Morgunblaðið - 25.06.2012, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Tilboð
:
Fólksbíll – 6500,-
(fullt verð 9000,-)
Jepplingur – 8000,-
(fullt verð 12.000,-)
Pantaðu alþrif strax í dag
Handþvottur / Handbón
Er bíllinn þinn skítugur eftir helgina?
BÓNSTÖÐIN
DALVEGI 16C
Sími 571-9900 / 695-9909
Hestamannafélög á suðvesturhorni landsins fóru
ríðandi á Landsmót hestamanna í gær. Hátt í 200
hestamenn tóku þátt í reiðinni.
Landsmót hestamanna hefst árla í dag, klukk-
an átta, með forkeppni í B-flokki gæðinga. Um-
gjörð mótsins er glæsilegri en nokkru sinni fyrr
en búist er við um 15.000 gestum á mótið. Hesta-
áhugamenn geta fengið fréttir beint í æð á sér-
stökum sérvef á mbl.is.
Hátt í 200 hestamenn riðu á Landsmót
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Landsmót hestamanna hefst í dag í Víðidal í Reykjavík
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Vatnsskorturinn kemur niður á öll-
um og er mjög alvarlegur fyrir hót-
elið. Það er algjörlega óþolandi að
búa við vatnsskort,“ sagði séra Geir
Waage, sóknarprestur í Reykholti í
Borgarfirði. Nú skortir þar neyslu-
vatn líkt og venjulega í þurrkatíð.
„Fólk í sínum húsum verður að inn-
rétta sig eftir þessu, fara í sturtu á
réttum tíma og passa upp á vatnið. Í
nútíma samhengi er þetta algjörlega
óþolandi.“
Vatnstankur sem séð hefur Reyk-
holti fyrir vatni til bráðabirgða var á
sínum tíma byggður sem bruna-
varnatankur fyrir varaeintakasafn
Landsbókasafnsins í gamla héraðs-
skólahúsinu. Tankurinn er annað-
hvort ekki nógu stór eða ekki er
safnað nægu vatni í hann fyrir stað-
inn, að mati Geirs. Hann sagði að
Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefði
yfirtekið vatns- og frárennslisveit-
una árið 2006 og lofað þá að leysa úr
neysluvatnsskortinum. Efndirnar
hefðu hins vegar dregist. OR boraði
á Rauðsgili í fyrra og hefur holan
gefið gott vatn, að sögn Geirs.
„Þolinmæðina þrýtur af því menn
vita að það er til nóg vatn, en bara er
eftir að koma því á staðinn.“
Stjórn OR ákvað nýlega að herða
á framkvæmdum við nýja vatnsveitu
í Reykholti og vill hún leita leiða til
þess að ljúka þeim fyrir árslok, að
því er segir í frétt frá OR. Vatns-
skorturinn í Reykholti var ræddur á
stjórnarfundi OR 14. júní sl. að frum-
kvæði Björns B. Þorsteinssonar,
áheyrnarfulltrúa Borgarbyggðar í
stjórninni. Hann gerði einnig bókun
um málið.
Búið er að ganga frá öllum nauð-
synlegum leyfum frá einkaaðilum
vegna lagningar nýrrar vatnsveitu.
Hönnun mannvirkja er á lokastigi og
fyrirhugað að fara í útboð á næstu
vikum, samkvæmt frétt OR.
Óþolandi vatnsskortur
Neysluvatn skortir í Reykholti í Borgarfirði OR leitar
leiða til að ljúka vatnsveituframkvæmdum fyrir árslok
Morgunblaðið/Arnaldur
Reykholt Neysluvatn vantar.
Persónuvernd
hefur fellt niður
mál vegna kvört-
unar um að eft-
irlitsmyndavél
væri í bíl sem
lagt var á bíla-
stæði við fjöl-
býlishús í
Reykjavík.
Samkvæmt áliti Persónuverndar
tókst ekki að sýna fram á tilvist
myndavélarinnar þrátt fyrir vett-
vangsferð stofnunarinnar á umrætt
bílastæði. Ljósmynd og myndskeið
sem sögð voru af bílnum með eft-
irlitsmyndavélinni þóttu ekki nægi-
lega skýr til þess að hægt væri að
greina án nokkurs vafa hvort eft-
irlitsmyndavél hefði verið komið
fyrir í umræddum bíl á bílastæði
fjölbýlishússins. Í ljósi þessa varð
niðurstaðan sú að ekki lægi fyrir
sönnun á því að atvik væru með
þeim hætti sem greinir í kvört-
uninni. Þar sem Persónuvernd hefur
ekki frekari úrræði til að kanna
staðreyndir málsins ákvað því stjórn
stofnunarinnar að fella mál þetta
niður vegna skorts á sönnunum.
Deilt um
eftirlits-
myndavél
Sögð vera í bíl á bíla-
stæði fjölbýlishúss
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík hefur
skorað á borgaryfirvöld að endurskoða þá
ákvörðun sína að draga verulega úr fé-
lagsstarfi aldraðra í félagsmiðstöðvum borg-
arinnar. Félagið hefur áhyggjur af því að nið-
urskurður og uppsagnir starfsmanna muni
hafa neikvæð áhrif á það félagsstarf sem þar
hefur verið byggt upp.
Ekki ráðið í stað þeirra sem hætta
Unnar Stefánsson, formaður Félags eldri
borgara í Reykjavík, hefur miklar áhyggjur af
gangi mála. „Samkvæmt okkar heimildum á að
reyna að fækka fólki, ekki mun verða ráðið í
stað þeirra leiðbeinenda sem munu ná 70 ára
aldri á næstunni en þeir eru nokkuð margir.
Mér skilst að borgin stefni á að leita til Félags
eldri borgara, kirkjunnar, Rauða krossins og
fleiri aðila til að fá sjálfboðaliða til starfa í stað
launaðra leiðbeinenda.“
Unnar segir að félagsstarf sé mikilvægur
þáttur í lífi margra eldri borgara og því mikill
missir ef framlög borgarinnar dragist saman.
Hann bætir við að borgin hafi ekki enn haft
samráð við Félag eldri borgara í Reykjavík um
þessar breytingar.
Á vegum borgarinnar eru 16 félagsmiðstöðv-
ar, margar þeirra í húsum þar sem íbúðir eru
fyrir eldri borgara og þær njóta töluverðra vin-
sælda að sögn Unnars. Í félagsmiðstöðvum
aldraðra fer fram fjölbreytt starf, fólk kemur
saman og syngur, dansar, teflir, sinnir handa-
vinnu og spilar á spil, svo eitthvað sé nefnt.
Þátttakendur fái aukin völd
Í maí á síðasta ári skilaði starfshópur innan
borgarinnar af sér skýrslu um sjálfbært fé-
lagsstarf en þar kemur fram að stefna skuli að
aukinni valdeflingu og notendasamráði.
Unnið hefur verið eftir tillögum starfshóps-
ins síðan en sú vinna miðast við að færa þátt-
takendum meiri völd en jafnframt aukna
ábyrgð á félagsstarfinu. Með því á að virkja
aldraða til þátttöku í mótun og framkvæmd fé-
lagsstarfsins.
Hafa áhyggjur af félagsstarfinu
Stjórn Félags eldri borgara skorar á borgina að endurskoða áform um að draga úr félagsstarfi eldri
borgara Segja að fækka eigi launuðum leiðbeinendum Þess í stað verði leitað til sjálfboðaliða
Birna Sigurðardóttir hjá Velferðarsviði
borgarinnar vildi ekki tjá sig um eðli nið-
urskurðarins. „Hins vegar þurfum við
svigrúm til að geta aukið möguleika eldri
borgara á að koma í framkvæmd sínum
hugmyndum í félagsstarfinu. Eldri borg-
arar eru á ýmsum aldri og þarfir þeirra eru
mismunandi. Þess vegna er markmiðið að
auka valdeflingu innan t.d. yngri hópsins.“
Valdefling markmið
FÁI MEIRA AÐ SEGJA