Morgunblaðið - 12.07.2012, Page 16

Morgunblaðið - 12.07.2012, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2012 Síðumúla 11, 108 Reykjavík, sími 568 6899, vfs@vfs.is www.vfs.is Hágæða ítalskar háþrýstidælur frá Lavor Best Mótor: 2800 W Þrýstingur: 160 bar 8,5 L/min 8m barki Fjórir mismunandi spíssar fylgja ásamt túrbóspíss Verð: 79.900 kr Lavor Tomcat Mótotor: 1600 W Þrýstingur: 110 bar 6 L/min Túrbóspíss fylgir Verð: 18.900 krLavor Skipper Mótor: 1900 W Þrýstingur: 130 bar 7 L/min 8m barki Túrbóspíss fylgir Verð: 29.900 kr Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Skóla- og frístundasvið Reykjavík- ur hefur í sumar boðið upp á alls kyns námskeið á frístundaheim- ilunum fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára, en svokallaðir smíðavellir hafa verið þar á meðal. Smíðaverkstæði fyrir börn fædd 1999-2003 hefur verið starfrækt við Frístundamiðstöðina Ársel í sumar, en verkstæðinu verður lokað á föstudaginn. Verkstæðið er undir daglegri stjórn leiðbeinenda sem aðstoða börnin við smíðarnar og eru efni og verkfæri á staðnum. „Þetta er ágætlega vinsælt hjá krökkunum. Við erum með um 50 krakka í ár. Þeir eru aðallega að smíða kofa. Svo eru menn líka að fikta við smíðar og það er allt frá dótaflugvélum og sverðum yfir í hillur og borð,“ segir Óskar Örn Ásgeirsson, starfsmaður til margra ára við Frístunda- miðstöðina Ársel. Mæta ár hvert Aðsóknin hefur verið heldur meiri í sumar en seinustu ár en tryggur hópur ungra smiða mætir ár hvert. „Það eru sumir sem koma hvert sumar en við fáum að sjálfsögðu ný andlit líka,“ segir Óskar. Alls starfa um fjórir leiðbein- endur á Smíðavellinum í Árseli, en að sögn Óskars er kostnaðurinn við starfið og hráefnið ekki hár. „Ég held að hver dagur kosti okk- ur um 45 krónur. Þetta er opið í fimm vikur og þetta er klárlega ódýrasta námskeiðið,“ segir hann. Frjáls mæting Ekki er nauðsynlegt að skrá sig á námskeið á Smíðavöllum og því hefur krökkunum verið algerlega frjálst hvenær þeir mæta og fara. „Krakkarnir bara koma þegar þeir vilja og fara þegar þeir vilja. Þeir eru margir óvanir svona skipulagi. Við erum t.a.m. ekki með neina skipulagaða matmálstíma og þeir eru stundum svolitla stund að ná því,“ segir Óskar. Að smíðinni lokinni kjósa flestir krakkarnir að taka kofana með sér heim. „Þetta eru um tíu kofar sem ná að klárast og ég býst við að flestir taki þá með sér heim,“ segir Óskar og kveður sáttur við sumarið á Smíðavöllum. Flott Ekki er hægt að kvarta yfir veðri en sól og blíða hefur ríkt í sumar. Völundarsmíð Aðsóknin hefur verið heldur meiri í sumar en seinustu ár en hópur ungra smiða mætir ár hvert. Kofarnir eru tíu talsins en flestir taka þá heim. Kveður sáttur við sumarið á Smíðavöllum Vísindamenn við Háskóla Íslands og Landspítala fengu á dögunum birta grein í einu virtasta vísindariti heims, Journal of Thoracic Oncology, á sviði krabbameinslækninga. Greinin byggist á rannsóknum á árangri skurðaðgerða við lungna- krabbameini á 15 ára tímabili hér á landi. Rannsóknirnar sýna að árang- ur slíkra aðgerða er mjög góður í al- þjóðlegum samanburði. Enn fremur hafa lífslíkur þeirra sem gangast undir slíkar aðgerðir batnað umtalsvert á síðustu árum, að því er kemur fram í fréttatilkynn- ingu. Lungnakrabbamein er annað al- gengasta krabbameinið sem greinist hjá báðum kynjum á Íslandi, en ár- lega greinast hátt í 150 einstaklingar með meinið. Helsta úrræðið við lungnakrabbameini er skurðaðgerð þar sem æxlið er fjarlægt ásamt nær- liggjandi lungnavef. Þessar aðgerðir eru oft umfangsmiklar og hafa stund- um fylgikvilla. Í grein íslensku vísindamannanna í tímaritinu Journal of Thoracic Onco- logy er lýst könnun á árangri þessara aðgerða hér á landi á árabilinu 1994- 2008. Greinin byggist á meistarverk- efni Húnboga Þorsteinssonar, lækna- nema og nú kandídats á Landspítala, sem vann verkefnið undir handleiðslu Tómasar Guðbjartssonar prófessors. Aðrir höfundar voru læknarnir Steinn Jónsson prófessor, Helgi J. Ís- aksson, Ásgeir Alexandersson, Guð- rún Nína Óskarsdóttir og Rut Skúla- dóttir. Góður árangur í krabbameinsað- gerðum á Íslandi  Lífslíkur sjúklinga hafa batnað umtalsvert Morgunblaðið/Ásdís Skurðaðgerð Góður árangur hefur náðst í krabbameinsaðgerðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.