Morgunblaðið - 18.06.2012, Side 32

Morgunblaðið - 18.06.2012, Side 32
MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 170. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Í göngu á brjóstahaldaranum 2. Bíll sprengdur í Kópavogi 3. Tom og Katie á göngu í miðbænum 4. Líkamsræktarstöð tæmd á 50 mín. »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Paul McCartney er sjötugur í dag og af því tilefni ætla íslenskir tónlist- armenn að heiðra hann með tón- leikum í Eldborgarsal Hörpu í kvöld. Á meðal þeirra eru Gunnar Þórðarson, Egill Ólafsson og Andrea Gylfadóttir. AFP Tónleikar á 70 ára afmæli McCartneys  Ómar Einarsson gítarleikari heldur tónleika á Kaffi Rósenberg á morgun kl. 21 ásamt Kjartani Valdemarssyni píanóleikara, Jó- hanni Ásmunds- syni bassaleikara og Jóhanni Hjörleifssyni trommuleik- ara. Þeir flytja m.a. lög eftir Erol Garner, Horace Silver, Miles Davis, John Lennon og Paul McCartney. Ómar Einarsson á Kaffi Rósenberg  Íslensk-brasilíska tónlistarkonan Jussanam da Silva og sveit hennar halda tónleika í Gamla bíói í kvöld kl. 21. Hún kveðst ætla að flytja eig- in lög í samstarfi við höfunda frá nokkrum löndum. Hún segir kvöldið mjög sérstakt í sínum huga vegna þess að í dag sé ár lið- ið frá því hún fékk ríkisborg- ararétt á Ís- landi. Jussanam og hljóm- sveit í Gamla bíói Á þriðjudag Víða hæg vestlæg átt. Skýjað og þurrt að kalla, en síð- degisskúrir, einkum syðra. Hiti 9-15 stig. Á miðvikudag Suðvest- læg átt, 3-8 m/s og rigning eða skúrir eystra, annars þurrt að kalla. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg norðvestlæg átt eða hafgola og sums staðar skúrir, einkum síðdegis. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast á Suð- vestur- og Vesturlandi. VEÐUR Stelpurnar okkar í ís- lenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu eru í topp- sæti síns riðils í und- ankeppni Evrópumótsins eftir 3:0 sigur gegn Ung- verjum á Laugardalsvell- inum. Margrét Lára Við- arsdóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir og nýliðinn Sandra María Jessen skoruðu mörk íslenska liðsins, sem er stigi á undan Norðmönnum. »7 Stelpurnar okk- ar í efsta sætið Íslendingar á enn eitt stórmótið í handbolta KR og FH eru komin á kunnuglegar slóðir í Pepsi-deildinni í knattspyrnu. Bæðið lið unnu sína leiki í 7. umferð og skutust þar með upp fyrir Skagamenn í toppsæti deildarinnar. FH-ingar eru með betri markatölu og tróna því á toppnum. Hvorki gengur né rekur hjá lærisveinum Guðjóns Þórðarsonar í Grindavík, þeir sitja á botninum og hafa enn ekki unnið leik. »4-5 KR-ingar og FH-ingar á kunnuglegum slóðum ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Guðrún Sóley Gestsdóttir gudrunsoley@mbl.is Skólasysturnar Thelma Björk Theo- dórsdóttir og Brynhildur Lea Ragn- arsdóttir leiddu hátíðarskrúðgöngu Kópavogsbæjar í tilefni af 17. júní í ár, en báðar eru þær nýstúdentar frá MK. Leiðin lá frá Menntaskóla Kópavogs að Rútstúni og lék veðrið við þátttakendur í göngunni, glamp- andi sólskin og hiti juku á stemn- inguna og þegar gangan komst á leiðarenda tóku margir sér augna- bliksfrí frá hátíðarhöldum til að leggjast í sólbað. Thelma Björk er fjallkona Kópa- vogsbæjar í ár. Hún flutti ljóðið Hver á sér fegra föðurland eftir skáldkon- una Huldu, en ljóðalesturinn var lið- ur í hátíðardagskrá á Rútstúni í Kópavogi. „Ég vildi flytja þjóðlegt og fallegt ljóð,“ segir hin tvítuga Thelma Björk. Stekkur á milli hlutverka Aðspurð hvernig hún ætlaði að eyða því sem eftir lifði þjóðhátíð- ardags segist hún talsvert upptekin. „Að athöfn lokinni mun ég stökkva heim til að skipta úr búningnum í venjuleg föt því svo fer ég að vinna,“ segir Thelma Björk en eftir að fjall- konustörfum lauk aðstoðaði hún við hátíðahöldin. „Ég er aðallega í eft- irliti, en tek líka ruslarúnt og vinn við fallturninn og hoppkastalann,“ segir hún. Thelma klæddist fallegum kyrtli sem hún fékk að láni hjá Þjóðdansa- félagi Reykjavíkur. „Hann er sérlega glæsilegur og aldrei að vita nema maður gifti sig í svona búningi.“ Ásamt Thelmu leiddi Brynhildur Lea skrúðgönguna, en hún var fulltrúi nýstúdenta á þjóðhátíðardeg- inum í ár. Báðar hyggja þær á há- skólanám í haust. Brynhildur Lea flutti ræðu við til- efnið og rakti þar í stuttu máli sögu Rútstúns sem var grænmetisgarður og beitiland allt þangað til að eig- endur hans, hjónin Finnbogi Rútur Valdemarsson og Hulda Dóra Jak- obsdóttir afhentu Kópavogsbæ lóð- ina með því skilyrði að hún yrði nýtt til skemmtana. „Hér hefur svo 17. júní verið hald- inn hátíðlegur frá því að ég man eftir mér og lengur. Ég hef líka sótt hing- að ýmsar skemmtanir og tónleika,“ segir Brynhildur. Hún hlaut verðlaun fyrir góðan ár- angur á stúdentsprófi í sögu og hefur nám í sagnfræði við Háskóla Íslands í haust. „Ég hef mikinn áhuga á fag- inu svo það lá beint við að fara í sagn- fræði í háskólanum eftir útskrift.“ Brynhildur klæddist ekki síður glæsilegri þjóðbúningi en fjallkonan. „Mamma mín saumaði búninginn og var eitthvað um þrjá mánuði að búa hann til,“ segir Brynhildur Lea. Fjallkonan tekur ruslarúnt  Sautjándanum fagnað af krafti í Kópavogi Morgunblaðið/Styrmir Kári Stúdent Brynhildur Lea flutti ræðu á Rútstúni, en hún er nýútskrifuð úr Menntaskólanum í Kópavogi. Hún klædd- ist glæsilegum þjóðbúningi við tilefnið. „Mamma saumaði búninginn og það tók um þrjá mánuði að búa hann til.“ Þjóðartákn Thelma Björk var fjallkona Kópavogs í ár. Hún flutti Hver á sér fegra föðurland. „Ég vildi flytja þjóðlegt og fallegt ljóð,“ segir hún. „Þetta var nú svona eins og maður bjóst við. Reyndar hikstuðum við að- eins í byrjun en síðan var þetta öruggt,“ sagði Guðmundur Guð- mundsson, landsliðsþjálfari í hand- bolta, en íslenska landsliðið verður með á enn einu stórmótinu eftir að hafa tryggt sér farseðilinn á HM. »8

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.