Morgunblaðið - 25.06.2012, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 25.06.2012, Qupperneq 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2012 VIÐTAL Sigyn Jónsdóttir sigyn@mbl.is Allt frá andláti listamannsins Sig- urjóns Ólafssonar hefur Birgitta Spur, eftirlifandi eiginkona hans, haldið list hans og minninga á lofti. Árið 1984, tveimur árum eftir að Sig- urjón andaðist, stofnaði hún einka- safnið Listasafn Sigurjóns Ólafs- sonar. Þá endurgerði hún vinnustofu Sigurjóns, bætti sýningarrými við hús þeirra á Laugarnestanga ásamt kaffistofu þar sem hægt er að gæða sér á ljúffengu bakkelsi og fá sér kaffibolla með fagurt útsýni fyrir augum. Þann 21. október árið 1988 var safnið opnað almenningi en þá hefði Sigurjón orðið áttræður. Allt frá upphafi hefur verið lögð áhersla á skráningu listaverka Sigurjóns og var gefin út heildarskrá yfir verk hans árin 1998 og 1990 sem ritstýrt var af Birgittu. Skráin er sú eina sem til er yfir öll verk íslensks listamanns og aðgengileg öllum. Í síðustu viku var undirritað gjafa- bréf sem felur í sér að Listasafni Ís- lands verði færð til eignar rúmlega 180 höggmyndir og 240 teikningar Sigurjóns Ólafssonar ásamt öðrum eignum safnsins. Samkomulagið markar því tímamót í lífi Birgittu Spur sem lætur nú af störfum sem forstöðukona safnsins eftir þrjátíu ára starf. „Tívolísering“ safnastarfs Hvers vegna var ákveðið að gefa eignir safnsins? „Ég hef lengi leitað leiða til að tryggja framhaldslíf safnsins og nú er ég komin á aldur,“ segir Birgitta og brosir út í annað þar sem við sitj- um saman í eldhúsinu á Laugarnes- tanga og drekkum kaffi, umkringdar listaverkum og fuglasöng. „Ég fann fyrir miklum áhuga hjá Listasafni Íslands sem ég er virkilega ánægð með. Safnrekstur og starfsemi þess eru margþætt. Það er mikilvægt að öllum þáttum sé gert hátt undir höfði. Söfn þurfa að rannsaka, safna, varðveita og miðla. Sem lítið safn í mikilli baráttu höfum við viljað sýna hvað í okkur býr. Nú eru smærri söfnin að verða æ fleiri og það er mikið í umræðunni að þétta starf- semi þeirra og jafnvel sameina til þess að styðja við faglega starfsemi. Þar er hægt að spara vinnu í til dæmis bókhaldi og hægt að losa vinnukrafta í annað, til dæmis rann- sóknir. Grundvöllur allra sýninga er að það fari fram rannsóknarstarf,“ segir Birgitta og gagnrýnir óþol- inmæði í garð rannsóknarstarf safna á Íslandi. „Þó það sé búið að skrifa sögu ís- lenskrar myndlistar einu sinni þarf alltaf að vera að meta hlutina, rann- saka þá upp á nýtt og setja í annað samhengi. Þetta er dulið starf sem höfðar ekki til svo margra en söfnin eru jú sameiginlegt minni þjóðarinn- ar.Um tíma átti að reka allt sem fyr- irtæki og út úr því kom þetta með skemmtiþáttinn, svokallaða „tívol- íseringu“ safnastarfs sem hefur ver- ið mjög áberandi víða, ekki síst er- lendis. Ég er ekki að segja að það eigi að vera leiðinlegt að fara á söfn,“ segir Birgitta glettilega. „Þýðing rannsókna, þetta innra dulda starf er mikilvægt til þess að við getum miðlað og komið vitneskju á framfæri við almenning. Söfnin sem fræðslustofnanir hafa óhemju- mikla þýðingu. Söfnin geta gert svo mikið ef þau fá fjárhagslegt svigrúm til. Heildarskráning verka Sigurjóns á vefsíðu okkar er til dæmis góður grunnur að því sem koma skal í fræðslustarfi safna. Meðal annars þess vegna er mikilvægt fyrir safnið að tengjast höfuðsafni íslenskrar myndlistar.“ Munu fjárframlög til safnsins aukast nú þegar það er í ríkiseign? „Þessu er erfitt að svara þar sem ég er eiginlega komin út úr mynd- inni,“ segir Birgitta brosandi. „Ég segi því án ábyrgðar að það verði meiri framlög frá ríkinu en hafa ver- ið að undanförnu.“ Heildin skiptir mestu máli Hvað verður um íbúðarhúsnæðið sem tilheyrir safninu og er heimili þitt? „Í raun og veru verður mjög lítil „Alltaf viljað sýna hvað í okkur býr“  Listasafn Sigurjóns Ólafssonar var gefið Listasafni Íslands í síðustu viku Tímamót Birgitta Spur stofnaði Listasafn Sigurjóns Ólafssonar fyrir tæpum þrjátíu árum. Sigurjón Ólafsson fæddist á Eyrarbakka árið 1908 og hlaut sína fyrstu tilsögn í myndlist hjá Ásgrími Jóns- syni listmálara og síðar Einari Jónssyni mynd- höggvara. Hann hóf nám í Konunglegu akademíunni í Kaupmannahöfn árið 1928 en þar lærði verðandi eig- inkona hans, Birgitta Spur, einnig höggmyndalist á ár- unum 1952-54. Sigurjón hlaut skjótan frama erlendis og þegar hann sneri heim að loknu stríði ásamt eiginkonu sinni, Birgittu Spur, varð hann meðal brautryðjenda abstraktlistar á Íslandi. Jafnframt var hann talinn einn helsti portrettlistamaður sinnar samtíðar. Eftir Sigurjón liggja á annan tug útilistaverka og veggskreytinga í Reykjavík. Stærst verka hans eru án efa lágmyndirnar á stöðvarhúsi Búrfellsvirkjunar, sem hann vann á sjöunda áratugnum, en þekktari eru ef til vill Öndvegissúlurnar við Höfða, styttan af séra Friðriki við Lækjargötu og Íslandsmerki á Hagatorgi. Sigurjón andaðist 20. desember árið 1982 og tveim- ur árum síðar stofnaði Birgitta einkasafnið Listasafn Sigurjóns Ólafssonar. Safnið var opnað almenningi þann 21. október 1988 þegar Sigurjón hefði orðið átt- ræður. Á vefsíðu safnsins, www.lso.is, má finna skrá yfir öll verk Sigurjóns Ólafssonar ásamt nánari upplýsingum um safnið. Einstakur portrettlistamaður ÆVIÁGRIP SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Sigurjón Ólafsson Kristín Björk Kristjáns-dóttir eða Kira Kira hef-ur verið lengi að, allt fráþví að Tilraunaeldhúsið var hvað virkast á síðasta áratug síð- ustu ald-ar þar til nú. Nýjasta afurð- in er plat-an Feathermagnetik sem kemur út á vegum þýsku útgáfunnar Morr sem hefur verið iðin við að koma íslenskri tónlist á framfæri á Tilrauna- starfið heldur áfram Geisladiskur Kira Kira - Fethermagnetik bbbnn HALLUR MÁR TÓNLIST Fáðu garðsláttinn í áskrift og slakaðu á í sumar Sími 571 2000 | hreinirgardar.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.