Morgunblaðið - 23.07.2012, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.07.2012, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 205. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Linda Pé glæsileg með Clarkson 2. Karlmaður fauk við Álftavatn 3. Tjöldin fuku og brotnuðu 4. 100 afbókuðu vegna veðurspár »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Nýjar útsetningar Hafliða Hall- grímssonar á íslensku þjóðlögunum Móðir mín í kví, kví og Bí, bí og blaka verða frumfluttar á tónleikum í Há- teigskirkju kl. 20 annað kvöld. Hafliði tileinkar þær Þorgerði Ingólfsdóttur og söngfuglunum í Hamrahlíð. Morgunblaðið/Golli Þjóðlagaútsetningar Hafliða frumfluttar  Elsa Waage contra-alt, Elín Ósk Óskarsdóttir sópran og Peter Maté píanóleikari flytja dúetta og aríur, meðal ann- ars eftir Jón Björnsson, Mend- elssohn, Rossini, Offenbach og Brahms, á næstu sum- artónleikum Listasafns Sigurjóns kl. 20.30 annað kvöld. Dúettar og aríur í Listasafni Sigurjóns  Píanóleikarinn Ingi Bjarni Skúlason heldur tónleika í Þjóðmenningarhús- inu fimmtudagskvöldið 26. júlí og hefjast þeir kl. 20.30. Með hon- um leika Gunnar Hrafnsson á bassa, Scott McLemore á trommur og Ari Bragi Kárason spilar á trompet í nokkrum lögum. Þetta verða kveðjutónleikar þar sem Ingi Bjarni er á leið til Hol- lands í nám. Ingi Bjarni kveður í Þjóðmenningarhúsi Á þriðjudag Norðan- og norðvestan, 8-13 m/s, mun hvassari á annesjum austantil, en lægir NV-lands síðdegis. Rigning á norðan- verðu landinu og SA-lands fram á kvöld, en léttir til suðvestantil. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 8-15 vestantil á landinu, hvassast við NV-ströndina, en hvessir við NA-ströndina í kvöld. Áfram rign- ing, en léttir til S- og SV-lands þegar líður á daginn. Hiti 9 - 17 stig. VEÐUR Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, útvegaði Aroni Pálmarssyni, landsliðsmanni í handbolta, besta lækni sem mögulega var hægt að fá til að líta á hnémeiðslin sem gætu hugs- anlega aftrað Aroni frá því að fara á Ólympíuleikana. Aron fer í skoðunina í dag og flýgur aftur til Ís- lands seinna í kvöld. Það kemur svo í ljós í vik- unni hvort Aron kemst til London. »1 Alfreð kallaði á Aron í skoðun „Maður er alltaf undir pressu með að skora þegar maður kemur í svona lið en ef ég næ ekki að höndla þá pressu mun ég aldrei geta yfirgefið landið til að fara í betra lið,“ sagði KR-ingurinn Gary Martin að loknum fyrsta leik sínum fyrir félagið á móti Stjörnunni þar sem hann skoraði í 1:1 jafntefli liðanna. »3 Gary Martin stimplaði sig inn hjá KR Íslenska karlalandsliðið í handknatt- leik mætir í kvöld Argentínu í öðrum vináttulandsleik þjóðanna. Leikurinn verður sá síðasti undir stjórn Guð- mundar Þórðar Guðmundssonar á heimavelli. Liðin mættust í Kapla- krika á laugardaginn og þá sigraði Ís- land 27:23. Íslenska liðið lék án Ólafs Stefánssonar, Arons Pálmarssonar og Bjarka Más Elíssonar. »8 Síðasti heimaleikur Guðmundar ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Bandarísku hjónin Scott og Karen Staley frá Detroit í Michigan eru sannir Íslandsvinir. Sumarfríinu í ár verja þau hjá hjónunum Helgu og Þorgrími á Erpsstöðum í Dalabyggð þar sem Karen lærir ostagerð á rjómabúinu og Scott aðstoðar við heyskapinn, ásamt því að glíma við íslenskunám hjá kennara í sömu sveit. Þau hafa heillast af landi og þjóð og draumur þeirra er að geta eytt elliárunum á Íslandi og Ítalíu og ferðast meira um heiminn. Karen er mikil áhugamanneskja um ostagerð og hefur kynnt sér heimagerða osta og lífræna fram- leiðslu bæði hér á landi og á Ítalíu. Þannig komst hún í kynni við hjónin á Erpsstöðum árið 2009. Þau höfðu nokkru áður kynnst landinu vegna starfa Scotts hjá Ford-verksmiðj- unum í Bandaríkjunum. Þar er hann yfirverkfræðingur hjá þróunardeild Ford og telst mjög framarlega í flokki þegar kemur að þróun vetnis- og rafbíla í heiminum. Sameina vinnu og áhugamál „Við komum hingað fyrst árið 2003 í tengslum við ráðstefnu um vetnisbílavæðinguna og þar kynntist ég Jóni Birni Skúlasyni hjá Íslenskri nýorku. Síðan þá hef ég verið í góðu samstarfi við fyrirtækið og fleiri að- ila hér á landi eins og Brimborg. Við höfum nokkrum sinnum komið hing- að síðan og ferðast um landið, um leið og við höfum unnið að okkar verkefnum og áhugamálum,“ segir Scott en sumarið 2010 dvöldu þau hjónin á Erpsstöðum í tvær vikur. Þá var osta- framleiðslan að hefjast eft- ir að Erpsstaðabændur höfðu þróað sig vel áfram með ís og skyr. „Ég hef að- stoðað þau Helgu og Þor- grím við að þróa ost sem eldist vel og kynnt fyrir þeim kúmenosta frá Hol- landi og víðar. Það var gaman að koma núna og sjá að þau eru komin vel af stað með kúmenostana,“segir Karen, sem er viðskiptafræði- menntuð og starfaði lengi hjá Gene- ral Motors, eins og kemur fram hér til hliðar, eða í 18 ár til ársins 2000. Eftir nokkur ár í starfi fyrir góð- gerðasamtök ákvað hún árið 2009 að skipta alfarið um starfsvettvang og fór á kaf í ostagerð. Scott fer á eftirlaun í lok ársins og þeirra draumur er að ferðast um heiminn og dvelja síðan langdvölum hér á landi og á Ítalíu. „Ísland er al- veg dásamlegt land og hefur svo margt upp á að bjóða,“ segir Scott og Karen tekur undir það: „Hérna erum við í svo nánum tengslum við náttúruna. Fallegt landslagið heill- aði okkur og fólkið ekki síður.“ Elliárin á Íslandi og Ítalíu  Kynntust land- inu gegnum vetn- isbíla og ostagerð Morgunblaðið/Ómar Íslandsvinir Hjónin Karen og Scott Staley dvelja þessar vikurnar á bænum Erpsstöðum í Dalabyggð. Þeirra draum- ur er að verja elliárunum á Íslandi og Ítalíu. Hún lærir ítölsku og hann íslensku, til að geta túlkað fyrir hvort annað. „Að sjálfsögðu héldum við öllum viðskiptaleyndarmálum fyrir okk- ur,“ segir Scott og brosir en þegar þau hjón kynntust fyrst unnu þau hjá keppinautunum á bandarískum bílamarkaði, Ford og General Motors. Svo kom- ust þau að því fyrir tilviljun að yfirmenn þeirra voru hjón og unnu einnig hvort hjá sínu fyrirtækinu. Karen hætti hjá GM fyrir nokkrum árum, skipti alfarið um starfsvett- vang og vinnur nú við ostagerð og ráðgjöf í Detroit, með sérstaka áherslu á heimagerða osta líkt og unnir eru á Erpsstöðum. Áður en Scott kom að stjórnun rannsókna í þróunardeild Ford-verksmiðjanna í Dearborn, skammt frá Detroit, var hann prófessor í vélaverkfræði við háskóla í Miami. Þó að hann fari á eftirlaun fljótlega hyggst hann vinna við ráðgjöf og líklegt að hann leggi vetnis- og rafbílavæð- ingunni lið hér á landi næstu árin. Scott segir Ísland vera ákjósan- legan markað fyrir slíka þróun. Skiptust ekki á leyndarmálum UNNU Á SAMA TÍMA HJÁ KEPPINAUTUNUM FORD OG GM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.