Morgunblaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 6
6 finnur.is 9. ágúst 2012
E
kki er víst að margir hafi séð fyrir hversu víðtæk
áhrif sjónvarpsþáttaröðin Mad Men myndi hafa er
fyrsti þátturinn var frumsýndur þann 19. júlí
2007. Ástir og örlög á auglýsingastofu? Virki-
lega? Ó já.
Grípandi sjónvarpsefni kemur fram á hverju ári, efnið
sem allir eru að tala um. En Mad Men eru í senn fantavel
skrifaðir, eintaklega vel mannaðir og eftir því vel leiknir,
ásamt því að útlitið er svo dæmalaust dýrðlegt að
stíllinn ruddi sér til rúms í tískuheiminum með
áþreifanlegum hætti, einkum hjá herrunum. Mad
Men sem sjónvarpsþáttur er „einn með öllu“ því
hann snertir taug hjá ólíklegasta fólki og allir
vilja fylgjast með. Hvað kitlar hvern og einn er
ómögulegt að segja – kannski langar okkur bara
að fá okkur einn gráan í dagsins önn, um leið og
við vitum að það gengi seint nú til dags.
Enda er nútíminn ekki sama einfalda líf-
ið og það var í den tíð.
Einmitt það er veruleikinn sem blasir
við Don Draper í upphafi fimmtu seríu.
Tíðarandinn er annar árið 1966 og hin
klippta og skorna tilvera býðst ekki
lengur. Víetnam, LSD, blómabörn, breyttir tímar og rúmlega
það. Þegar við bætist hjónaband með nýrri eiginkonu, velgengni
nýs penna á stofunni, að ekki sé minnst á að ódámurinn Pete
Campbell er á uppleið, má ljóst vera að Draper gamli þarf að
herða á sprettinum til að missa ekki af lestinni. Sem leiðir hug-
ann að því – getur Don Draper lifað 7.áratuginn af? Hvernig
reiðir honum af hinum megin við 1970? Munum við kaupa
Don Draper í hvítum rúllukragabol, brúnum leður-blazer
og útvíðum gallabuxum? Aðeins tíminn mun leiða það
í ljós.
Mad Men er sýndur á Stöð 2 á sunnudags-
kvöldum.
* Um er að ræða nauðsynlega ráðstöfun, að
eigin sögn, svo hann fái frið fyrir frá ástjúkum
aðdáendum. Erfitt þetta líf ...
*Hamm vandar hinsvegar jurtarettunum ekki
kveðjurnar og segir þær bragðast eins og blöndu
af marijuana og sápu.
*Jon Hamm (41) finnst hann orðinn gamall
í Hollywood. „Ég gæti verið afi þessara Twilight-
krakka!“
*Vincent Kartheiser (Pete Campbell) gengur með
giftingarhring frá degi til dags, þó hann hafi aldrei
á ævinni verið giftur.
*Leikararnir reykja jurtasígarettur
í þáttunum. Ekki þótti forsvaranlegt
að láta leikhópinn svæla alvöru tóbak.
Vissirþú að...
Fimmta serían af auglýsingagerðarkempunni
Don Draper og félögum hefst um helgina. Ár-
ið er 1966 og lífið er ekki jafn ferkantað og
þegar við hittum mannskapinn fyrst.
DAGSKRÁIN
UM HELGINGA
Þótt sófakartaflan nái ekki alltaf
uppáhaldsþáttum sínum er það í
lagi því hún á foreldra sem horfa
líka á sjónvarp. Þeir eru góðir að
uppfræða kartöfluna um það sem
gerist í sjónvarpinu. Reyndar er
það svo að þeir uppfræða hana
líka, óumbeðnir, um langar bíó-
myndir sem kartaflan missti af.
Þetta eru stundum myndir sem
sófakartaflan ákvað vísvitandi að
horfa ekki á, svo sem Tvöföld
hamingja á býlinu eða Sálarkvöl á
suðurströndinni.
Söguþráðurinn er stundum rak-
inn í símtali eða matarboði. Hver
persóna, útlit og kostir og gallar eru raktir og tengsl við aðrar
sögupersónur. Áður en farið er yfir helstu og minna mikilvæg at-
riði sögunnar er hellt upp á kaffi, náð í smákökur og konfekt og
kartaflan heldur að nú eigi að ræða væntanlegt ættarmót í Húna-
vatnssýslu. Eða komandi skólaár barnanna. Þess í stað er settur
upp hneykslunarsvipur yfir Katie Missie sem hélt við eiginmann
systur sinnar, Guy Woodhouse. Katy Dunny nágrannakona þeirra
komst að þessu öllu saman áður og kjaftaði í eiginkonuna, Elenu
Murray. Elena og Katie ákváðu að reyna að halda systra-
sambandinu góðu þrátt fyrir þetta og hún skildi við eiginmann
sinn í kjölfarið en hélt systurinni. Það hins vegar var óráð því það
hafði verið systirin (kaffisopi og aðeins að færa sig til í sófanum)
sem hafði hér um bil þröngvað framhjáhaldinu upp á eiginmann-
inn. Sem sagt: Sófakartaflan þarf ekki endursýningar eða taka
spólu á leigu. Hún getur farið til foreldra sinna og fengið sjón-
varpsefnið í söguformi.
SÓFAKARTAFLAN RAUSAR
Sjónvarp í söguformi
Sápuóperur sígildar í sjónvarpi.
BMX-
hjólreiðar
eru hress-
andi efni og
um leið tví-
mælalaust
ein svalasta
Ólympíugreinin. Töff-
araskapur á tveim hjólum.
Svona löguðu missir eng-
inn af! Sýnt á RÚV.
Fimmtudagur
Fyrir þá sem
kjósa svo-
litla dystó-
píu með
morðóðum
vélmennum
er rétt að
benda á Terminator:
Salvation. Blóð og stál og
framtíð mannkyns er í veði
– á Stöð 2 Bíó.
Föstudagur
Fyrir þá sem
ekki áttu
heiman-
gengt í
Hörpu til að
hlýða á hun-
angsbark-
ann Tony Bennett er um að
gera að fylgjast með hon-
um á Stöð 2, ásamt ýms-
um öðrum stjörnum.
Laugardagur
Bjarnfreð-
arson er
ekki bara
einn albesti
karakter
sem skap-
aður hefur
verið hin seinni ár hér á
landi, heldur er myndin al-
gerlega frábær. Stöð 2 Bíó.
Sunnudagur
Mætir menn