Morgunblaðið - 18.06.2012, Page 23
árunum 1990-2000, sótti námskeið í
Microstation, almennri kortagerð
og landupplýsingakerfi, GIS, 2001, í
ArcGis 9, landupplýsingakerfi, GIS,
2005 og í verkefnisstjórnun við HR
2006.
Inga Dagmar var landvörður í
Þjóðgarðinum í Skaftafelli, Jökuls-
árgljúfrum og Herðubreiðarlindum
og Öskju á árunum 1993-99, var líf-
fræðingur á Náttúrustofu Austur-
lands 2000-2001 og síðan á Nátt-
úrufræðistofnun Íslands 2001-2005,
var sérfræðingur hjá VSÓ Ráðgjöf
2005-2007, leiðsögumaður hjá Ís-
landsflökkurum, UltimaThule og
Útivist 2006-2009, hefur verið sér-
fræðingur hjá Veðurstofu Íslands
frá 2008 og stundað jökla- og
gönguleiðsögn hjá Íslenskum fjalla-
leiðsögumönnum frá 2008.
Þegar hér er komið sögu ætti
engum að koma á óvart að Inga
Dagmar hefur áhuga á fjallaferðum
og útvist. En hvaðan kemur þessi
mikli áhugi?
Í útilegum frá barnæsku
„Ég held að hann hafi kviknað
þegar ég var barn. Foreldrar mínir
hafa alltaf verið mikið fyrir ferða-
lög og við fórum mikið í útilegur
þegar ég var krakki.
Ég gekk svo í Hjálparsveit skáta
í Reykjavík þegar ég var sautján
ára og þá varð ekki aftur snúið.
Fyrstu tvö árin með Hjálparsveit-
inni fóru í samfelld nýliðapró-
grömm en síðan tóku við ýmiss
konar æfingar, leitir og leiðangrar.
Þar var alltaf nóg að gera og mað-
ur var í góðum félagsskap.“
Gekk yfir Vatnajökul
Inga Dagmar hefur verið mikið á
gönguskíðum. Hún gekk m.a. yfir
Vatnajökul á páskum 2006. Þá var
byrjað í Jökulheimum, gengið upp í
Grímsvötn, gist í tjöldum á leiðinni
og endað í Skálafellsjökli.
Hún hefur gengið á alla helstu
tinda landsins og er fyrir löngu bú-
inn að týna tölunni á þeim. Auk
þess er hún mikill hlaupagarpur,
hefur tvisvar hlaupið Laugaveginn
og fjórum sinnum hlaupið maraþon,
tvisvar í Reykjavík en auk þess í
Kaupmannahöfn og í Amsterdam.
En er alltaf nóg að gera í fjalla-
leiðsögninni?
„Já, já. Eftirspurnin eftir svona
ferðum eykst stöðugt, hjá hvoru
tveggja, Íslendingum og erlendum
ferðamönnum. Það eykst líka eft-
irspurn eftir ferðum allt árið. Við
erum í rauninni að kenna fólki á
landið og veita því aðgang að nýj-
um víddum þess. Það er alltaf jafn
gaman að koma fólki af stað og
finna hvernig áhugi þess vaknar á
þessari stórkostlegu náttúrufegurð.
Í rauninni er þetta hinn nýi lífsstíll
þeirra sem vilja upplifa eitthvað
nýtt og lifa heilbrigðu lífi.“
Fjölskylda
Synir Ingu Dagmarar eru tvíbur-
arnir Sindri og Jökull Bjarkasynir,
f. 5.3. 2003.
Systkini Ingu Dagmarar eru
Hafdís Ósk Karlsdóttir, f. 1.6. 1972,
nemi, og Daníel Karlsson, f. 1.5.
1979, iðnaðarmaður.
Foreldrar Ingu Dagmarar eru
Karl Nikulásson, f. 31.12. 1948,
pípulagningarmeistari, og Elín
Daníelsdóttir, f. 14.12. 1946, versl-
unarkona.
Úr frændgarði Ingu Dagmarar Karlsdóttur
Arnþrúður Guðjónsdóttir
húsfr. á Hvoli
Eyjólfur Guðmundsson
b. og rith. á Hvoli í Mýrdal
Elín Björnsdóttir
húsfr. í Loftsölum
Guðbrandur Þorsteinsson
vitav. í Loftsölum í Mýrdal
Karl K .Arngrímsson
b. á Veisu í Fnjóskadal
Ingunn Stefánsdóttir
húsfr. á Geldingalæk
Einar Jónsson
alþm. á GeldingalækInga Dagmar
Karlsdóttir
Karl Nikulásson
pípulagningarmaður í Rvík.
Elín Daníelsdóttir
verslunarkona í Hafnarfirði
Daníel Guðbrandsson
b. í Kerlingadal
Ingveldur Eyjólfsdóttir
húsfr. í Kerlingadal
Nikulás Einarsson
smiður í Rvík.
Inga Dagmar Karlsdóttir
húsfr. í Rvík.
Karitas Sigurðardóttir
húsfr. á Veisu
Kristján Karlsson
skólastjóri á Hólum
Sigurður Sigurðsson
skólastjóri og búnaðarmálastj.
Ljósmynd/Kristófer Lund
Toppurinn Inga Dagmar og Katrín
María á Hvannadalshnjúki.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2012
101 árs
Guðrún Jónsdóttir
90 ára
Gunnar Magnússon
85 ára
Hjalti Þórðarson
Maríanna Elísa Franzdóttir
Unnur Árnadóttir
80 ára
Kristín Guðbergsdóttir
Kristþór Sveinsson
Sigurður Jónsson
70 ára
Anna Þórunn Ottesen
Einar Muller Erhartsson
Hildur Eiðsdóttir
Hrefna Finnbogadóttir
Jón Sigurðsson
Kolbrún Gunnarsdóttir
Ólafur Brynjólfsson
Sigrún Reynisdóttir
Stefán Jónsson
Svala Eiðsdóttir
Viktor S. Guðbjörnsson
60 ára
Finnbogi Jóhannsson
Guðrún Pálsdóttir
Heiðar H. Hermundsson
Hildur Haraldsdóttir
Ingibjörg Richter
Jóhann Gíslason
Jón Ingi Skúlason Öfjörð
Kristín Ketilsdóttir
Skúli Konráðsson
Steinunn Guðbrandsdóttir
Vilhjálmur Pétursson
50 ára
Agnes Einarsdóttir
Bang-Orn Sribunruang
Ellen Klara Eyjólfsdóttir
Erla Kristín Harðardóttir
Hjördís Björk Birgisdóttir
Hjördís Einarsdóttir
Ingólfur Arnarson
Kristinn Þór Elíasson
Ólafur Árni Bjarnason
Ólafur Björnsson
Páll Áskelsson
Pétur Valgarð Hannesson
Ragnar Þór Kárason
Sigríður Esther Birgisdóttir
Valgeir Njálsson
Þór Ingvason
40 ára
Andrea Jónsdóttir
Ása Dóra Finnbogadóttir
Benjamin Dominique Bohn
Birna Sólveig Ragnarsdóttir
Egill Egilsson
Erla Sigríður Grétarsdóttir
Hafdís Jakobsdóttir
Inga Dagmar Karlsdóttir
Ægir Ágústsson
30 ára
Björn Axel Jónsson
Britta Magdalena
Ágústsdóttir
Harald Gunnar Halldórsson
Helgi Marteinn Ingason
Jóhanna Sigurbjörg
Ólafsdóttir
Karl Baldvin Jónasson
Kristján Orri Magnússon
Ólafur Ingi Þorgrímsson
Rafn Haraldur Rafnsson
Róbert Heimir Helgason
Sigurgeir Sigurgeirsson
Sæmundur Mariel
Gunnarsson
Vilhjálmur Sverrir
Pétursson
Til hamingju með daginn
40 ára Eva Jóna fæddist
á Selfossi og ólst upp í
Reykjavík. Hún vinnur í
leikskólanum Stakkaborg
í Bólstaðarhlíð.
Börn Kristín Líf, f. 1989,
Ingibjörg Jóna, f. 1992,
Perla Sóley, f. 2000 og
Róbert Dagur, f. 2005.
Foreldrar Kristín Ingólfs-
dóttir, f. 1956, kirkjuvörð-
ur í Fella- og Hólakirkju og
Ásgeir Arnar Jónsson, f.
1954, d. 2005, fósturfaðir
Freyr Guðlaugsson, f.
1950.
Eva Jóna
Ásgeirsdóttir
30 ára Þóra Margrét ólst
upp í Kópavogi. Eins og
stendur er hún í fæðing-
arorlofi en stefnir í haust
á háskólanám á Akureyri í
hjúkrunarfræði.
Maki Jóhannes Þorkels-
son, f. 1982, pípulagn-
ingameistari.
Börn Aron, f. 2011.
Foreldrar Helga Þóra
Jónsdóttir, f. 1957, kirkju-
vörður í Fossvogskapellu
og Sigurður Haraldsson,
f. 1953, kjötiðnaðar-
meistari.
Þóra Margrét
Sigurðardóttir
Alfreð J. Jolson, biskup kaþ-ólsku kirkjunnar á Íslandi,fæddist 18. júní 1928 í
Bridgeport í Connecticut í Banda-
ríkjunum. Alfreð gekk í reglu jesúíta
1946.
Hann lauk guðfræðiprófi frá
Weston College í Boston 1958 og
vígðist til prests 14. júní 1958. Auk
þess lauk Alfreð licenciatsprófi frá
Weston College 1959 og MBA-prófi í
viðskiptafræði frá Harvard 1962 og
doktorsprófi í heimspeki og félags-
fræði frá Gregorian háskólanum í
Róm 1970. Doktorsritgerð hans
fjallaði um rannsóknir á hlutverki
presta og þeim hindrunum sem
koma í veg fyrir köllun til prests-
starfa.
Hann starfaði víða um heim við
háskólakennslu, meðal annars við
Al-Hikma háskólann í Bagdad Bost-
on College of Buisness Admin-
istration, háskólann í Herare í Sim-
babwe, en þá hét sú borg Salisbury
og landið Ródesía. Einnig kenndi
hann við Saint Josefs-háskólann í
Fíladelfíu og var aðstoðarrektor og
yfirmaður viðskiptafræðideild-
arinnar í Wheel-ing Jesuit College í
Vestur-Virginíu frá 1986.
Alfreð var vígður Reykjavíkur-
biskup í Dómkirkju Krists konungs í
Reykjavík 6. og 7. febrúar 1988.
Alfreð biskup var góður ræðu-
maður, heimsmaður og sannur
menntamaður. Þeir sem til hans
þekktu sögðu hann einstaklega hlýj-
an með sterka nærveru. Hann var
jafnan alþýðlegur og félagslyndur
og átti létt með að blanda geði við
aðra og lagði rækt við að eiga góð
samskipti við vini sína og kunningja.
Foreldrar Alfreðs voru Alfred Jol-
son, sem rak vélaverkstæði í Fair-
field í Connecticut, og Justine, af
írskum ættum, dóttir John Houli-
han, hótelhaldara og ríkisþingmanns
í Newton í Connecticut, og Cather-
ine. Móðir Alfreds var Karolina
Amundsen, frá Kristiansand í Nor-
egi. Faðir Alfreds, afi Alfreðs Jols-
son, var Guðmundur Hjaltason, f.
1872, bakari á Ísafirði, og starfaði
m.a. sem kolakyndari og bakari í
Bridgeport, Bandaríkjunum.
Meðal skyldfólks Alfreðs er Rósa
Ingólfsdóttir og Leifur Dungal
læknir.
Alfreð Jolson lést 21. mars 1994.
Merkir Íslendingar
Alfreð J.
Jolson
30 ára Valgerður Lóa ólst
upp á Grenivík og er bú-
sett á Akureyri. Eins og
stendur er hún að klára
fæðingarorlof og stefnir í
haust á háskólanám í
líftækni.
Maki Gunnar G. Gunn-
arsson, f. 1969, sjómaður.
Börn Soffía Líndal, f.
2009 og Sonja Líndal, f.
2011.
Foreldrar Gísli Árnason,
f. 1949, sjómaður og
Soffía Daðadóttir, f. 1957,
nuddari.
Valgerður Lóa
Gísladóttir
TRAUST ÞJÓNUSTA Í 20 ÁR
Við gerum þér verðtilboð
– þetta er ódýrara en þú heldur,
– jafnvel ódýrara en að sjá um
sláttinn sjálf/ur
Sími: 554 1989
www.gardlist.is