Morgunblaðið - 25.06.2012, Síða 27

Morgunblaðið - 25.06.2012, Síða 27
breyting á strúktúr safnsins. Nú verður sjálfseignarstofnunin lögð niður og færð sem gjöf til Listasafns Íslands. Íbúðin er því eign safnsins en ég bæ að búa hérna á meðan ég vil og get. Þegar ég treysti mér ekki til þess lengur verður íbúðinni breytt í gestaíbúð sem ég og börnin mín get- um sótt um að búa í á meðan höf- undarétturinn er í gildi, til ársins 2053,“ segir Birgitta og bætir við að húsið sé henni sérstaklega kært. „Húsið hefur sérstaka sögu því Ragnar í Smára lét reisa það fyrir okkur þegar Sigurjón var berkla- veikur á Reykjalundi árið 1961.“ Kemur þú til með að hætta störf- um fyrir safnið? „Ég fæ leyfi til að vera sérstakur ráðgjafi og auðvitað verður eitthvað aðlögunartímabil þar sem ég get vonandi látið eitthvað gott af mér leiða,“ segir Birgitta. Hvað hyggst þú taka þér fyrir hendur? „Ætti ég kannski að fara í nám?“ segir Birgitta hlæjandi. „Nei, ég er ekki komin það langt. Það er mikil vinna eftir og við eigum eftir að klára ýmsa pappírsvinnu sem ég held að gæti tekið nokkra mánuði og jafnvel heilt ár. Byrjum á því að minnsta kosti.“ Er eitthvað sem þig langar að gera frekar en annað? „Eftir að hafa búið með listamanni í svo mörg ár við þau kjör sem lista- menn höfðu þá og margir hafa enn hef ég lært að maður getur ekki endilega hugsað alltaf um eigin hags- muni,“ bendir Birgitta á. „Ég þurfti að gefa ýmislegt upp á bátinn enda með stóra fjölskyldu. Þá þarf maður að hugsa fyrst og fremst um heild- ina,“ segir Birgitta en þau Sigurjón eiga saman fjögur börn. „Fyrst átt- um við heima í bragga með að ynd- islega náttúru í kring en mjög erfitt umhverfi,“ útskýrir hún. „Það er nefnilega þannig að ef maður reynir að gera hlutina vel þá er það full- nægjandi í sjálfum sér. Ég hef aldrei leyft mér að hugsa um hvað ég gæti verið að gera annað. Annars hef ég engar áhyggjur af framhaldinu, það hefur aldrei vantað verkefnin og ég mun alltaf hafa nóg fyrir stafni,“ seg- ir Birgitta og klárar úr bollanum. „Á ég að byrja að hafa áhyggjur af því á níræðisaldri?“ segir hin sjarmerandi Birgitta og hlær. Ég þakka kærlega fyrir kaffið og segi: „Nei, það væri al- gjör synd að byrja á slíku núna.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg MENNING 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2012 undanförnum ár- um. Platan er til- raunakennd og í flestum tilvikum er erfitt að festa fing- ur á eitthvert ákveðið form. Hljóðin læðast inn og út eitt af öðru, skapa þannig andrúmsloft og stemn- ingu frekar en hefðbundin lög, sjaldnast er ákveðinn taktur sem knýr þau áfram. Á því eru þó und- antekningar, sér í lagi þegar líður á hlustunina. Hamar og Welcome High Frequency Spirits United eru formfastari og keyrð áfram af mek- anískum takti sem er oft ágætlega útfærður og þar að auki læðast inn melódíur sem vinna á og verða kunn- uglegar við endurtekna hlustun. Þessi lýsing ætti líklega að duga flestum til að átta sig á að tónlist Kiru Kiru er fyrir þá sem eru leit- andi og þurfa ekki að styðja sig við hefðir og form í hlustuninni. Oft og tíðum gengur dæmið líka vel upp og hljóðmyndin er vel heppnuð. Kristín fær marga hljóðfæraleikara til liðs við sig og þeirra innlegg fellur ágæt- lega að þeirri mynd sem búið er að draga upp. Hættan við þessa tegund tónlistar er að tilraunirnar eru í næsta nágrenni við tilgerðina en á Feathermagnetik næst sem betur fer að mestu leyti að forðast þá slóð. Fín plata fyrir fyrir þá sem eru lengra komnir í tilraunahlustun. Ljósmynd/Antje T

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.