Morgunblaðið - 25.06.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2012
H
a
u
ku
r
0
9
b
.1
1
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Haukur Halldórsson hdl.
haukur@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta.
Skráning á www.kontakt.is
• Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í
tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar.
Upplýsingar og skráning á www.kontakt.is.
• Heildverslun með þekkt vörumerki í fatnaði. Ársvelta 150 mkr. Góð afkoma.
• Smásöluverslun með náttúrulegar vörur. Ársvelta 25 mkr.
• Leitum að meðeiganda að fyrirtæki sem býður upp á fegrunarmeðferðir.
Auðveld kaup.
• Rótgróið hreingerningarfyrirtæki með 40 starfsmenn. Ársvelta 150 mkr. og
hefur vaxið með hverju árinu. Góð EBIDTA.
• Heildverslun með heimsþekktar hársnyrtivörur fyrir fagfólk. Ársvelta 60 mkr.
Hentar mjög vel til sameiningar.
• Glæsilegt íbúðahótel með 20 íbúðum. Góð afkoma.
• Heildverslun með vinsælar snyrtivörur fyrir fagfólk. Ársvelta 60 mkr.
Góð afkoma.
• Rótgróið gólfefnafyrirtæki í mjög góðum rekstri. Ársvelta 200 mkr.
EBITDA 20 mkr.
• Heildverslun með prjónagarn. Selur einnig mikið í gegnum heimasíðu á
netinu. Vandaðar og vinsælar vörur. Auðveld kaup.
• Stórt þvottahús og efnalaug. EBITDA 12 mkr.
Hentugt fyrir dugleg og samhent hjón.
Í rafhlöðum eru efni sem eru skaðleg
náttúrunni. Þær mega því alls ekki fara í
almennt sorp að notkun lokinni.
Efnamóttakan leggur heimilum og
fyrirtækjum til ókeypis kassa til að auðvelda
söfnun á ónýtum rafhlöðum. Einnig má setja
í hann ónýt smáraftæki.
Kassinn er margnota og hann má nálgast á
söfnunarstöðvum sveitarfélaga.
Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is
Rafhlöðukassi
Það má losa úr kassanum á
söfnunarstöðvum sveitarfélaga
(endurvinnslustöðvum). Einnig er víða
tekið á móti rafhlöðunum í sérstakar
rafhlöðutunnar á bensínstöðvum N1 og Skeljungs.
Hvert á að skila?
Umhverfisverkefnið Sustania hefur
útnefnt íslenska gagnaverið Verne
Global á Ásbrú eina af 100 bestu
sjálfbærnilausnum til framtíðar. Til-
kynnt var um þessa viðurkenningu á
Rio+20 ráðstefnunni, sem haldin var
í Rio de Janeiro í liðinni viku.
Sustania er samstarfsvettvangur
fjölda alþjóðlegra fyrirtækja og hef-
ur það að markmiði að stuðla að þró-
un umhverfisvænna og sjálfbærra
lausna fyrir samfélagið. Meðal bak-
hjarla verkefnisins má nefna Micro-
soft, GE, Tetra Pak, IKEA, SAS og
UBS fjárfestingabanka.
Af þeim 100 fyrirtækjum sem til-
nefnd voru í Brasilíu mun eitt
hreppa Sustania-verðlaunin. Verður
dómnefndin m.a. skipuð Arnold
Schwarzenegger og Gro Harlem
Brundtland.
Í tilkynningu frá Verne Global
segir að upphaf Sustania 100-verk-
efnisins sé fyrsti haldbæri afrakstur
Rio+20 ráðstefnunnar.
„Það er okkur heiður að jafnmik-
ilvæg samtök og Sustania skuli út-
nefna okkur eina af bestu umhverf-
isvænu lausnum heimsins. Við
stofnuðum Verne Global árið 2007 til
að fást við áhyggjur af sjálfbærni í
orkumálum og áhrifum gagnavera á
losun kolefnis út í andrúmsloftið, en
gagnaver eru einhver orkufrekasta
starfsemi okkar tíma. Útnefningin
er skýr staðfesting á árangri Verne
til þessa,“ sagði Jeff Monroe fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
Verkefnin sem valin voru í Sust-
ania 100 hópinn dreifast yfir 56 lönd í
sex heimsálfum og snerta fjölda
sviða, s.s. borgarskipulag, orkumál,
tísku, meðferð úrgangs og sam-
göngur.
ai@mbl.is
Verne hampað í Ríó
Gagnaverið valið í hóp 100 grænna úrvalsverkefna
Framtak Byggingarnar sem hýsa gagnaver Verne Global á Ásbrú. Gagnaverið notar umhverfisvæna orku.
Framtakssjóðurinn AUÐUR I skilaði 695 milljóna króna
hagnaði á árinu 2011 og var arðsemi eigin fjár 32%.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem Auður Capital
sendi frá sér á föstudag en þá var ársreikningur sjóðsins
samþykktur á aðalfundi. Heildareignir í árslok 2011
námu 3.150 milljónum.
AUÐUR I er í eigu rúmlega 20 fjárfesta, en þeirra á
meðal eru stærstu lifeyrissjóðir landsins, stofnfjárfestar,
einstaklingar og Auður Capital. Var sjóðurinn stofnaður
árið 2008 og hefur til þessa fjárfest fyrir tæplega 2,4
milljarða í 9 fyrirtækjum.
Á sjóðurinn í dag hluti í Securitas, Lifandi markaði,
Ölgerðinni, Já upplýsingaveitum, Tali, Gagnavörslunni
og Yggdrasil. Er eignarhlutur í hverju fyrirtæki frá 19%
og upp í 100%. Veltu þessi félög samtals yfir 21 milljarði
á liðnu ári og höfðu 930 starfsmenn.
Anna Harðardóttir sjóðsstjóri AUÐAR I segir að af-
koma síðasta árs staðfesti að tekist hafi að ná því mark-
miði að byggja upp verðmætt eignasafn öflugra fyr-
irtækja.
„AUÐUR I er langtímafjárfestir og hefur náð góðum
árangri í fjárfestingum á undanförnum 4 árum. Næstu
misserin verður áhersla lögð á að bæta rekstur og auka
verðmæti félaganna með náinni samvinnu við stjórn-
endur.“
Segir Anna að sjóðurinn stefni að því að selja fjárfest-
ingar sínar að miklu leyti á árunum 2014-16 og að þegar
sé kominn fram töluverður kaupáhugi á fyrirtækjum í
eigu sjóðsins.
ai@mbl.is
Mikil arðsemi hjá AUÐI I
Stefna að sölu fjárfestinga á tímabilinu 2014-16
Morgunblaðið/Kristinn
Verðmæti Meðal fyrirtækjanna sem mynda eignasafn
AUÐAR I má nefna matvælafyrirtækið Ölgerðina.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is