Morgunblaðið - 25.06.2012, Page 11

Morgunblaðið - 25.06.2012, Page 11
Morgunblaðið/Árni Sæberg Textílhönnuður Brynja nýtir efni sem hún hefur sankað að sér og saumar svuntur og kjóla á yngstu kynslóðina. mér er að láta framleiða fyrir mig í Indlandi ungbarnalínu sem verður úr vottaðri lífrænni bómull. Linda Ólafsdóttir myndskreytir, sem starfar með mér á vinnustofunni minni, gerði mynstur fyrir hluta þeirrar línu svo og hönnunarfyr- irtækið Hnoss. En þessi lína var kynnt á HönnunarMars síðast- liðnum. Fyrir utan hvað það er skemmtilegra að gera eitthvað með öðrum færir það hugmyndir manns líka lengra,“ segir Brynja. Tæknilegt nám Brynja fær hugmyndir sínar mikið í gegnum börnin sín auk þess sem hugmyndir spretti út frá gömlu efnunum sínum. Í gegnum þau spretti fram alls konar litapælingar og samsetningar. Brynja útskrif- aðist sem textílhönnuður frá Listaháskóla Íslands árið 2000 og hélt að því loknu í nám til Barcelona. En þaðan útskrifaðist hún árið 2006 úr fatatækni og hönnun. Að því loknu starfaði hún um þriggja ár skeið hjá Zo-On og hann- aði útivistarfatnað en hefur síðast- liðin ár starfað sjálfstætt auk þess að kenna í Myndlistarskóla Reykja- víkur í textíldeildinni. Brynja var með grunn í spænsku og heillaði hana því að fara til Barcelona. En á þessum tíma var hún líka komin með barn og segir einstaklega barnvænt að vera með lítið barn í námi í Barcelona svo það varð úr. „Námið var mjög tæknilegt, mikil sníðagerð og áherslur á iðnaðarferlið,“ segir Brynja. Hönnun Brynju má skoða og fylgjast með nýjungum á vefsíðunni www.brynjaemils.com Mjúkt Værðarvoðir í fallegum litum fyrir litlu krílin halda á þeim hita. Smekkur Hver og einn sérstakur. Brynja fær hug- myndir sínar mikið í gegnum börnin sín auk þess sem hug- myndir spretti út frá gömlu efnunum sínum. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2012 Nú stendur yfir við matjurtargarða Akureyrar myndlistarsýning. En garð- arnir eru við gömlu gróðrarstöðina á Krókeyri í Innbænum, (ofan við Iðn- aðar- og Mótorhjólasafnið). Sýningin er hluti verkefnis Guð- rúnar Pálínu Guðmundsdóttur mynd- listarmanns og Jóhanns Thorarensen garðyrkjufræðings, sem nefnist Uppskeruhátíð ræktunar og mynd- listar.Verkefnið hófst 2010 og var í kjölfarið valið til norrænu menning- arráðstefnunnar Nordmatch í Hels- inki fyrir Íslands hönd. Þá tóku fimm myndlistarmenn þátt í sýningunni og einn félags- og garðyrkjufræðingur. Í ár hefur sýningin stækkað og eru leikmenn og listnemar samtals ell- efu. Þátttakendur eru Arna G. Vals- dóttir, Hlynur Hallsson, Kristín Þóra Kjartansdóttir, Þórarinn Blöndal, Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, Joris Rademaker, Sigrún Héðinsdóttir, Júl- ía Runólfsdóttir, Hugi Hlynsson, Vikt- or Hollanders og Ívar Hollanders. Hinn 26. ágúst verður síðan uppskeruhátíð þegar menn geta gætt sér á uppskerunni, ásamt því að hlýða á fyrirlestra um myndlist, gróð- ur og ræktun. Myndlistarsýning við matjurtargarða Uppskeruhátíð Í ágúst getur fólk notið myndlistar og ræktunar á sama stað. Myndlist, gróður og ræktun Girnileg uppskrift sem kallast Syk- urbrúnn úr nýrri uppskriftabók eftir Þorbjörgu Hafsteinsdóttur. Upp- skriftin er ætluð fyrir 2. 1 vel þroskuð lárpera 1 msk. hnetusmjör 1 dl graskersfræ 3 dl ósæt möndlumjólk 4-5 þurrkaðar, steinlausar döðlur 8 ísmolar úr grænu tedufti 1 tsk xylitol EÐA hnífsoddur af stevía sætuefni 1 frosinn banani 1 lítil msk. hrátt kakóduft eða kakónibs frá Naturya 1 hnífsoddur salt, t.d. Himalajasalt frá Natur hurtig Aðferð Settu bananann í frysti einum degi áður en á að nota hann. Afhýddu lár- peruna og fjarlægðu steininn. Settu allt saman í blandarann og láttu ganga örlitla stund. Smakkaðu svo til með xylitol. Smá trikk: Til bragðauka má bæta við smá chili eða cayennepipar – passaðu þig samt, þú vilt ekki að drykkurinn verði of sterkur. Fróðleiksmoli Súkkulaði – já! Þú ert að lesa bók eftir einlægan súkkulaðidýrkanda. Það eru margar ástæður fyrir því hvað mér líkar vel við súkkulaði. Sú mikilvægasta er að gæðasúkkulaði smakkast ómótstæðilega, það bætir líka skapið, eykur húmorinn og gælir við kynorkuna. Það er efninu feny- lethylamin að þakka en það vekur viss skilaboð í heilanum sem tendra löngun okkar í kynlíf. Sykurbrúnn hristingur Súkkulaði eykur húmorinn Hristingur Gott úr súkkulaði. Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki Dreymir þig nýtt eldhús! Hjá þaulvönum starfsmönnum GKS færðu sérsmíðað eldhús og allar innréttingar sem hugurinn girnist. Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og gæðasmíði alla leið inn á þitt heimili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.