Morgunblaðið - 18.06.2012, Síða 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2012
VIÐTAL
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Franski bandóneonleikarinn og
myndlistarmaðurinn Olivier Ma-
noury sýnir vatnslitamyndir frá Ís-
landi í Þjóðmenningarhúsinu en
sýningin stendur til loka ágúst. Um
myndlist sína hefur Olivier sagt:
„Ég er þeirrar skoðunar að
efnistök og stíll eigi rætur sínar að
rekja til eilífðartogstreitu hæfileika
og takmarkana. Mín eigin mynd-
verk eru einfaldlega tilraun til að
reyna að fanga síbreytilegt ljós og
andrými náttúrunnar sem og
manngerðs umhverfis.“
Spurður um myndirnar á sýning-
unni í Þjóðmenningarhúsinu segir
Olivier: „Þetta eru allt vatns-
litamyndir sem ég hef málað á Ís-
landi, flestar frá síðustu þremur
árum en aðrar eldri, aðallega
myndir af íslenskri náttúru en
einnig er þarna að finna borgar-
myndir. Ég er franskur og á mann
eins og mig virkar íslensk náttúra
sterk og öflug, stór og mikil. Þar
er fátt um tré og því er víðfeðmt.
Íslensk náttúra er mjög merkileg.
Vandamálið er að það er nokkuð
kalt á Íslandi þannig að erfitt er að
mála utan dyra og því mála ég
stundum inni í bílnum. Ég tek líka
ljósmyndir til að hafa viðmið og
mála svo myndirnar heima.“
Spilar með lokuð augu
Olivier Manoury ólst upp í París
og hóf myndlistarnám sem barn að
aldri. Síðar las hann ensku og bók-
menntir við Sorbonne-háskóla og
lauk þaðan meistaraprófi í nútíma-
bókmenntum. Samhliða há-
skólanámi var hann í listaháskóla
Parísarborgar þar sem hann lagði
stund á málaralist, auk þess að
læra höggmyndalist.
Drýgstan hluta ævi sinnar hefur
Olivier þó starfað sem tónlistar-
maður og er vel þekktur sem band-
óneonleikari í Frakklandi og víðar
um heim.
„Ég hef alltaf verið að mála en
hefur aldrei verið myndlistarmaður
að aðalstarfi. Ég sinni tónlistinni
mun meira en myndlistinni og mála
í frístundum,“ segir hann. Hann
hefur samið tónlist fyrir kvikmynd-
ir, leikhús og danssýningar, spilað
inn á fjölda geisladiska, auk þess
að leika á tónleikum og tónlistar-
hátíðum í Evrópu og Suður-
Ameríku. Olivier leikur bæði tangó
og djass en meðal þeirra hljóm-
sveita sem hann hefur stofnað eru
Tangoneon, Tempo Di Tango og
Le Grand Tango. Síðastnefnda
hljómsveitin er skipuð þekktum
hljóðfæraleikurum úr íslensku tón-
listarlífi. Hann segir að það sé ekki
erfitt að skipta sér á milli list-
greina. „Þetta er alveg ágætis
skipting. Tónlistarflutningur er oft
næturvinna og maður þarf ekki
ekki einu sinni ljós til að spila. Ég
spila oft með lokuð augun. Þegar
maður málar skiptir ljós og birta
hins vegar miklu máli.“
Hljóðfærið hans, bandóneon, er
þjóðarhljóðfæri í Argentínu og
gegnir miklu hlutverki í tangó-
tónlist og er af harmónikkuætt.
„Sem krakki var ég mjög hrifinn af
þessu hljóðfæri,“ segir hann. Ég
byrjaði að spila í kringum 1980 og
á þeim tíma voru fjölmargir arg-
entínskir flóttamenn í París. Ég
hitti tónlistarmenn úr þeirra röðum
og þeir vöktu áhuga minn á tangó-
tónlist og þessu sérstaka hljóð-
færi.“
Fjölbreytileiki lítils samfélags
Olivier býr í París ásamt konu
sinni, Eddu Erlendsdóttur píanó-
leikara. Þegar blaðmaður náði tali
af Olivier var hann staddur í
Stokkalæk þar sem Edda er að
taka upp plötu og hann er henni til
aðstoðar sem tæknimaður. Edda
leikur aðallega klassíska tónlist og
Olivier segist hrífast af slíkri tón-
list. „Tangótónlistin sem ég leik
svo oft minnir um margt á klass-
íska tónlist, það er ekki svo mikið
bil þar á milli,“ segir hann.
Hann segir að þau hjónin komi
minnst tvisvar á ári til Íslands en
hér á landi eiga þau son og barna-
barn. Hann segir mikinn mun á
stórborginni París og Reykjavík.
„París er gríðarstór og mikil borg
þar sem einstaklingurinn getur
auðveldlega látið sig hverfa inn í
mannfjöldann. Sumir þekkja ekki
einu sinni nágranna sína, þótt ég
geri það nú reyndar. Samskipti
fólks eru allt öðruvísi en á Íslandi
þar sem allir þekkjast. Í Reykjavík
gengur maður niður Laugaveginn
og mætir alltaf nokkrum mann-
eskjum sem maður þekkir. Í litlu
samfélagi kemst fólk ekki hjá því
að hittast og þar er því meiri fjöl-
breytni en í fjölmennari sam-
félögum, jafn einkennilega og það
kann nú að hljóma. Í París um-
gangast klassískir tónlistarmenn
aðra klassíska tónlistarmenn, og
djasstónlistarmenn umgangast
aðra djasstónlistarmenn en ekki
mikið tónlistarmenn í öðrum grein-
um. Á Íslandi er þetta allt öðru
Listin auðgar lífið
Franski listamaðurinn Olivier
Manoury sýnir vatnslitamyndir
sínar í Þjóðmenningarhúsinu
Olivier Ég er franskur og á mann eins og mig virkar íslensk náttúra sterk og öflug, stór og mikil.
Náttúra Ein af vatnslitamyndum Oliviers á sýningunni í Þjóðmenningarhúsinu.
Á Krúsku færðu:
heilsusamlegan mat,
kjúklingarétti, grænmetisrétti,
fersk salöt, heilsudrykki,
súkkulaðiköku,
gæðakaffi frá
Kaffitár og
fallega
stemningu.
Suðurlandsbraut 12 l 108 Reykjavík l S. 557-5880 l kruska@kruska.is l kruska.is
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 11-20 SENDUM Í FYRIRTÆKI
Næring fyrir líkama og sál