Morgunblaðið - 23.07.2012, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.07.2012, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2012 Þeir sem eru fæddir á þessum árstíma þekkja það að yfirleitt erenginn heima, allir eru erlendis eða úti á landi. Þegar ég varstrákur þá féllu nú afmælin oft niður, einmitt út af sumar- leyfum hugsanlegra gesta, og afmælin færðust yfir á haustin,“ segir Sindri Freysson rithöfundur sem í dag fagnar 42 ára afmæli sínu. Í til- efni dagsins ætlar hann að gera vel við sig í mat en stór veisla er hins vegar ekki á dagskrá. „Enda ekki stórafmæli – einungis 29 ára.“ Sindri minnist þess er hann hélt upp á fertugsafmæli sitt. Þeim degi eyddi hann að mestu inni á sjúkrastofnun með morfíngjöf í æð. „Ég ætlaði að byrja daginn á útreiðatúr á Snæfellsnesi, fara síðan á Snæ- fellsjökul, siglingu um Breiðafjörð og svo átti að vera veisla með vin- um og vandamönnum. En ég var kominn á sjúkrahús klukkan tíu um morguninn því hestaferðin endaði með mjög slæmu broti,“ segir Sindri en við fallið hlaut hann slæmt brot á handlegg. Í sumar hefur Sindri verið á léttu flandri um landið og m.a. farið norður í land þar sem hann naut þess að veiða í einni af þekktustu lax- veiðiám Íslands, Laxá í Aðaldal. „Mér finnst voða gaman að veiða og reyni að fara nokkuð reglulega,“ segir Sindri og bætir við að ekki sé alltaf nauðsynlegt að koma heim með fisk að loknum veiðidegi í Laxá. Stórbrotin náttúran í námunda við ána sér til þess að ferð þangað er alltaf þess virði. khj@mbl.is Sindri Freysson rithöfundur 42 ára Morgunblaðið/Kristinn Rithöfundur og veiðimaður Sindri Freysson hefur notið þess að veiða í Laxá í sumar en í dag mun hann gera vel við sig í mat. Morfíngjöf í æð á fertugsafmælinu Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Reykjavík Jón Óli fæddist 22. ágúst kl. 12.21. Hann vó 1.382 g og var 42 cm langur. Foreldrar hans eru Alda Jóns- dóttir og Arnþór Jónsson. Nýir borgarar Þau Rebekka Rut Hjálmarsdóttir 8 ára, Tómas Kristmundsson 7 ára og Viktor Örn Hjálmarsson 8 ára héldu tombólu fyrir utan Nettó í Grindavík og seldu dót sem þau söfnuðu með því að ganga í hús. Afraksturinn, 3.615 krónur, gáfu þau til Rauða krossins. Á myndina vantar Rebekku Rut. Hlutavelta við í miklar skipulagsbreytingar á vinnslu, dreifingu og rekstrarein- ingum mjólkuriðnaðarins. Þegar þær breytingar voru í höfn, taldi ég rétt að draga mig út úr þessum trún- aðarstörfum sem hafa verið fyr- irferðarmikil um árabil.“ Magnús H. Sigurðsson, bóndi í Birtingaholti, 70 ára Heima í garði Það verður ekki sagt að Magnús og Guðbjörg hafi ekki ræktað garðinn sinn heima í Birtingaholti. Við búskap í hálfa öld Stór hópur Magnús og Guðbjörg með fjölskyldunni, börnum, tengdabörn- um og barnabörnum. arformaður Auðhumlu MS, var stjórnarformaður SAM – Sambands afurðarstöðva mjólkuriðnaðarins og sat í stjórn Rannsóknarstofu mjólk- uriðnaðarins. Hann sat í hrepps- nefnd Hrunamannahrepps 1974-82. „Fyrir nokkrum árum réðumst M agnús fæddist í Birt- ingaholti í Hruna- mannahreppi og ólst þar upp í for- eldrahúsum við öll almenn sveitastörf þess tíma, á miklu tónlistar- og menningarheim- ili. Hann var í Barnaskólanum á Flúðum, í Héraðsskólanum á Laug- arvatni og lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1962. Magnús hóf búskap í Birtingaholti 1964 og tók við búi 1967 og hefur verið bóndi þar síðan, með kúabú og kartöflurækt. Elsti sonur hans, Ragnar, hefur nú tekið við kúabúinu en Magnús og kona hans stunda enn kartöfluræktina. Magnús sat í stjórn Ungmenna- félags Hrunamanna í nokkur ár, keppti í körfubolta með HSK á sín- um yngri árum og var valinn í lands- liðið í körfubolta. Magnús sat í stjórn Mjólkurbús Flóamanna og lengst af varastjórn- arformaður þess, sat í stjórn Mjólk- ursamsölunnar og var stjórn- arformaður hennar frá 1986, sat í varastjórn Osta- og smjörsölunnar um árabil, var fyrsti stjórn- „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.