Morgunblaðið - 25.06.2012, Síða 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2012
Ingvi Jón Einarsson er sjötugur í dag og deilir hann afmælisdegimeð Helgu Björg dóttur sinni. ,,Saman eigum við 100 ára af-mæli því hún er þrítug í dag. Það vill svo til að daginn sem hún
fæddist áttum við eldri bróðir minn, hann Sigurður Oddur, einnig
100 ára afmæli í sameiningu. Hann var sextugur en ég fertugur.
Ingvi hefur búið alla tíð á Akureyri að undanskildum námsárum
sínum sem hann bjó í Reykjavík. Þar nam hann tannlækningar og
hefur unnið við þær frá árinu 1969 þegar hann útskrifaðist frá Há-
skóla Íslands. „Ég hef að vísu farið um landið í nokkrar vikur í einu.
Ég vann á Patreksfirði, Ísafirði, Húsavík og Seyðisfirði í nokkrar
vikur í senn þegar þörfin var sem mest fyrir tannlækna um 1980.
Ingvi á sjö börn og tvö þeirra á hann með núverandi eiginkonu
sinni, Ragnheiði Ólafsdóttur grunnskólakennara.
Hann á von á því að halda upp á afmælið í faðmi fjölskyldunnar
ásamt afkomendum sem eru orðnir 23 talsins. Laxveiði hefur verið
aðaláhugamál Ingva í gegnum tíðina, en nú hefur golfið tekið við.
„Ég stefni á golfferð í til Spánar í haust. Golfið er helsta áhuga-
málið. Veiðin er að detta út þar sem það er orðið svo dýrt að kaupa
veiðileyfi. Ég byrjaði um aldamótin í golfinu sem er allt of seint en
er með 21 í forgjöf sem er nóg til þess að hafa gaman af þessu,“ seg-
ir Ingvi að lokum.
Ingvi Jón Einarsson er sjötugur í dag
Ingvi Jón Einarsson Ingvi er sjötugur í dag og ætlar að vera í faðmi
fjölskyldunnar. Alls á hann 23 afkomendur.
100 ára afmælis-
feðgin fagna í dag
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Reykjavík Nadía Ósk fæddist 28.
ágúst kl. 18.10. Hún vó 2.860 g og var
47 cm löng. Foreldrar hennar eru Auð-
ur Vilhjálmsdóttir og Birgir Ólafur
Guðlaugsson.
Nýir borgarar
Kópavogur Kristján Möller fæddist
12. október kl. 15.24. Hann vó 4.340 g
og var 51 cm langur. Foreldrar hans
eru Ásdís Kristjánsdóttir og Agnar
Tómas Möller.
H
elga Björg fæddist á
Akureyri og ólst þar
upp. Hún var í Barna-
skólanum á Akureyri,
Gagnfræðaskóla Ak-
ureyrar, lauk stúdentsprófi frá MA
2002, var verslunarmaður í eitt ár en
hóf síðan nám í viðskiptafræði við HR
og lauk þaðan viðskiptafræðiprófi
2006 og síðan prófi í verðbréfamiðlun
frá HR 2009.
Helga Björg stundaði nám við Tón-
listarskólann á Akureyri frá fjögurra
ára aldri, lærði þar á blokkflautu frá
fjögurra ára aldri og á þverflautu frá
sex ára aldri og þar til hún varð
fimmtán ára. Þá lék hún með Lúðra-
sveit Tónlistarskólans á Akureyri í
nokkur ár.
Helga Björg vann í Lystigarðinum
á Akureyri, Kirkjugarðinum og garð-
inum umhverfis Sundlaugina er hún
var í Unglingavinnunni, starfaði hjá
Helga B. Ingvadóttir sjóðstjóri ÍV 30 ára
Fjölskyldan Ragnheiður Sara á milli mömmu og pabba, Helgu Bjargar og Steindórs Kristins Jónssonar.
Verðbréfamiðlari sem
kann á þverflautu
Hátt uppi Helga Björg í flugferð með manninum sem er atvinnuflugmaður.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isBíldshöfði 14 » 110 Reykjavík » Sími 567 6744 » gsvarahlutir.is
Triscan gormar, bremsu- og stýrishlutir
Pöntum á fimmtudögum, varan komin á mánudegi