Morgunblaðið - 23.07.2012, Qupperneq 2
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Heimsókn sem konurnar í kaffistof-
unni Gamla Rif fengu einhvern tím-
ann á sumrinu 2008 hefur leitt til
þess að fjöldi erlendra gesta leitar
kaffistofuna uppi til að fá sér fiski-
súpu og heimabakað brauð og kökur.
„Þegar við opnuðum 2009, 1. júní
eins og venjulega, hékk fólk hér á
húninum með nýja útgáfu af Lonely
Planet ferðabókinni þar sem mælt er
með þessum stað,“ segir Anna Þóra
Böðvarsdóttir sem rekið hefur
Gamla Rif í elsta íbúðarhúsinu í Rifi
á Snæfellsnesi með Sigríði Margréti
Vigfúsdóttur frá árinu 2007. Frá því
fjallað var um kaffistofuna í Lonely
Planet hefur verið stöðugur straum-
ur erlends ferðafólks sem beinlínis
leitar hana uppi og nú er kaffistofan
einnig komin í þýska ferðabók. Anna
Þóra tekur fram að þær hafi ekkert
orðið vör við gestinn frá Lonely
Planet enda skiljist þeim að ferða-
bókahöfundarnir láti ekki vita af sér
og mæti eins og hverjir aðrir gestir
og segi síðan frá upplifun sinni. „Nú
veit ég að svona kynningar eru ekki
keyptar auglýsingar,“ segir hún.
„Við erum að keppast við að
standa undir væntingum,“ segir
Anna Þór um viðbrögð við aukinni
umferð.
Anna og Sigríður vinna sjálfar í
kaffistofunni og njóta aðstoðar fjöl-
skyldu sinnar, til dæmis dætra og
tengdadætra. Sérstaða staðarins er
fiskisúpa og heimabakað brauð og
kökur.
Góða veðrið og orðsporið
Margir ferðamenn hafa lagt leið
sína um Snæfellsnes í sumar, mest
erlendir en Anna Þóra segir að Ís-
lendingarnir séu farnir að sjást.
Aukning hefur verið á Gamla Rifi
á hverju ári frá því opnað var. Sú
þróun varð einnig í júní. „Ætli það sé
ekki góða veðrið og orðsporið. Fólk
er að koma aftur, einnig útlendingar
sem hafa fengið ábendingar um okk-
ur heima hjá sér. Við erum sér-
staklega ánægðar með það,“ segir
Anna.
Gamla Rif er gamli bærinn í Rifi
og landshöfnin og íbúðabyggðin er í
landi þess. Langt er síðan bóndi bjó í
Rifshúsinu og það hefur gegnt mörg-
um hlutverkum síðustu áratugi.
Þannig var vélsmiðja í því áður en
Anna Þóra og Sigríður Margrét
breyttu því í kaffihús.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kaffistofa Anna Þóra Böðvarsdóttir er ánægð með hversu reksturinn í
Gamla Rifi spyrst vel út en erlendir gestir leita staðinn uppi.
Fiskisagan flýgur
Heimsókn frá handbókarhöfundi kom kaffistofunni
Gamla Rifi á kortið Erlendir ferðamenn leita staðinn uppi
Morgunblaðið/Einar Falur
Látur Fjöldi sela spókar sig á eyri við ós Sigríðarstaðavatns í Húnaflóa. Þar
er eitt helsta selalátur á Vatnsnesi og skiptir fjöldi selanna oft hundruðum.
Hún sagði að bæði heimamenn og
erlendir og innlendir ferðamenn
hefðu tekið þátt í talningunni sem fór
fram á stórstraumsfjöru. Sumir koma
ár eftir ár í talninguna.
Sandra telur seli í helstu látrunum
á Vatnsnesi á tveggja vikna fresti all-
an ársins hring, þegar stórstraums-
fjara er. Helstu látrin eru við Sigríð-
arstaðaós og Bjargós, í Hindisvík, á
Krossanesi og Illugastöðum. Hún
sagði að á þessu svæði væri aðallega
landselur og einn og einn útselur.
Sandra sagði að áhugi ferðamanna á
selaskoðun ykist stöðugt.
gudni@mbl.is
Um 40 sjálfboðaliðar tóku þátt í sela-
talningu Selaseturs Íslands á um 100
km strandlengju Vatnsness og Hegg-
staðaness í Húnaþingi í gær. Nið-
urstöður talningarinnar liggja fyrir í
dag en talningahópar hafa frest til kl.
17 til að skila niðurstöðum.
Árleg selatalning hefur farið fram
á Vatnsnesi frá 2007 og einnig á
Heggstaðanesi frá 2009. Í fyrra sáust
1.033 selir í talningunni. Sandra
Granquist, dýraatferlisfræðingur hjá
Selasetrinu á Hvammstanga og
Veiðimálastofnun, sagði að ekki hefði
viðrað mjög vel til talningarinnar í
gær.
Selatalningin mikla
fór fram í gær
Áhugi ferðamanna á selum eykst stöðugt
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Tilboð
:
Fólksbíll – 6500,-
(fullt verð 9000,-)
Jepplingur – 8000,-
(fullt verð 12.000,-)
Pantaðu alþrif strax í dag
Handþvottur / Handbón
Er bíllinn þinn skítugur eftir helgina?
BÓNSTÖÐIN
DALVEGI 16C
Sími 571-9900 / 695-9909
Allir farþegar sem voru á biðlistum
með Herjólfi í gær komust til lands
með síðustu tveimur ferðum skips-
ins. Eins tókst að flytja alla bíla
sem biðu flutnings, að sögn Gunn-
laugs Grettissonar, rekstrarstjóra
Herjólfs.
„Það er ekkert eftir, það náðist
að sópa allt upp,“ sagði Gunnlaugur
í gærkvöldi þegar Herjólfur var far-
inn frá Eyjum í síðustu ferð dags-
ins.
Tvær ferðir Herjólfs til og frá
Landeyjahöfn féllu niður um miðjan
dag í gær vegna of mikillar öldu-
hæðar við Bakkafjöru. Herjólfur
sigldi fyrstu ferð dagsins í gær kl.
8.30 frá Vestmannaeyjum og úr
Landeyjahöfn klukkan 10. Ferðin
frá Eyjum kl. 11.30 var felld niður
og skipið sneri frá Landeyjahöfn í
ferð sem lagt var upp í kl. 14.30.
Herjólfur komst svo í Landeyjahöfn
síðdegis og í gærkvöldi.
gudni@mbl.is
Ölduhæð við Bakkafjöru
raskaði áætlun Herjólfs
Allir farþegar og bílar komust til lands frá Eyjum í gær
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Landeyjahöfn Aldan gekk hátt upp á garðana þegar Herjólfur sigldi inn.
Í gær voru samtals fimm varðskip
við festar í Reykjavíkurhöfn en þar
mátti sjá öll íslensku varðskipin
þrjú auk tveggja danskra varð-
skipa, Hvidbjørnen og Ejnar Mikk-
elsen.
Á myndinni sést Ejnar Mikkelsen
en í bakgrunni sjást íslensku varð-
skipin við bryggju.
Fimm varðskip í Reykjavíkurhöfn
Morgunblaðið/Eggert