Morgunblaðið - 25.06.2012, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 25.06.2012, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2012 Kristinn H. Bene- diktsson, fyrrverandi blaðamaður og ljós- myndari, lést á Heil- brigðisstofnun Suður- nesja á laugardag eftir erfið veikindi, 63 ára að aldri. Foreldrar Kristins voru þau Þórdís Krist- insdóttir, sem starfaði um árabil hjá bæjar- sjóði Hafnarfjarðar, og Benedikt Sveins- son, skipasmiður og aðalbókari. Kristinn stundaði nám hjá Þóri Óskarssyni ljósmyndara í Reykja- vík á árunum 1966-1970. Samhliða náminu starfaði hann hjá Morgun- blaðinu undir handleiðslu Ólafs K. Magnússonar ljósmyndara. Að námi loknu var Kristinn fastráðinn ljósmyndari Morgunblaðsins til 1975 en þá fór hann til frekara náms í fag- inu í Bandaríkjunum. Á árunum 1976-1979 starfaði Kristinn sem ljósmyndari og blaða- maður fyrir tímaritið Sjávarfréttir og einn- ig starfaði hann sem fréttaritari Morgun- blaðsins í Grindavík á níunda áratug síðustu aldar. Fréttaritara- starfið var þá auka- starf með verkstjórn í fiskvinnslufyrirtækinu Hópsnesi hf í Grindavík. Síðasta verk Kristins var Sjómannadagsblað Grindavík- ur. Kristinn lætur eftir sig fjögur börn. Að leiðarlokum þakkar Morgun- blaðið samfylgdina um langt árabil og færir aðstandendum Kristins innilegar samúðarkveðjur. Andlát Kristinn H. Benediktsson Umhverfishópur Landsvirkjunar, Blöndustöð ásamt sjálfboðaliðum luku nýlega við að gróðursetja átján þús- und kynbættar birkiplöntur sem upprunnar eru úr Geir- mundarhólaskógi í Hrolleifsdal í verkefni um endur- heimt hinna fornu Brimnesskóga í Skagafirði. Eingöngu eru notaðar upprunalegar skagfirskar trjá- plöntur í verkefninu. Alls tóku um 25 manns þátt í gróð- ursetningunni að þessu sinni. Gera má ráð fyrir að milli 500 og 600 vinnustundir liggi hér að baki og milli þrjú og fjögur þúsund eknir kílómetrar. Nú er lokið við að gróð- ursetja í ríflega tvo þriðju þess lands sem félagið hefur til afnota, en það er á þriðja tug hektara. Mesta gróðursetningin Að sögn Steins Kárasonar, framkvæmdastjóra Brim- nesskóga, er þetta langmesta gróðursetningin til þessa við endurheimt Brimnesskóga. Eins og áður eru plönt- urnar framleiddar hjá Barra hf. á Egilsstöðum og er það nýmæli að plönturnar voru afhentar frosnar í pappa- kössum, 80 stykki í hverjum. Fyrir skömmu fengu Brimnesskógar 250 þúsund króna umhverfisstyrk úr Samfélagssjóði Landsbankans til að endurheimta hina fornu Brimnesskóga, en um- hverfisstyrkjum bankans er ætlað að styðja við verkefni á sviði umhverfismála og náttúruverndar. Endurheimt hinna fornu Brimnesskóga í Skagafirði  Átján þúsund kynbættar birkiplöntur gróðursettar Brimnesskógar Ungmenni úr umhverfishópi Lands- virkjunar í Blöndustöð unnu við gróðursetninguna. hvernig Kvenfélagið Brautin í Bol- ungarvík brást við fækkun fé- lagskvenna með aðgerðum sem leiddu til fjölgunar í félaginu. „Það sama þarf kirkjan að gera. Þau sem yfirgefið hafa kirkjuna á und- anförnum árum hafa valið það af ýmsum ástæðum. Nú þarf að setja það markmið að fjölga í kirkjunni og finna leiðir til þess.“ Í hópi vígsluvotta voru m.a. bisk- upar frá Færeyjum, Grænlandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finn- landi, Írlandi, Englandi, Skotlandi og Þýskalandi auk íslenskra bisk- upa, presta og djákna. Morgunblaðið/Eggert Handayfirlagning Vígsluvottar og viðstaddir biskupar lögðu hendur á höfuð Agnesar, sem kraup við altarið, og báðu fyrir henni. Vígslan sögulegur viðburður  Séra Agnes M. Sigurðardóttir var vígð biskup Íslands í gær fyrst kvenna  Hún tekur við embættinu 1. júlí næstkomandi  Nývígður biskup segir að kirkjan þurfi að bregðast við fækkun Morgunblaðið/Eggert Biskupspredíkun Agnes M. Sigurðardóttir biskup predikaði við vígsluna. SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is Séra Agnes M. Sigurðardóttir var vígð biskup Íslands í gær, fyrst kvenna. Biskup Íslands, Karl Sig- urbjörnsson, vígði eftirmann sinn að viðstöddu fjölmenni í Hallgríms- kirkju. Agnes tekur við embætti 1. júlí nk. „Engum blandast hugur um að hér erum við að lifa sögulegan við- burð í íslenskri kirkju þegar kona er í fyrsta sinn vígð til embættis bisk- ups,“ sagði Karl biskup í vígsluræðu sinni. „Hér er merki reist og afger- andi og gleðilegt skref stigið til jafn- ræðis kvenna og karla í kirkju og samfélagi. Þjóð og kirkja fagna þér, séra Agnes Sigurðardóttir. Þú ert umvafin elsku og fyrirbæn kirkj- unnar og væntingum alþjóðar.“ Karl biskup talaði m.a. um hvers nývígður biskup mætti vænta. Sókn- arbörn hennar væru nú um allt land og kastljósin myndu beinast að henni í meiri mæli en hún hefði áður þekkt. Hann minnti á að þrátt fyrir allt sem blasti við ytri augum væri Guð að verki. Karl bað þess að kraft- ur anda Guðs mætti bera Agnesi uppi, uppörva hana og styrkja. Séra Agnes kraup við altarið og gaf heit um að gegna biskupsþjón- ustunni með árvekni, réttsýni og trúmennsku eftir þeirri náð sem Guð gæfi henni. Biskuparnir báðu fyrir henni með handayfirlagningu. Fjölga þarf í kirkjunni Biskupinn nývígði predíkaði við athöfnina. Agnes minnti m.a. á að þjónustan sem kirkjan innti af hendi væri jafn mikilvæg nú og á öldum áður. „Öllum landsmönnum gefst kost- ur á henni óháð trúfélagsaðild. Eitt af einkennum þjóðkirkju er að hún stendur öllum opin. Jesús fór ekki í manngreinarálit og það gerir kirkja hans ekki heldur. Erindi hennar er öllum ætlað,“ sagði Agnes biskup. Hún sagði að kirkjan hefði þurft að horfast í augu við mörg lærdóms- rík mál og búa þannig um hnúta að hægt væri að horfa björtum augum til framtíðar. „Það starf hefur eflt okkur og þeir ferlar sem mótaðir hafa verið eru öðrum fordæmi í sam- félaginu,“ sagði Agnes biskup. Hún benti á að í guðspjalli dagsins væru tvær dæmisögur Jesú um að leita að hinu týnda. Agnes sagði frá því Séra Auður Eir Vil- hjálmsdóttir hlaut fyrst kvenna prests- vígslu hér á landi ár- ið 1974. Hún tók þátt í vígsluathöfninni í gær og færði séra Agnesi í gyllta kór- kápu eftir að Karl biskup hafði sett biskupskrossinn um háls hennar. Nú hafa alls 70 konur vígst til prestsþjónustu í Þjóðkirkjunni og systurkirkjum hennar, það er í Frí- kirkjunni í Hafnarfirði og Fríkirkjunni í Reykjavík. Auk þess hafa tvær ís- lenskar konur verið vígðar beint til þjónustu í norsku kirkjunni. Af þess- um 70 prestsvígðu konum eru 58 enn starfandi, þar af starfa tíu íslenskar konur sem prestar erlendis, flestar í Noregi, samkvæmt upp- lýsingum frá Biskupsstofu. Í kórkápu með biskupskross 70 KONUR HAFA VÍGST HÉR TIL PRESTSÞJÓNUSTU FRÁ ÁRINU 1974 ÞEGAR AUÐUR EIR VILHJÁLMSDÓTTIR FÉKK VÍGSLU Kvenprestar Séra Auður Eir (t.v.) og Agnes biskup. Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.