Helgafell - 01.05.1945, Blaðsíða 71
BÓKMENNTIR
65
Griegs. — Þessi útlagaljóÍS hans eru eðlilega
nokkuð misjöfn að gæðum frá listrænu sjónar-
miði, og bera sum þeirra merki þess, að þau
eru ort ,,á ferð og flugi“, og skáldið hefur
ekki gefið sér tíma til að liggja yfir þeim og
,,vinna“ úr þeim til hlítar. £n sameiginlegt
með þeim öllum, að þau lýsa eldheitri ætt-
jarðarást og ólgandi baráttuhug, og hafa ver-
ið norsku þjóðinni ómetanleg hvöt og afl-
gjafi í baráttu hennar heima og erlendis fyr-
ir endurheimt frelsis og mannréttinda. Og það
er hyggja mín, að seint muni Norðmönnum
gleymast snilldarkvæði eins og „Kaptein Mar-
tin Linge“, eða „V.iggo Hansteen", — ort
um verklýðsleiðtogann, er var náinn vinur
skáldsins, cn nazistar tóku af lífi, — eða
hið glæsilega og mikla kvæði til konungs
Norðmanna, er hefur, eins og bróðir hans í
Danmörku, reynzt þjóð sinni traustur leið-
togi og ávann sér aðdáun og virðingu allra
góðra manna, er hann leitaði sér hælis í skóg-
um Noregs, ásamt stjórn sinni, hundeltur af
morðvörgum Hitlers. — Víst cr um það, að
þessi yfirlætislausu ljóð Nordahls Griegs cru
og munu æ verða mikilvægur þáttur í hetju-
sögu Norðmanna og .sameiginleg eign
norsku þjóðarinnar, meðan hún er minnug
þeirra hörmunga, er hún hefur orðið að þola
í hildarleik þeirn, sem nú er að verða til lykta
leiddur í Evrópu. Og ckki sízt fyrir þessi
Ijóð er Nordahl Gricg nú, — þótt hann hyrfi
í hinar brennandi rústir Berlínar, -— aftur
kominn heim til ættjarðar sinnar, er hann
unni svo heitt, sem glæs.ilegur sigurvegari og
hefur öðlazt sess meðal ágætustu sona þjóð-
ar sinnar, — innst við hjarta hennar.
Nordal Grieg hafði ætlað sér að koma hing-
að til lands og sjá um útgáfu þessara ljóða
sinna, en féll frá áður en því varð við komið.
Það varð því annarra hlutskipti að búa bók-
ína undir prentun. Sendiherra Norðmanna
hér á landi, Aug. Esmarch, hefur skrifað
nokkur formálsorð, en Tómas Guðmundsson
fögur minningarorð um skáldið.
Má það vissulega teljast til merkari bók-
menntaviðburða hér á landi, að frumútgáfa
ljóða eftir erlent stórskáld birtist á vegum ís-
lenzks bókaforlags.
Bókin er prýðilega úr garði gcrð og káp-
an skreytt mynd af norsku landslagi eftir Ás-
grím Jónsson.
SIGURÐUR GRÍMSSON
Kvæði Snorra Hjartarsonar,
athyglisverðasta ljóðanýung ársins 1944, verða
að bíða umsagnar í næsta hefti, og ef til vill
verður notað þar sjaldgæft tækifæri til að fitja
upp á umræðum um þau við höfundinn sjálf-
an, í Bókmenntabréfi. — Þar mun einnig getið
Nýrra Ijóða Guðfinnu frá Hömrum. — M. Á.
TVÖ SMÁSAGNASÖFN
Litlar sögur um líf og dauða.
Þórir Bergsson: NÝJAR SÖGUR. Rvík.
Isaf. 1944. 246 bls. Kr. 25—, 55—.
Þórir Bergsson er af mörgum talinn meðal
kunnáttumannanna í þeim hópi, sem um þess-
ar mundir fæst við smásagnagerð á íslenzku.
Því verður ekki neitað, að sumar sagna hans eru
laglegar og bera vott um elju og góðan smekk.
Á hinn bóginn er hann einn þeirra höfunda,
sem að jafnaði er horinn ómengaðra lofi en
verðugt væri. Er raunalcgt til þess að vita, að
meinleysi ritdæmenda, misskilin kurteisi og ná-
ungakærleiki, ásamt fleiri borgarlegum hálf-
dyggðum, skuli taka höndum saman við mis-
jafnlega þroskaða dómgreind lesenda og enn
HELGAFELL 1945
stopulli sjálfsgagnrýni rithöfundanna. En sú
verður einatt raunin á, og er þá heldur ckki
ástæða t.il að undrast, þótt lítilla framfara verði
vart með hverri nýrri bók.
Það er skemmst frá þessari nýju bók Þóris
Bergssonar að segja, að hún stendur langt að
haki fyrra smásagnasafni hans. Sögurnar eru
20 að tölu, flestar örstuttar. Margar þeirra
eru í rauninni alls ekki sögur, heldur augna-
bliksmyndir, scm höfundur hefur ekki hirt um
eða tekizt að festa í ramnia, sem geri hvers-
dagslegt atvik í frásögur færandi. Dæmi þessa
eru sögurnar Kveikur, Aldrei og Lítil saga um
líf og danða. í öðrum missir hann aftur á móti
greinilega marks, svo sem í sögunni Nálar-
aitgað. Þar fer hann laglega af stað og virð-
5