Morgunblaðið - 23.07.2012, Side 4

Morgunblaðið - 23.07.2012, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2012 Skógarhlíð 18 sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. • Alicante Frá kr. 19.900 Allra síðustu sætin í júlí Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt verð á völdum dagsetningum til Alicante í júlí. Höfum einnig bætt við flugum til og frá Alicante í haust. Nú er tækifæri til að bregðast skjótt við og næla sér sæti á frábærum kjörum! Netverð frá kr. 19.900. Flugsæti á mann aðra leiðina með sköttum. Þórarinn Sigurjóns- son, fyrrv. alþing- ismaður og bústjóri í Laugardælum, lést 20. júlí, 88 ára að aldri. Þórarinn fæddist 26. júlí 1923, sonur hjónanna Sigurjóns Árnasonar og Sigríðar Kristjánsdóttur í Pétursey í Mýrdal. Að loknu búfræðiprófi frá Hvanneyri 1943 fékkst Þórarinn við marg- vísleg störf og rak um árabil viðgerðaverk- stæði í Pétursey. Þórarinn var bústjóri til- raunabúsins í Laugardælum frá stofnun þess 1952 til ársloka 1979. Hann sat í stjórn Verkstjóra- sambands Íslands frá 1963 til 1975. Í stjórn Kaupfélags Árnesinga frá 1962-1992, þar af formaður frá 1966. Í Stjórn Sambands íslenskra sam- vinnufélaga frá 1968- 1992. Þórarinn var alþing- ismaður frá 1974 til 1987 fyrir Framsókn- arflokkinn. Sat á þingi Alþjóðaþingmanna- sambandsins 1977- 1985. Í stjórn Fram- kvæmdastofnunar rík- isins 1980-1983. Formaður Þingvalla- nefndar 1980-1988. Að auki voru honum falin fjölmörg önnur trún- aðarstörf í atvinnu- og félagsmálum. Fyrir störf að landverndar- og landbún- aðarmálum var Þórarinn sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálka- orðu. Eftirlifandi eiginkona Þórarins er Ólöf I. Haraldsdóttir. Börn þeirra eru Sigríður, Haraldur, Kristín og Ólafur Þór. Andlát Þórarinn Sigurjónsson BAKSVIÐ Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Tveir flóttamenn voru gripnir þegar þeir reyndu að komast um borð í Brúarfoss síðastliðinn fimmtudag. Öryggisverðir Eimskips gripu menn- ina sem voru með svefnpoka inni á skilgreindu öryggissvæði. Upplýs- ingafulltrúi Eimskips segir mikinn kostnað fylgja því að vakta hafnar- svæðið og gagnrýnir yfirvöld fyrir að taka ekki fastar á þeim sem reyna að laumast úr landi með þessum hætti. Mikill kostnaður ,,Þetta var áttunda skiptið síðan í maí en það hafa verið miklu fleiri til- raunir þar sem við höfum náð að bægja mönnum frá áður en þeir kom- ust inn á öryggissvæðið. Oft á tíðum eru einhverjir fyrir utan svæðið og gefa þeim sem ætla í skipin upplýs- ingar í gegnum síma eða talstöð hve- nær best sé að hlaupa að skipinu. Þetta er 6-8 manna hópur, sem reynir stöðugt að komast í skip. Um 17 manns tengjast þessum tilraunum í heildina. Þeir reyna að dulbúast og blekkja okkur með alls kyns hlutum. Einn daginn eru þeir skeggjaðir og þann næsta eru þeir nauðrakaðir,“ segir Ólafur William Hand, upplýs- ingafulltrúi Eimskips. Árið 2009 fannst laumufarþegi þegar skip á vegum Eimskips var á leið til Ameríku. Skipið var komið 70- 80 sjómílur frá landi og var því snúið við eftir að laumufarþeginn uppgötv- aðist. Ólafur segir að gripið hafi verið til ráðstafana til þess að koma í veg fyrir að fleiri laumufarþegar komist um borð í skip á vegum Eimskips. „Það er mikill kostnaður sem fylgir þessu. Við höfum til að mynda sett upp hundruð myndavéla, bæði hás- kerpu- og næturmyndavélar. Eins erum við með auka mannafla í hvert skipti sem skip fer til Ameríku,“ seg- ir Ólafur. Brandari hvernig yfirvöld taka á þessu ,,Þetta hefur ekkert með þá inn- flytjendur sem sækja um pólitískt hæli að gera. Þetta eru menn sem nota landið sem stökkpall til þess að komast til annarra landa. Það er orðið brandari hvernig yfir- völd taka á þeim. Þeir hafa jafnvel sótt um hæli og fá greidda framfærslupeninga frá íslenskum skattgreið- endum. Þessa peninga nota þeir svo til þess að brjóta al- þjóðalög og reyna að komast úr landi. Svo er ekkert gert til þess að reyna að hindra þetta,“ segir Ólafur. Gripnir við að laumast í Brúarfoss  Eimskip hefur sett upp hundruð öryggismyndavéla Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bjargveiðimenn úr Vestmannaeyj- um fóru til Grímseyjar og háfuðu þar lunda til að geta haft þjóðarrétt Vestmannaeyinga á borðum á bjarg- veiðimannaballinu í haust. Líklega verður reyktur lundi ekki á margra borðum á komandi Þjóðhátíð vegna lundaveiðibanns í Vestmannaeyjum í sumar. Soðinn lundi, reyktur eða ferskur, reyttur eða hamflettur, hef- ur löngum verið eins konar þjóðar- réttur Vestmannaeyinga. Hlöðver Guðnason, formaður Bjargveiðimannafélags Vestmanna- eyja, sagði að félagsmenn myndu virða bann bæjaryfirvalda við lunda- veiðibanni í Vestmannaeyjum í sum- ar. Hann sagði bjargveiðimenn vera leiða yfir því að hafa ekki verið kall- aðir á fund bæjaryfirvalda þegar verið var að ræða um hvort veiða ætti lunda í sumar, en þeir höfðu lagt til takmarkaðar veiðar í vísinda- skyni. Þrjá tíma að veiða skammtinn „Ég var í Grímsey í nokkra daga. Það var æðislegt,“ sagði Hlöðver. Hann fór þangað ásamt þremur öðr- um úr Bjarnareyjarfélaginu en það sér um bjargveiðimannaballið í haust. „Við fengum leyfi Grímsey- inga til að koma og veiða ákveðinn skammt. Okkur var farið að gruna að það yrði ekki leyft að veiða hér í Eyj- um og fórum á stúfana til að redda okkur lunda. Við veiddum skammt- inn á þremur tímum.“ Hlöðver sagði að Vestmanna- eyingarnir hefðu notið mikillar gest- risni í Grímsey, en þetta var í fyrsta skiptið sem veiðimennirnir fjórir heimsóttu eyna. Gestgjöfunum hefur að sjálfsögðu verið boðið til Vest- mannaeyja á bjargveiðimannaballið. Hlöðver sagði að gríðarlega mikið líf væri í Grímsey og við eyna. Ótrúlega mikið fuglalíf „Við vorum agndofa yfir að sjá fuglalífið þarna. Það er ótrúlegt. Það var mikið af sílisfugli að bera í pysj- urnar. Við reyndum að háfa framhjá honum og veiða ungfugl og geldfugl. Það var greinilegt á fuglalífinu að það var mikil áta í sjónum. Kríurnar, álkurnar og lundinn voru að bera lítil síli inn á eyjuna í ungana. Það er ekkert sem segir manni að það sé eitthvað að þarna fyrir norðan,“ sagði Hlöðver. Hann sagði að ung- fuglinn hefði verið mikið á sjónum í kringum Grímsey og þar hefðu verið torfur af seiðum í sjónum. Hlöðver sagði að svo virtist sem svartfuglavarp hefði gengið vel í vor og sumar bæði í Grímsey og Vest- mannaeyjum. Hann sagði að mikið af svartfuglsungum væri komið á legg og út á sjó. Sóttu veislu- kostinn til Grímseyjar  Bjargveiðimenn fá lunda að borða Morgunblaðið/Eggert Lundar Lundinn hefur átt erfitt uppdráttar í Vestmannaeyjum. Lundaveiði ekki leyfð » Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja samþykkti 18. júlí að heimila ekki lundaveiði í Vestmannaeyjum í sumar. » Ákvörðunin var tekin í ljósi mjög bágs ástands stofnsins undanfarin ár. » Ráðið áréttar að lundaveiði í Eyjum er á forræði bæjar- yfirvalda og verður tekin ákvörðun um veiðar árlega. „Það varðar allt að fimm ára fangelsi að vera inni á öryggis- svæðum flugvalla. En það virðist ekki vera eins skýrt þegar kemur að hafnarsvæðum. Til þess þarf reglugerðarbreytingu,“ segir Kristín Völundardóttir forstjóri Útlendingastofnunar. Hún segir ekki óalgengt að hælisleitendur hverfi af landi brott án þess að vitað sé um afdrif þeirra. „Það er alltaf hópur fólks sem fer án þess að við vitum af því. En mér finnst mjög ólíklegt að fólk fari af landi brott sem laumufarþegar án þess að við vitum af því. Við fáum alltaf tilkynningar um það frá skipafélögum ef einhver hefur komið með þeim inn í viðkomandi land. Í fyrra tókst tveimur að laumast af landi brott með skipi,“ segir Kristín. Ekki skýr refsiákvæði LÍTIÐ UM LAUMUFARÞEGA Kristín Völundardóttir Brúarfoss Tveir flóttamenn reyndu að komast um borð í Brúarfoss áður en skipið hélt til Ameríku. Mikill kostn- aður fylgir því að vakta hafnarsvæðið vegna flóttamanna, að sögn upplýsingafulltrúa Eimskips. Erpur Snær Hansen, líffræðingur og sviðsstjóri vistfræðirannsókna hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, er í leiðangri um landið að greina lundavarp. Þegar Morgunblaðið náði tali af honum var hann búinn að kanna ástandið á sex stöðum af tólf. „Við fórum fyrr í sumar til þess að sjá hve margir verpa. En núna erum við að skoða það hversu hátt hlutfall lifir af,“ segir Erpur. Búið er að kanna ástandið í Vestmannaeyjum, Dyrhóley, Papey, Ingólfshöfða, Borgarfirði eystri. „Í Vest- mannaeyjum og Dyrhóley er byrj- aður ungadauði. Í Ingólfshöfða er allt dautt, það gerðist í júlí. Helm- ingurinn er dauður í Papey og margt bendir til þess að allt drepist þar. Hins vegar lítur allt vel út í Borg- arfirði eystri og í Lundey á Skjálf- anda sem við erum í núna,“ segir Erpur. vidar@mbl.is Nokkur ungadauði í lundavarpi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.