Morgunblaðið - 09.08.2012, Síða 2
2 finnur.is 9. ágúst 2012
Dáðadrengurinn Friðrik Dór Jónsson hefur haft í nógu að snúast í
sumar. Framundan eru enn einir tónleikarnir en Friðrik verður í hópi
flinkra listamanna sem stíga á svið á útitónleikum Gleðigöngunnar.
Finnur sló á þráðinn og munaði Friðrik Dór ekki um að deila með
lesendum nokkrum skemmtilegum fróðleiksmolum.
1. Ég hef alla tíð haft mikla unun af því að borða.
Ég er eiginlega farinn að halda að ég sé mat-
arfíkill.
2. Ég hef aldrei náð því að færa áhuga minn
fyrir mat yfir í eldamennsku. Ég er þó mjög
fær í að elda mexíkóska grýtu úr pakka frá
Toro sem ég kaupi gjarnan í Fjarðarkaup á
fimmtudögum.
3. Mér þykir ótrúlega vænt um Ísland.
Sem tónlistarmaður fær maður mörg
tækifæri til að ferðast um landið og er
það eitt af því sem ég er þakklátastur fyr-
ir er varða starf-
ið
4. Fyrir ári hafði
ég aldrei komið
til Kaup-
mannahafnar. Í
dag hef ég komið
þangað sjö sinn-
um.
5. Á þremur fyrstu
árum ævi minnar
fótbrotnaði ég þrisvar. Svekkjandi.
6. Mín uppáhaldskvikmynd er hin stórfenglega
Rock Star með Mark Wahlberg í
aðalhlutverki. Það þykir víst
mjög skrýtið val.
7. Mark Wahlberg er reynd-
ar bara almennt í frekar
miklu uppáhaldi hjá mér.
8. Þegar ég var yngri hafði
ég á tímabili mjög gaman af
Origami, sat löngum stund-
um við eldhúsborðið heima og bjó til papp-
írsdýr og fígúrur.
9. Ég dett gjarnan út og er þá erfitt að
hafa við mig samskipti. Þá er ég oftast
niðursokkinn í eitthvað mjög ómerki-
legt.
10. Ég vann hæfileikakeppnina Höfr-
ung, sem haldin var fyrir unglinga í
Hafnarfirði, tvisvar í röð. Í bæði skiptin
lék ég á trommur í tónlistaratriðum.
11. Ég verð að hafa hljóðstyrkinn á út-
vörpum og sjónvörpum stilltan á slétta
tölu. Annars gerist eitthvað voðalegt.
12. Ég forða mér úr fjölskylduboðum
þegar umræðan fer að snúast um
stjórnmál. Það ætti að vera bannað
að ræða slíkt þar sem á að vera gam-
an.
13. Ég er mikill dýravinur. Hef dálæti á
hundum og
köttum. Mín
uppáhaldsdýr eru
samt sem áður hestar.
14. Síðasta atriði var
lygi.
15. Ég lýg aldrei.
ai@mbl.is
TÓNLISTARMAÐURINN
FRIÐRIK DÓR
JÓNSSON
15 HLUTIR SEM ÞÚ VISSIR EKKI UM MIG
7
4
13
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýverið opnaði Jóhannes Jónsson kaup-
maður, löngum kenndur við Bónus, nýja
matvöruverslun í Engihjalla í Kópavogi.
Nýja verslunin nefnist Iceland og verður
fróðlegt að sjá hvort hér er komin fyrsta
búðin í keðju áþekkri þeirri sem Bónus er í
dag. Mjór er mikils vísir, segir máltækið, og
fæstir sáu fyrir veldið sem spratt með tím-
anum upp af fyrstu versluninni sem Jó-
hannes opnaði í félagi við son sinn, Jón Ás-
geir, árið 1989 í Skútuvoginum. Bónus fékk
fljótt góðan hljómgrunn meðal neytenda
enda kærkomin kjarabót að geta verslað í
lágverðsverslun á þeim tíma er samdráttur
ríkti í efnahagslífi landans. Þaðan er einmitt
Tímavél vikunnar komin, en RAX smellti af
þeim feðgum um það leyti sem fyrsta Bón-
usbúðin var opnuð fyrir 23 árum. Á þeim
tíma hefur mikið vatn runnið til sjávar, bæði
í sögu þjóðar og búðar, og verður forvitni-
legt að sjá hver framvinda mála verður hjá
Iceland – bæði þjóðinni og búðinni. Hvað
það verður veit svo enginn …
Tímavélin
Morgunblaðið/RAX
Bónusfeðgar
mæta til leiks
Sýning um afleiðingar kjarnorkusprengnanna,
sem varpað var á japönsku borgirnar Hírósíma og
Nagasaki í ágúst 1945, verður opnuð í Borg-
arbókasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu, í kvöld
kl. 19.30. Því tengist að kl. 22 verður kertum fleytt
á Tjörninni í minningu fórnarlamba árásanna
Á sýningunni eru munir frá atburðunum, áhrifa-
miklar ljósmyndir og fræðsluefni. Við kertafleyt-
inguna við Tjörnina flytur Inosuke Hayasaki, 81 árs
gamall Japani, ávarp, en hann lifði af kjarn-
orkusprenginguna í Nagasaki og var staddur í um
eins kílómetra fjarlægð frá staðnum þar sem
sprengjan féll.
„Sýningin fjallar á áhrifamikinn hátt um geig-
vænleg áhrif kjarnorkusprenginganna á íbúa og
mannvirki,“ segir í frétt frá aðstandendum sýning-
arinnar. Þar verður m.a. fjallað um skammtíma- og
langtímaáhrif kjarnorkusprengja á líf og heilsu og
um tilraunir til samningagerðar á alþjóðavettvangi
um takmörkun og eyðingu kjarnavopna.
Kjarnorkusýning í Borgarbókasafni opnuð í kvöld
AFP
Munir frá atburðum
og áhrifamyndir
Frá athöfn í
Hirosima í gær
þar sem hel-
sprengjunnar
var minnst.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110
Reykjavík. Sími 5691100 Ritstjórar
Davíð Oddsson, Haraldur Johannes-
sen Umsjón Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is Blaðamenn
Sigurður Bogi Sævarsson sigurdur-
bogi@mbl.is Ásgeir Ingvarsson
ai@mbi.is Bergljót Friðriksdóttir beg-
go@mbl.is Finnur Orri Thorlacius finn-
urorri@gmail.com Auglýsingar finn-
ur@mbl.is, sími 5691107
Prentun Landsprent ehf.
Bíómyndin
Um þessar
mundir eru
50 ár liðin frá
andláti Mari-
lyn Monroe,
kvikmyndagyðju 20. ald-
arinnar. Þrátt fyrir að hún
næði ekki nema 36 ára aldri
markaði hún varanleg spor í
kvikmyndasöguna og meðal
mynda hennar eru nokkur
sígild verk. Kíkið á Gentle-
men Prefer Blondes, The Se-
ven Year Itch eða Some Like
It Hot – til að byrja með.
Maturinn Hvernig stendur á
þessu Miðjarðarhafslofts-
lagi hér á skerinu? Þegar
svona
dásemdar-
veður leikur
við landann
dag eftir
dag er lag
að henda í
dýrindið Salade Niçoise, eða
salat frá Nice. Suðrænt og
seiðandi hnossgæti sem
hentar einkar vel á heitum
og fallegum sumardögum.
Bókin Rithöfundurinn Jim
Thompson (1906-1977) sér-
hæfði sig í glæpasögum í
rökkurstíl og
margar bóka
hans eru býsna
mergjaðar. Þar
á meðal er
„The Killer In-
side Me“ frá
1952, um lög-
reglufulltrúann
Lou Ford sem býr og starfar í
smábæ í Texas. Lesendur
fylgjast með Ford sem er í
senn dagfarsprúður og
hjálpsamur laganna vörður
og um leið snargeðveikur
morðingi.
Menningin Sýningin Gálga-
klettur og órar sjónskynsins
skartar úrvali málverka eftir
Kjarval en hann málaði
löngum klett einn á af-
skekktum stað í hrauninu á
mörkum Hafnarfjarðar og
Garðabæjar, norðan við
Álftanesveg. Magnað efni.
MEÐMÆLI
VIKUNNAR
Poppdívan Madonna er á tón-
leikaferðalagi um Evrópu og kom
fram í ólympíuhöllinni í Moskvu í
fyrradag. Við það tækifæri lýsti
hún því yfir að hún bæði fyrir því
að stöllurnar þrjár í rússnesku
pönksveitinni Pussy Riot yrðu
látnar lausar. Sem kunnugt er eru
sveitarmeðlimir í varðhaldi og er
þeim gefið að sök að hafa móðg-
að Vladímir Pútín Rússlands-
forseta ásamt því að hafa lítils-
virt Rússnesku
rétttrúnaðarkirkjuna er þær mó-
mæltu Pútín og stjórnunarhátt-
um hans með því að flytja lag í
dómkirkjunni í Moskvu. Hafa sak-
sóknarar krafist minnst þriggja
ára fangelsis yfir þeim fyrir uppá-
tækið, en hámarksrefsingin er 7
ár. Vonir standa þó til að þeim
verði gefnar upp sakir enda eykst
þrýstingur frá alþjóðasamfélag-
inu, ekki síst listamannakreðs-
unni, að taka ekki hart á stúlk-
unum í sveitinni.
Poppdrottningin styður málstaðinn
AFP
Dívan lætur sitt ekki eftir liggja í
baráttunni fyrir betri heimi.
Madonna styður Pussy Riot