Morgunblaðið - 25.06.2012, Síða 4

Morgunblaðið - 25.06.2012, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2012 in tekið við lóðum sem framkvæmdir höfðu verið hafnar á með þeim sömu skilmálum og áður var rakið. Brynjar segir Óskar Bergsson hafa ætlað að taka nokkra daga til að skoða málið, en það er ekki fyrr en 7. nóvember sem framkvæmdasvið borgarinnar hefur samband og þeim er boðinn fundur. Sá fundur fer fram 20. nóvember. Á þeim fundi segir Brynjar borgina hafa hafnað form- lega að taka við lóðunum en viður- kennt hugsanlega bótaskyldu vegna tjóns þeirra. Í bréfi sem Ellý K. Guð- mundsdóttir, sviðsstýra fram- kvæmda- og eignasviðs, ritar sama dag kemur fram að borgin taki ekki til baka lóðir sem framkvæmdir séu hafnar á, að útreikningar og vilyrði frá því um sumarið hafi verið mistök og beðist er afsökunar á því að þeim hjónum hafi verið gefin þau skilaboð að slíkt væri hægt. Á þessum tímapunkti voru Brynjar og Ásdís komin með lögmann í málið, en segjast þó hafa viljað reyna að fara samningaleiðina við borgina áður en málið færi dómstólaleiðina. Á borgarafundi í Grafarholti 27. apríl 2010 mun Ásdís hafa spurt Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, þáver- andi borgarstjóra, að því hvort við- bótargjald á lóðunum væri réttlátt. Svörin hafi verið þau að gjöldin hefðu verið felld niður, en ekki var einhugur um það á fundinum og segir Brynjar að niðurstaðan hafi verið sú að haft yrði samband við þau hjón síðar vegna málsins. Brynjar sendi Hönnu Birnu tölvupóst 25. maí 2010 og ítrek- aði beiðni um svör vegna þessa. Engin svör bárust að hans sögn. Tölvupóst- urinn var sendur á netfangið borg- arstjori@reykjavik.is og fyrir dómi þar sem Hanna Birna bar vitni segir Brynjar hana hafa neitað að bera ábyrgð á umræddu netfangi. Í kringum sveitarstjórnarkosning- arnar 2010 segir Brynjar borgarlög- mann hafa tjáð þeim að afgreiðsla málsins yrði að bíða fram yfir kosn- ingar. Á þeim tímapunkti taldi lög- maður þeirra sig hafa náð sam- komulagi við borgarlögmann þess efnis að þau héldu lóðinni en fengu 6 milljónir greiddar í bætur, með fyrir- vara um samþykkt borgarráðs. Borgarlögmaður hélt því þó fram fyrir dómi að ekki hafi verið um sam- komulag að ræða. Loks fundur með borgarstjóra Í ágúst 2010 hafði ekkert gerst í málinu og reyndi Brynjar að fá sam- band við Jón Gnarr borgarstjóra. Hann segir engin svör hafa borist frá borgarstjóra né upplýsingar um hvar í röðinni beiðni þeirra væri stödd í kerf- inu. Raunar segist hann einnig hafa reynt að fá fund með Hönnu Birnu, á meðan hún var borgarstjóri, en engin svör hafi heldur borist þaðan. Það var loks 21. september 2010 sem boðaður var fundur með borg- arstjóra. Á þeim fundi fól borgarstjóri aðstoðarmanni sínum, S. Birni Blön- dal, að vinna að málinu, að sögn Brynjars. Engin niðurstaða fékkst í málið þrátt fyrir það. Þegar þeim hjónum þótti fullreynt að ná sam- komulagi við borgina ákváðu þau að höfða mál gegn borginni og var stefna lögð fram í Héraðsdómi Reykjavíkur 26. maí 2011. Málið var tekið fyrir 28. september. Meðal þess sem Brynjar og Ásdís lögðu til grundvallar máli sínu var að í lóðaleigusamningi kæmi hvergi fram að þau mættu ekki skila lóðinni. Auk þess sem flestir aðrir hefðu fengið slíkt. Dómurinn féllst á þennan hluta af rökstuðningi þeirra, auk þess sem dómurinn taldi ekki full- sannað með vörn borgarinnar, að ákvæði í lóðaleigusamningi um að hann jafngilti afsali gæti staðist, enda kæmi slíkt hvergi fram í samningnum sjálfum. Þá tók dómurinn undir að með tölvupóstum sumarið 2009 frá lögmanni á framkvæmda- og eigna- sviði borgarinnar hefðu falist vænt- ingar um að þau gætu skilað lóðunum. Brynjar segir að mál mágs síns og svilkonu hafi fengið aðra meðferð en þeirra. Þau hafi í janúar 2010 ákveðið að stefna borginni. Í kjölfar stefn- unnar hafi borgin viljað skoða samn- ingaleið í málinu. Hins vegar hafi borgin ekkert gefið eftir í þeirra máli. Í því ljósi má teljast sérstakt að borgin skyldi ekki hafa áfrýjað nið- urstöðum héraðsdóms þar sem hún tapaði málinu og valið þess í stað að greiða verðbætur ofan á dóminn. Morgunblaðið/Eggert Urðarbrunnur Brynjar Gunnlaugsson við lóðina sem hann fékk loks að skila eftir þriggja ára baráttu við borgina. Börðust við borgina í 3 ár  Var neitað um skil á lóð í Úlfarsárdal 2009 þegar aðrir máttu skila  Unnu málið fyrir héraðsdómi í mars 2012  Borgin greiddi verðbætur ofan á dóminn FRÉTTASKÝRING Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Tæplega þriggja ára baráttu hjónanna Brynjars Gunnlaugssonar og Ásdísar Óskar Smáradóttur um að fá að skila lóð sinni við Urðarbrunn 17 í Úlfarsárdal lauk 7. júní síðastlið- inn með samkomulagi við Reykjavík- urborg eftir að borgin hafði verið dæmd í héraðsdómi, þann 30. mars síðastliðinn, til þess að taka við lóð- inni og endurgreiða lóðargjöld ásamt dráttarvöxtum, alls á annan tug millj- óna króna. Samkomulagið gekk hins vegar lengra en dómurinn því borgin sam- þykkti að verðbæta höfuðstólinn frá því að lóðargjöldin voru greidd í ágúst 2007 til endurgreiðsludags. Heildarendurgreiðsla til lóðarhafa var því á þriðja tug milljóna króna, en hefði verið mun lægri ef borgin hefði samþykkt að taka við lóðunum og endurgreiða lóðargjöldin í ágúst 2009 líkt og gert hafði verið í tilfellum flestra lóðarhafa hverfisins. Að sögn Brynjars voru einungis nokkrar lóðir sem ekki hafði fengist að skila á þeim tímapunkti. Langur aðdragandi málsins Saga málsins nær aftur til 12. júlí 2007, þegar lóðarúthlutun fór fram. En átökin við borgina hófust ekki fyrr en haustið 2009 þegar tilkynnt hafði verið að lóðinni yrði skilað. Þegar ljóst var sumarið 2009 að stór hluti lóðarhafa í hverfinu hafði ákveðið að skila lóðum sínum og lóð- arhafar Urðarbrunns 17 sáu fram á að ef þau kláruðu húsið yrðu þau meðal fárra íbúa á svæðinu ákváðu þau að kanna möguleikana á því að skila lóðinni. Að þeirra mati voru for- sendur fyrir því að byggja á svæðinu brostnar. Bróðir Ásdísar, sem einnig hafði ásamt konu sinni, bróður hennar og konu hans fengið úthlutaða par- húsalóð í dalnum, hafði í júní 2009 samband við framkvæmda- og eigna- svið borgarinnar. Hann spurði hvort hægt væri að skila lóð sinni, hvað fengist greitt til baka fyrir lóðina og hver frágangur hennar þyrfti að vera. Skömmu síðar barst svar frá borginni þess efnis að til að skila lóð sem fram- kvæmdir væru hafnar á yrðu þau að brjóta niður sökkla, botnplötu og annað þess háttar og áskilinn væri réttur til þess að byggingarfulltrúi tæki lóðina út. Auk þess fylgdu með útreikningar á endurgreiðslu. Þetta kemur fram í dómskjölum málsins og tölvupósti sem Morgunblaðið hefur undir höndum. Brynjar og Ásdís litu svo á að þau ættu sama rétt. Þau sáu með því ákveðið tækifæri til að losa sig frá því að byggja í hverfi sem ekki væri útlit fyrir að myndi byggjast upp á næst- unni og höfðu skömmu síðar sam- band símleiðis við sama lögfræðing hjá borginni til að ræða þann mögu- leika að skila sinni lóð. Daginn eftir berst tölvubréf þar sem fram kemur hversu mikið fáist greitt til baka við skil á lóðinni. Þau tilkynna formlega með tölvu- bréfi að þau ætli að skila lóð sinni þann 4. ágúst 2009. Skorti fé til endurgreiðslu Á þessum tímapunkti virðist sem borgin hafi verið komin í vandræði vegna hverfisins og á fundi sem Brynjar, bróðir Ásdísar og svilkona hans áttu með Óskari Bergssyni, for- manni borgarráðs, 5. október 2009 kom fram, að sögn Brynjars, að borg- in gæti ekki tekið lóðir þeirra til baka þar sem fjármagn hjá henni væri af skornum skammti. Brynjar segist hafa orðið verulega ósáttur við þessi svör og talið með því brotið á jafn- ræði, enda hafi á þessum tímapunkti verið búið að heimila öllum, nema þessum lóðarhöfum, að skila og borg- „Ég fer fram á að Jón Gnarr biðj- ist afsökunar fyrir hönd borg- arinnar og útskýri hvernig hann ætli að koma í veg fyrir að svona geti komið fyrir aftur og ég fer fram á að Hanna Birna víki [sem borgarfulltrúi]. Hún er búin að sýna það að hún beitir mjög svo vafasömum aðferðum við að ná fram þeim hlutum sem klárlega eru ekki hagsmunir borgarinnar og borgin greiðir gríðarlega fjár- muni fyrir. Þetta er ofbeldi og einelti sem borgin er að beita okkur undir stjórn Hönnu Birnu og Jón Gnarr tekur svo við. Þetta er gríðarlegt órétti og þau nota allt aflið og alla klæki í bókinni við það að knésetja fimm manna fjölskyldu. Allt sem þau geta. Þau veigra sér hvergi,“ segir Brynjar um þá meðferð sem hann og fjöl- skyldan máttu þola. Hann segir borgina hafa lagt á þau mikinn kostnað við að afla gagna vegna málsins. „Ég vil meina að borgin haldi frá okkur gögnum og hún leggur engin gögn fram nema henni sé stefnt til að afhenda þau.“ Segist hafa orðið fyrir einelti ÓSÁTTUR VIÐ NÚVERANDI OG FYRRVERANDI BORGARSTJÓRA Borgarráð Reykjavíkur hefur sam- þykkt að ganga til samninga við Kex Hostel og Landey ehf. um af- notasamning til fimm ára af ófrá- gengnu svæði sunnan við Kex Hos- tel. Gistiheimilið er á Skúlagötu 28. Jafnframt lagði borgarráð til að varið yrði sex milljónum til fram- kvæmda á svæðinu og að leitað yrði eftir þátttöku Bílastæðasjóðs um gjaldskyld bílastæði á lóðinni. End- anlegir samningar verða lagðir fyr- ir borgarráð til samþykktar. Gangi til samninga við Kex Hostel Í kjölfar fundar með borgarstjóra í september 2010 hafði S. Björn Blöndal samband við Brynjar, að hans sögn, og kvaðst ætla að fá óháð lögfræðiálit á málinu. Síðar segir Brynjar hann hafa sagt sér að lögfræðistofan hefði komist að þeirri niðurstöðu að þau ættu ekki rétt á að skila lóðinni. Brynjar seg- ist hafa viljað vita hvaða forsendur væru þar að baki en ekki fengið svör né fengið að sjá hið óháða lögfræðiálit. Hann segir S. Björn hafa borið því við að það væri ekki hægt þar sem hugsanlegt væri að Brynjar og Ásdís færu í mál við borgina og álitið gæti skipt máli fyrir vörn borgarinnar. Eftir að dóm- ur var fallinn segist Brynjar hafa haft samband við S. Björn og viljað fá að sjá álitið, en segir svörin hafa verið á sömu leið, að ekki væri hægt að veita aðgang að álitinu þó málinu væri endanlega lokið. Fær ekki aðgang að álitinu BORGIN LÉT GERA ÓHÁÐ LÖGFRÆÐIÁLIT VEGNA MÁLSINS Líðan mannsins sem slasaðist alvar- lega við vinnu við snjóflóðavarnar- garð í Bolungarvík á laugardag er stöðug, að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans. Til stendur að útskrifa hann af deild- inni í dag. Traktorinn sem maðurinn var í rann ásamt tengivagni átta metra fram af brún. Maðurinn vann að uppgræðslu við snjóflóðavarnar- garðinn þegar óhappið átti sér stað. Að sögn lögreglu er lítið vitað um tildrög slyssins en þau verða rann- sökuð frekar. Svo virðist sem traktorinn hafi misst afl með áð- urnefndum afleiðingum. Maðurinn var fluttur með þyrlu Landhelgis- gæslunnar til Reykjavíkur. Ljósmynd/Vikari.is Óhapp Traktorinn er illa farinn eftir slysið við snjóflóðavarnargarðinn í Bolungarvík. Líðan stöðug eftir alvarlegt vinnuslys Á síðasta fundi borgarstjórnar var samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Landspítalans við Hringbraut með 9 atkvæðum gegn 5. Fulltrúi Vinstri grænna sat hjá við afgreiðsluna og bókaði um mik- ilvægi vistvænna samgangna við og í kringum nýjan spítala. Borgar- fulltrúar Sjálfstæðisflokksins bók- uðu einnig um málið en þeir mótmæla því yfirþyrmandi bygg- ingamagni sem áætlað er á lóðinni. Morgunblaðið/Golli Auglýsing deili- skipulags samþykkt Kosningastjórn Ara Trausta sendi tilkynn- ingu frá sér á Fa- cebook í gær- kvöldi þar sem segir að stuðn- ingsmenn Þóru hafi leitað eftir því að Ari Trausti dragi framboð sitt til baka og lýsi yfir stuðningi við hana einungis til að Ólafur Ragnar verði ekki endurkjörinn. „Einstaklingar hafa hringt í mig, bæði fylgismenn Ólafs sem vilja ekki Þóru og fylg- ismenn Þóru sem vilja fyrir engan mun Ólaf Ragnar,“ sagði Ari í sam- tali við mbl.is í gærkvöldi. Ari tók fram að einungis einstaklingar hefðu haft samband við hann en ekki formlegir talsmenn Þóru eða Ólafs. Ari beðinn um að hætta við framboð Ari Trausti Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.