. „Þær reistu Hressing-
arhæli í Kópavogi árið 1926 en íbúar
þar voru þá einungis 4 talsins. Hús-
inu var valinn staður sem þótti
hreggviðrasamur, skjóllaus og ljót-
ur. Rúm voru fyrir 23 sjúklinga og
sex starfmenn ráðnir. Hringskonur
fengu ábúð á Kópavogsjörðinni,
réðu bústjóra og reistu peningshús.
Búið framleiddi mjólk, egg, kjöt og
garðávexti fyrir sjúklingana. Heil-
næmt fæði vó þungt í meðferð
berklasjúklinga fyrir daga berkla-
lyfja. Frú Kristín Vídalín Jacobson,
formaður og stofnandi Hringsins,
rak þessi tvö fyrirtæki af dugnaði og
metnaði. Þetta var á krepputímum
en ágóði af búinu var góður.
Þetta er merk saga og því nefni ég
þetta nú að farin er af stað vinna í
Kópavogi að koma þessum bygg-
ingum í fyrra horf. Húsin eru komin
í friðunarferli. Gera á sögu þeirra
skil og þeim verður gefið nýtt hlut-
verk. Þarna verður eflaust í framtíð-
inni vinsæll kjarni til mannamóta og
dægradvalar,“ sagði Valgerður
meðal annars.
Milljón frá Hringnum fyrir hvert ár
Rausnarlegar Valgerður Einarsdóttir, formaður Hringsins, afhenti Jóni
Hilmari Friðrikssyni, framkvæmdastjóra kvenna- og barnasviðs, gjöfina.
Brot 5 ökumanna voru mynduð á
Vesturlandsvegi á föstudag. Fylgst
var með ökutækjum sem var ekið
Vesturlandsveg í norðurátt, við at-
hafnasvæði Vegagerðarinnar sunn-
an Hvalfjarðarganga. Á rúmlega
einni klukkustund, eftir hádegi, fóru
492 ökutæki þessa akstursleið og því
óku sárafáir ökumenn, eða um 1%,
of hratt eða yfir afskiptahraða.
Meðalhraði hinna brotlegu var
124 km/klst en þarna er 90 km há-
markshraði. Þess ber þó að geta að
tveir þeirra voru ökumenn bifhjóla
en annar þeirra mældist á 145 km
hraða og hinn á 164. Vöktun lögregl-
unnar á Vesturlandsvegi er liður í
umferðareftirliti hennar á höfuð-
borgarsvæðinu.
Ofsaakstur tveggja
bifhjólamanna