Morgunblaðið - 23.07.2012, Blaðsíða 10
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Hátíðin tókst í alla staði ljóm-andi vel og var töluverðaukning á gestum til eyjar-
innar um helgina. Hingað komu rétt
um fimmtán hundruð manns en
fjöldinn hefur verið í kringum þús-
und síðustu ár. Mikil ánægja var með
hátíðina og höfðu nokkrir gestir orð
á því að þetta væri sko alvöru fjöl-
skylduhátíð, því hér fundu allir eitt-
hvað við sitt hæfi,“ segir Linda
María Ásgeirsdóttir hjá Ferðamála-
félagi Hríseyjar, en hún var einnig í
undirbúningsnefnd Skelja-
hátíðarinnar.
„Á föstudeginum var boðið upp
á óvissuferðir fyrir börn, unglinga og
fullorðna. Laugardagurinn var svo
aðaldagurinn en þá byrjaði Skel-
félagið dagskrána með því að bjóða
upp á rjúkandi bláskeljasúpu. Síðan
var „wipe out“ þrautakeppni fyrir
börn í fyrsta sinn og var hún gífur-
lega vinsæl. Heimir Ingimarsson
stjórnaði söngvarakeppni barna og
tókst hún alveg frábærlega vel.“
Örn og Árni Tryggva sungu
Linda María segir að ótal margt
fleira hafi verið í boði fyrir gesti há-
tíðarinnar. „Við bjuggum til úti-
rennibraut í brekkunni fyrir ofan
hátíðarsvæðið þar sem fólk lét sig
vaða í vatni og sápu, jafnt börn sem
fullorðnir. Litla kirkjutröppuhlaupið
var haldið í annað sinn, hjólböru-
formúlan var á sínum stað, Skralli
trúður leiddi fjöruferð og Skákfélag
Akureyrar var með útiskákmót.
Hinn árlegi ratleikur, sem Björn
Eiríksson hefur stjórnað myndar-
lega síðastliðin ár, var á sínum stað
Trúðar og traktorar
á Skeljahátíðinni
Hríseyingar kunna svo sannarlega að skemmta sér og gestum sínum en þeir héldu
nýlega hina árlegu fjölskylduhátíð sem kennd er við skeljar. Meðal annars bauð
Skelfélagið upp á rjúkandi bláskeljasúpu, margir fóru í hópakstur á dráttarvélum
og kvöldvaka og brekkusöngur vöktu verðskuldaða lukku á Skeljahátíðinni.
Gaman Útirennibrautin með vatninu og sápunni var mjög vinsæl.
Þrautir Krakkarnir tóku margir vel á því í „wipe out“ keppninni.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2012
Skoðaðu úrvalið
www.jens.is
Kringlunni og
Síðumúla 35
Brúðkaup 2012
Persónuleg þjónusta
og mikið úrval
úr eðalstáli skreyttur
íslenskum steinum
Íslensk hönnun
og handverk
Kökuhnífur 11.800.-
Borðbúnaður
Salattöng
17.800.-
Demantshringur með
10 punkta demanti
131.900.-
Handsmíðaðir hringar
úr 14 karata gulli
133.400.- parið
Ostahnífur
5.900.-
Smjörhnífur
5.900.-
Settu upp óskalista
hjá okkur og fáðu
15% af andvirði
þess sem verslað er
fyrir í brúðkaupsgjöf
frá Jens!
Fyrir þá sem ætla að leggja leið sína
austur á land í sumarfríinu er vert að
benda á vefsíðu svæðisins, fjarda-
byggd.is, en þar er hægt að kynna sér
hvað er þar í boði. Norðfjörður, Mjói-
fjörður, Eskifjörður, Reyðarfjörður,
Fáskrúðsfjörður og Stöðvarfjörður
eru þeir firðir sem tilheyra Fjarða-
byggð og er ótal margt skemmtilegt í
boði á þessu svæði. Til dæmis eru
mörg áhugaverð söfn á svæðinu sem
gaman er að heimsækja og má þar
nefna Sjóminjasafn Austurlands og
Steinasafn Sörens og Sigurborgar á
Eskifirði, Steinasafn Petru á Stöðvar-
firði, Íslenska stríðsárasafnið á Reyð-
arfirði, Fransmenn á Íslandi á Fá-
skrúðsfirði, Safnahúsið á Norðfirði
og Myndlistarsafn Norðfirðingsins
Tryggva Ólafssonar, Sjóminja- og
smiðjumunasafn Jósafats Hinriks-
sonar á Neskaupstað og Náttúru-
gripasafnið í Neskaupstað.
Vefsíðan www.fjardabyggd.is
Sjóminjasafn Austurlands Þar eru munir sem tilheyra sjósókn og ýmsu öðru.
Frábær söfn í Fjarðabyggð
Um næstu helgi fer fram hin árlega
Reykholtshátíð og full ástæða til að
hvetja landsmenn til að koma þar við
og njóta nærandi menningar. Reyk-
holtshátíð er alþjóðleg tónlistarhátíð
þar sem innlendir og erlendir tónlist-
armenn koma saman. Meðal annars
mun ein glæsilegasta óperusöngkona
Finna, Sirkka Lampimäki, flytja fjöl-
breytta efnisskrá með sönglögum og
óperuaríum. Einnig mun ein okkar
fremsta sópransöngkona, Þóra Ein-
arsdóttir, halda tónleika ásamt pí-
anóleikaranum Steinunni Birnu
Ragnarsdóttur og strengjum Reyk-
holtshátíðar.
Endilega...
...kíkið á Reyk-
holtshátíðina
Sópran Þóra Einarsdóttir söngkona.
Ein er sú bók sem er alger-
lega ómissandi á ferðalagi
um Ísland, en það er Vega-
handbókin. Hún á að baki
40 ára feril í bílum lands-
manna. Bókin hefur verið í
stöðugri uppfærslu og end-
urnýjun frá fyrstu útgáfu. Í
máli, myndum og með kort-
um, er ferðalangnum vísað
til vegar og hann fræddur á
ferð sinni um landið. Bókina
er einnig að finna á netinu
undir slóðinni www.icel-
androadguide.com. Hún
fæst á þremur tungumálum,
íslensku, ensku og þýsku,
bæði í prentuðu útgáfunni
og þeirri sem er á netinu.
Innlendir og erlendir ferða-
menn geta því nýtt sér
þessa frábæru bók á ferð
sinni um landið.
Vegahandbókin 2012
Ómissandi bók í ferðalaginu
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
...þú leitar og finnur