Morgunblaðið - 25.06.2012, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2012
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Textílhönnuðurinn BrynjaEmilsdóttir hannar barna-fatnað og fylgihluti hann-aða úr gömlum efnum og
afgöngum undir nafninu Besla. Með
þessu lagi verður hver flík einstök
og litir og mynstur blandast
skemmtilega saman. Einnig hannar
Brynja værðarvoðir og gólfteppi
fyrir börnin.
Nýtir stafla af afgöngum
„Eftir að ég eignaðist dóttur
mína fyrir þremur og hálfu ári fór
ég dálítið í krúttgírinn sem ég hafði
aldrei verið í áður. Enda hafði ég
fram að því verið að hanna kven- og
útivistarfatnað. Útgangspunkturinn
varð því að búa til eitthvað fyrir
börn og ég hef nú gert værðarvoðir,
rúmföt og gólfteppi. Eins hef ég
nýtt gömul efni og afganga í svuntur
og kjóla og eru fleiri vörur vænt-
anlegar í þeim dúr í sumar. Maður
vill vera hagsýnn og nýta hlutina og
hugsar líka meira um slíkt þegar
maður á sjálfur barn. Ég ákvað því
að fara að nota efni sem mér hefur
áskotnast í gegnum árin og hefur
safnast upp í stafla hjá mér. Eins
reyni ég að hafa það sem ég geri
umhverfisvænt og það nýjasta hjá
Hugmyndirnar
færast lengra
Með því að nota afganga
í ýmsum litum og mynstr-
um býr Brynja Emils-
dóttir textílhönnður til
fallegar svuntur og kjóla
á börn. Hún hannar
einnig værðarvoðir og
gólfteppi og leitast eftir að
endurnýta og nota lífræn
efni í hönnun sína.
Úrval Efnisstaflarnir hennar Brynju nýtast vel í smekkjagerðina.
Mörgum þykir gott að fá sér tesopa.
Sumir drekka bara te á meðan aðrir
drekka bæði te og kaffi. Allt eftir
hentugleika og löngun hverju sinni.
Alls konar te er gott og þræða margir
tebúðir jafnt hér heima sem erlendis
í leitinni að hinu „eina rétta tei“.
Meðal góðra tetegunda má nefna hið
breska Clipper-te en inni á heimasíðu
þess clipper-teas.com má skoða heil-
an frumskóg af tei sem hjá þeim er
framleitt. Enn þá betra er þó það að á
síðunni má finna ýmiss konar girni-
legar uppskriftir að gúmmulaði til að
borða með tebollanum. Varla myndu
margir slá hendinni á móti kók-
oshöttum frú Simkins, líkt og þessar
formkökur eru kallaðar á síðunni. Né
heldur súkkulaðibitamúffum úr
smiðju hinnar sömu. Nóg er af upp-
skriftum til að velja úr og allir ættu
að geta fundið hér eitthvað við sitt
hæfi með góðum tebolla.
Vefsíðan www.clipper-teas.com
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Úrval Bollakökur má útfæra á ýmsan skemmtilegan hátt með tebollanum.
Gómsætt með tebollanum
Listaklúbburinn Selma er klúbbur
áhugafólks um myndlist. Félagsaðild
veitir aðgang að sérsniðinni leið-
sögn og fyrirlestrum í Listasafni Ís-
lands. Einnig fá félagar afslátt í
Safnbúð og jafnframt 25% afslátt
af sýningarskrá viðkomandi sýn-
ingar. Sækja má um aðild að
klúbbnum á vefsíðu safnsins,
www.listasafn.is, eða með tölvupósti
á selma@listasafn.is. Árskort gildir í
12 mánuði frá útgáfudegi. Meðal
fríðinda sem kortinu fylgja er af-
sláttur í safnbúð og frír aðgangur
að safninu.
Endilega …
… gangið í
listaklúbb
Morgunblaðið/Ómar
Á svelli Fyrir utan Listasafn Íslands.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Nú stendur yfir í Sláturhúsinu á
Egilsstöðum sumarsýning. Er þetta
í fjórða sinn sem sumarsýning er
sett þar upp og hún því orðin fastur
liður í starfsemi Sláturhússins. Að
þessu sinni leiða saman list sína
feðgarnir Þór Vigfússon og Helgi
Þórsson og mæðginin Ólöf Birna
Blöndal og Sveinn Snorri Sveinsson.
Samsýningin Feðgar / Mæðgin
er einkar fjölbreytt þar sem bland-
ast saman myndlist, ljóðlist í formi
innsetningar, verk sem eru á mörk-
um þess að vera málverk og skúlp-
túrar. Nálgast má nánari upplýs-
ingar og opnunartíma
sýningarinnar á www.slaturhus-
id.is og á facebook.
Fjölbreytt Á sýningunni blandast saman myndlist, ljóðlist og skúlptúr.
Samsýning á Egilsstöðum
Spriklandi fiskbúð
Veitingastaður / verslun
Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is