Morgunblaðið - 18.06.2012, Page 29

Morgunblaðið - 18.06.2012, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2012 Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir? Ég hef verið að hlusta á hana Mirru Rós, Kveldúlf, keypti hana um daginn, frábær diskur hjá henni. Og svo að sjálfsögðu er alltaf í diskamagasíninu í bílnum nýút- komin plata sem heitir Covered The Saints of Boogie Street, þetta er Leonard Cohen cover-plata sem við Soffía Karlsdóttir og nokkur önnur gáfum út hér í apríl- byrjun, við stelpurnar syngjum öll lögin og erum við að selja diskinn í öllum helstu hljómplötuverslunum um landið. Við erum afskaplega ánægð með afraksturinn, hljómar dálítið sjálfhverft en það er nú bara satt. Hvaða plata er sú besta sem nokkurn tíma hefur verið gerð að þínu mati? Þetta er ekki auðveld spurning að svara … tja, Led Zeppelin IV er svakaleg, Dark Side of the Moon með Pink Floyd líka og svo Bob Marley and the Wailers, Leg- end, hlustaði mikið á hana sem krakki. Ég held samt að ég verði að segja Tom Waits, Closing Time, fyrsta platan hans, já það er málið, algerlega málið. Textarnir, lögin, nett falska píanóið, tónninn í plötunni er dásamlegur. Hver var fyrsta platan sem þú keyptir og hvar keypt- ir þú hana? Það var platan Kona eftir Bubba Morthens sem var gefin út 1985. Keypti hana í KHB á Egilsstöðum, lærði hana utan að og kann hana enn. Hvaða íslensku plötu þykir þér vænst um? Það er án efa Söngævintýrið Rauðhetta & Hans og Gréta sem Gylfi Ægis samdi og gaf út 1980. Við systkinin fengum hana í jólagjöf og hún var mjög mikið spiluð, nán- ast viðstöðulaust. Ég keypti hana svo á geisladiski fyrir börnin mín og er hún mikið uppá- hald hjá þeim. Áð- ur en ég fann þessa plötu aftur og var að segja börnunum mínum þessar Grimms- sögur söng ég allt- af þessi lög á milli, eins og á plötunni. Ég var búin að gleyma ein- hverjum hluta textanna svo það var mikil gleði þegar ég fann hana aftur, gat farið að syngja textana rétt fyrir þau. Hvaða tónlist- armaður værir þú mest til í að vera? Magnús Þór Sigmundsson. Hann er svo frábær laga- og textasmiður og, það sem meira er, hann er einstaklega heillandi manneskja, þekki hann ekki persónulega en hef hitt hann nokkrum sinnum og spjallað við hann. Ekki eru börnin hans síðri, Þórunn Antonía og Baddi, en ég hef verið svo heppin að fá að kynnast þeim og fá að vinna með þeim. Ég á vonandi eftir að vinna með Magnúsi einn daginn. Hvað syngur þú í sturtunni? Ettu James, fer nú samt oft eftir hvernig skapi maður er í, stundum flakka heilu klassísku aríurnar. Hvað fær að hljóma villt og galið á föstudags- kvöldum? Ég flakka mikið um safnið, oftar en ekki er það BB King, Stray Cats og early ACDC, „Ride on“, þessi flottu blúslög og Etta James. En hvað yljar þér svo á sunnudagsmorgnum? Cesaria Evora, Mercedes Sosa, jafnvel Mozart. Kaffið rennur ljúflega niður með þeim. Í mínum eyrum Esther Jökulsdóttir söngkona Kaffið rennur ljúflega niður með Mozart, Evora og Sosa Heillandi Magnús Þór Sigmundsson Morgunblaðið/RAX Fyrsti þáttur nýrrar syrpu sápu- óperunnar Dallas sló áhorfsmet í Bandaríkjunum sl. viku en 6,8 millj- ónir manna horfðu á þáttinn. Er það mesta áhorf á upphafsþátt leik- innar sjónvarpsþáttaraðar á kapal- stöð þar í landi það sem af er ári en þátturinn var sýndur á kapalstöð- inni TNT. Í hinni nýju þáttaröð er sjónum beint að sonum bræðranna JR og Bobby Ewing, þeim John Ross og Christopher sem Josh Henderson og Jesse Metcalfe leika. Flestir aðalleikaranna úr gömlu þáttaröðunum koma einnig fram í þáttunum nýju, þau Larry Hagman, Patrick Duffy og Linda Gray. AFP Endurkoma Patrick Duffy, Linda Grey og Larry Hagman snúa aftur í Dallas. 6,8 milljónir horfðu á fyrsta þátt Dallas David Byrne, fyrrum forsprakki hljómsveitarinnar Talking Heads, hefur sl. tvö ár unnið að plötu með tónlistarkonunni St Vincent, réttu nafni Annie Erin Clark. Platan mun bera titilinn Love This Giant og kemur út 10. september nk. Upp- tökur hafa farið fram í Hoboken í New Jersey í Bandaríkjunum og munu þau Byrne og Clark fylgja plötunni eftir með tónleikaferð sem hefst í haust. Með í för verður átta manna blásarasveit, hljómborðs- leikari og trommuleikari. Frá þessu segir á vef dagblaðsins Guardian. Morgunblaðið/Ómar Íslandsvinur David Byrne sýndi verk sín á Listahátíð í Reykjavík 2010. Plata með Byrne og St Vincent JOHN CUSACK ER EDGAR ALLAN POE EMPIRE SPRENGHLÆGILEGMYND. „Scott ... tekst að skapa rafmagnaða stemningu í Prometheus“ -V.J.V., Svarthofdi.is - Roger Ebert FRÁBÆR RÓMANTÍSK GAMANMYND MILEY CYRUS DEMI MOORE EGILSHÖLL 12 12 12 12 10 12 10 16 16 16 16 VIP 12 12 L L L L L L L L L L L L ÁLFABAKKA KRINGLUNNI MADAGASCAR3 ÍSLTAL KL. 3:30 - 4 3D MADAGASCAR3 ÍSLTAL KL. 4 - 6 2D PROMETHEUS KL. 5:30 - 8 - 10:30 3D PROMETHEUS KL. 10 2D MADAGASCAR3 ENSTAL KL. 6 - 8 2D SNOWWHITE KL. 8 - 10:40 2D UNDRALAND IBBA ÍSLTALKL. 3:30 2D THEAVENGERS KL. 5:20 3D THERAVEN KL. 8 - 10:20 3D 12 L L L AKUREYRI 16 16 MADAGASCAR3 ÍSLTAL KL. 6 3D MADAGASCAR3 ENSTAL ÓTEXTUÐ KL. 8 3D RAVEN KL. 10 2D UNDRALAND IBBA ÍSLTAL KL. 6 2D LOL KL. 8 2D SAFE KL. 10 2D 12 16 16 KEFLAVÍK LMADAGASCAR3 ENSTAL ÓTEXTUÐ KL. 8 3D PROMETHEUS KL. 10 2D LOL KL. 8 2D SAFE KL. 10 2D MADAGASCAR3M/ÍSL.TALI KL. 3:40 - 5:50 3D MADAGASCAR3 ÓTEXTUÐM/ENSKU.TALIKL. 8 - 10:103D MADAGASCAR3M/ÍSL.TALI KL. 3:40 - 5:50 2D MADAGASCAR3M/ENSKU.TALIKL. 4 - 8 2D SNOWWHITE KL. 5:20-8 - 10:10 2D SNOWWHITE LUXUSVIP KL. 5:20 - 8 - 10:40 2D LOL KL. 3:40 - 5:50 - 8 2D THERAVEN KL. 10:40 2D THEDICTATOR KL. 6 - 8 - 10:10 2D THEAVENGERS KL. 10:10 2D UNDRALAND IBBAM/ÍSL.TALIKL. 3:30 2D MADAGASCAR3M/ÍSL.TALI KL. 5:50 - 8 3D MADAGASCAR3 ÓTXTM/ENSKU.TALIKL. 8 - 10:10 3D MADAGASCAR3M/ÍSL.TALI KL. 5:50 2D LOL KL. 10:10 2D THE LUCKYONE KL. 5:50 - 8 2D DARKSHADOWS KL. 10:10 2D SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI - SÝND Í 2D OG 3D TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á Sérsmíðaðar állausnir Speglar • Gler • Hert gler Öryggisgler • Litað gler • Bílspeglar Sandblástur • Álprófílar Máltöku- og uppsetningaþjónusta Við leggjum metnað okkar í að bjóða sérhæfðar og vandaðar lausnir í álprófílum. Við bjóðum upp á sérsmíðaðar skápahurðir, rennihurðir, borð, skápa o.m.fl. Á nýrri heimasíðu okkar glerslipun.is er gott yfirlit yfir það sem er í boði. Auk þess bjóðum við alla velkomna í Vatnagarða 12 þar sem fagfólk veitir góða þjónustu og allar þær upplýsingar sem þarf. Vatnagarðar 12 | Sími 588 5151 | Fax 588 5152 | glerslipun.isSTOFNAÐ 1922 SYSTEM STANDEX® Álprófílar Glerslípun & Speglagerð ehf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.