Morgunblaðið - 23.07.2012, Side 12

Morgunblaðið - 23.07.2012, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2012 PI PA R\ TB W A • SÍ A • 12 18 16 www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind LÁTTU FAGMENN META GULLIÐ Sérstaða okkar hjá Jóni og Óskari er sú að við höfum keypt og selt gull í 41 ár og búum því yfir mikilli þekkingu, reynslu og fagmennsku á þessu sviði. Við kaupum til endurvinnslu allar tegundir af gullskartgripum, gamla og nýja, gullúr, tanngull, gullpeninga, hvers kyns silfur og demanta í betri skartgripagæðum. Við bjóðum gott og alþjóðlega samkeppnishæft verð fyrir gripina og framleiðum úr öllu gulli sem við kaupum. Þannig spörum við gjaldeyri. Komdu til okkar á Laugaveg 61 og leyfðu okkur að veita þér faglega ráðgjöf sem tryggir að þú færð rétta greiningu á þínum verðmætum. Það skiptir mestu máli. Við staðgreiðum allt gull en áskiljum okkur rétt til að biðja um persónuskilríki. Aðeins í verslun okkar að Laugavegi 61, virka daga milli kl. 10–18. Góð séraðstaða þar sem gull er metið í ró og næði. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Kröpp lægð, sem gekk yfir landið sunnan- og vestanvert síðdegis á laugardag, olli ferðafólki nokkrum vandræðum. Hálendisvakt björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar fékk nokkur útköll vegna óveðurs- ins. Hóparnir upplýstu ferðamenn á laugardag um það sem í vændum var svo þeir gætu gert viðeigandi ráðstafanir. Þá féllu tvær ferðir Herjólfs til og frá Landeyjahöfn niður um miðjan dag í gær vegna mikillar ölduhæðar við Bakkafjöru. Ferðamaður fauk í vindhviðu Tilkynnt var um slasaðan ferða- mann við Álftavatn um kvöldmat á laugardag. Sá hafði fokið í vindhviðu og meiðst á ofanverðu læri. Við Álftavatn var þá um 30 m/s vindur og tjöld farin að fjúka. Ekki var hægt að sækja manninn með þyrlu vegna hvassviðrisins. Hópur frá Hálendisvaktinni fór úr Landmannalaugum á staðinn ásamt annarri sveit sem var nálæg og var slasaði maðurinn fluttur nið- ur í Fljótshlíð þar sem sjúkrabíll tók við honum, samkvæmt frétt Slysa- varnafélagsins Landsbjargar. Um miðnætti á laugardagskvöld fór tjaldvagn út af nálægt Hvera- völlum. Hálendisvaktin á Kili veitti aðstoð við að koma tjaldvagninum aftur upp á veg og að festa hann við bílinn. Um svipað leyti aðstoðaði Hálendisvaktin í Landmannalaug- um hóp um 20 franskra ungmenna á aldrinum 15-17 ára. Tjöld þeirra höfðu fokið og brotnað í óveðrinu og voru ungmennin orðin köld og hrak- in. Þau fengu hlý föt og íslenska kjötsúpu til að orna sér og skjól í tjaldi. Þórður S. Kristjánsson, björgunarbátur Ársæls í Reykjavík, var kallaður út undir miðnætti á laugardagskvöld vegna norskrar skútu á leið til Reykjavíkur sem komst ekki til hafnar vegna elds- neytisskorts. Skútan var komin upp undir Hvalfjörð en gat ekki nýtt seglin til að sigla til Reykjavíkur vegna veðurs og vindáttar. Björg- unarbáturinn tók skútuna í tog og kom með hana til hafnar um klukk- an tvö í fyrrinótt. Um þrjúleytið í fyrrinótt var hóp- ur Hálendisvaktarinnar á Sprengi- sandi kallaður út vegna ferðamanna sem voru á biluðum bíl við Trölla- dyngju norðan Gæsavatnaleiðar. Hálendisvaktin kom til hópsins um þremur tímum síðar og kom fólkinu í skjól. Einnig fékk það aðstoð við að útvega dráttarbíl til að koma bilaða bílnum til byggða. Óveðrið olli víða usla og ferðamönnum skráveifu Ljósmynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg Skjól Tjöld franskra ungmenna fuku í Landmannalaugum. Þau gæddu sér á kjötsúpu í tjaldi Hálendisvaktar SL.  Hálendisvakt björgunarsveita fékk nokkur útköll  Skútu komið til aðstoðar Eldur kom upp í íbúð í fjölbýlis- húsi á Tálkna- firði í gær- kvöldi. Engan sakaði. Fjórar íbúðir eru í húsinu. Þrjár fjöl- skyldur voru heima þegar eldsins varð vart og komust allir út heilir á höldnu. Slökkviliðin frá Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal fóru í útkall- ið. Að sögn Davíðs Rúnars Gunn- arssonar, slökkviliðsstjóra á Tálkna- firði, er íbúðin mikið skemmd. Ekki er vitað hvort upptök eldsins voru af völdum rafmagns eða steik- ingar á eldavél. Unnið var að því í gærkvöldi að reykræsta íbúðina. Eldur í íbúð á Tálknafirði Benedikt S. Laf- leur synti í gær frá Hegranesvita inn í höfnina á Sauðárkróki og nefnir hann sundið Hegra- nessund. Vega- lengdin er lið- lega 5 km og var Benedikt tæpa þrjá tíma á leiðinni, en hann segir að enginn hafi synt þetta sund áð- ur. Hafgola gerði sundkappanum erfitt fyrir þegar hann var um það bil hálfnaður og því var hann leng- ur á leiðinni en hann hafði gert ráð fyrir, en hann áætlaði að sund- ið tæki tvo til tvo og hálfan tíma. Björgunarsveit Skagfirðinga fylgdi honum eftir allt sundið og hvatti hann til dáða. Æfingasund Benedikt segir að vegna hafgol- unnar hafi sundið jafnvel verið erfiðara en Grettissundið sem hann synti 2009. Þetta hafi verið æfingasund fyrir stærra verkefni og næsta æfingasund yrði Grettis- eða Drangeyjarsund. Synti frá Hegranes- vita að Króknum Benedikt S. Lafleur. Í haust verða tökur á nýrri heimildarmynd um fjárleitir á Rangárvallaafrétti en Rangvell- ingar hafa farið með fé á afréttinn síðan 1892, að undanskildum nokkr- um árum vegna eldgosa og nið- urskurðar af sökum sauðfjárveiki. Það er Guðmundur Árnason á Hellu sem er upphafsmaður og framleiðandi heimildarmyndar- innar og stendur undirbúningur nú á fullu yfir. Kvikmyndað í haustleitum Guðmundur hefur í sex ár farið sem smali á Rangárvallafrétt. Hann segir að byrjað verði að kvikmynda í haustferðinni í ár. Síðan verði unn- ið úr þeim tökum auk ýmiskonar heimildaöflunar. Stefnt er að því að myndin verði í kringum 50 mínútur. Guðmundur reiknar með að ferlið í allt geti tekið tvö ár. „Maður má ekki hugsa of skammsýnt, þetta tek- ur tíma,“ sagði Guðmundur Hann leitar nýs fjármagns til að kosta framleiðsluna sem hann áætl- ar að verði ein milljón króna í heild- ina. Hreppsráð Rangárþings ytra ákvað nýlega að styrkja verkefnið um 100.000 krónur. ipg@mbl.is Ljósmynd/Guðmundur Árnason Fjárleitir Til stendur að gera kvikmynd um fjárleitir á Rangárvallaafrétti. Heimildarmynd gerð um fjárleitir Vindur hefur ekki mælst meiri á sjálfvirku stöðvunum á Stórhöfða og í Vestmannaeyjabæ í júlí heldur en á laugardagskvöldið, að því er Trausti Jónsson veðurfræðingur sagði á bloggi sínu (trj.blog.is). Að sögn Veðurstofunnar mæld- ist 37,1 m/s hviða klukkan 21 á Stórhöfða en vindur var 30,9 m/s. Í Vestmannaeyjabæ var vindur kl. 21 19,1 m/s en 31,8 m/s hviða mældist þar. Mesti vindur í júlí á Stórhöfða í veðurskeyti fram að því var 35 m/s þann 21. júlí 1963. Rétt fyrir klukkan 21 á laugardags- kvöld mældist tæplega 40 m/s hviða á stöð Vegagerðarinnar í Hvammi undir Eyjafjöllum. Sólarhringsúrkoma í Bláfjöllum mældist 70,2 mm á laugardag en á sama tíma rigndi einungis 2,3 mm í Reykjavík, samkvæmt upplýs- ingum frá Veðurstofu Íslands. Fjöllin skýldu því borgarbúum. Vindmet á Stórhöfða í júlí BÁLHVASST VAR VÍÐA Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.