Morgunblaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 18
Spennandi lausn! 230 volt í bílinn12V í 230V Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skráði hátt í þrettán þúsund hrað- akstursbrot á höfuðborgar- svæðinu á sl. ári. Þetta kemur fram í árskýrslu embættisins fyrir síðasta ári. Stór hluti þeirra var myndaður í Hvalfjarðargöng- unum, þar sem er mikil umferð og þéttriðið net myndavéla. Eins og endranær voru umferð- armál stór þáttur í starfi lögregl- unnar í fyrra. Meðal tíðra við- fangsefna er að fjarlægja skráningarnúmer af ótryggðum og óskoðuðum bílum sem eru fjölmargir. Í fyrra voru fjarlægð 2.000 skráningarnúmer af bílum, þrátt fyrir markvissa hvatningu lögreglumanna um að vera með þessi mál á hreinu. Leti um að kenna Algengt er að lögregla gangi í mál þegar ökumenn leggja bílum sínum ranglega. Slík stöðubrot eiga sér gjarnan stað í gegnum við landsleiki í íþróttum, tónleika og fleira. Hátt í 6.000 ökumenn voru sektaðir fyrir stöðubrot en í langflestum tilvikum var leti þeirra sjálfra um að kenna. Enn fleiri komu svo við sögu þegar hraðakstursbrotin voru annars vegar,“ segir í ársskýrslu Lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu. sbs@mbl.is Of hratt og aðrir á röngum stað 6.000 sektaðir á síðasta ári Lagði ólöglega í Laugardalnum og lögreglan greip hann í landhelginni. bílar BL hefur í ár selt 185 Nissan Qas- hqai. Næst á eftir í jepplingaflokki er Ford Kuga með 93 bíla. Tölur Nissan eru skv. útlöndum. Í Evr- ópu hafa 366 þús. bílar verið seldir í ár. Það er 5% aukning frá 2011. Bandaríski leikarinn George Clooney hefur kynnt sér hvernig það er að lifa frá hendinni til munnsins og helgað sig baráttu í þágu bágstaddra í Súdan þar sem hungur hefur sorfið að und- anfarin misseri. Bíllinn er af gerðinni Tesla „Signature 100“ Roadster frá árinu 2008 og er sagður að verð- mæti 100 til 125 þúsund dollarar. Um er að ræða fyrsta hrað- skreiða sportbíl heims sem ein- göngu er knúinn rafmagni. Hann verður falur á árlegri upp- boðshátíð hjá Gooding & Co upp- boðshöldurunum í Los Angeles 18. ágúst nk. Bíllinn er sá áttundi sem rann úr smiðju Tesla og hefur honum aðeins verið ekið um 2.700 kíló- metra. Að innan er hann allur klæddur tveggja tóna leðri. Andvirðið af sölu bílsins rennur til hjálparsamtakanna Satellite Sentinel Project, sjálfseignar- stofnunar sem Clooney stofnaði með mannréttindabaráttumann- inum John Prendergast. Fylgjast samtökin með gangi mála á landamærum Súdans og freista þess að koma í veg fyrir að upp blossi að nýju borgarastríð milli Norður- og Suður-Súdan. agas@mbl.is Sportbíll til snauðra í Afríku Clooney í Teslabílnum, fyrsta hraðskreiða rafsportbíl heims. Clooney gefur Teslabíl til góðs Ótti um ringulreið, umferð- arteppur og tafir í bresku höf- uðborginni, meðan á Ólympíu- leikunum í London stæði, hefur reynst óþarfur, að mestu. Hnökrar og bilanir í upphafi höfðu tak- mörkuð óþægindi í för með sér, en síðan hefur allt gengið eins og í vel smurðum líkama afreksmanns, umferðin streymt með góðu flæði og samgöngukerfið annað met- fjölda farþega. Fólk breytir ferðavenjum Peter Hendy, yfirmaður sam- göngumála í London, segir að tæpast sé mark takandi á fullyrð- ingum um eyðilega borg, farþega- tölur bendi til annars. Í fyrstu ól- ympíuvikunni sáu ný farþegamet dagsins ljós í öllum geirum sam- göngukerfisins. „Fólk hefur hlustað á viðvaranir okkar um álag í kerfinu og breytt ferðavenjum, hefur ferðast í minna mæli á álagstímum. Við vissum að álagið á kerfinu myndi aukast, brugðumst við því með stórauknu sætaframboði, og höf- um – eins og íþróttafólkið – unnið sigur,“ segir Hendy. Allt gekk að óskum Föstudaginn 3. ágúst – þegar keppt var um 25 gullverðlaun á ól- ympíusvæðinu – var búist við hinu versta. Þann dag hófst frjáls- íþrótta-keppnin á ólympíu- leikvanginum og gestum inn á ól- ympíusvæðið fjölgaði stórlega. Gestir urðu fyrir óþægindum og töfum er Central-lína jarð- lestakerfisins stöðvaðist um tíma vegna bilunar í merkjakerfinu og gekk skrykkjótt eftir það, þann daginn. Þurftu farþegar að leita annarra lausna og mynduðust því víða biðraðir á lestarstöðvum þótt allar lestir aðrar væru á tíma. Allt gekk þó að óskum og allir komust til ólympíusvæðisins í tíma. Metfjöldi manna fór með neðanjarðarlestunum þennan föstudag, eða 4,4 milljónir far- þega, sem er 20% meiri fjöldi en á sama tíma fyrir ári. Þrátt fyrir truflanir af völdum rafmagnsbil- unar á ferðum léttlestarinnar svo- nefndu sem kennd er við Dock- lands-hverfið flutti hún rúmlega 500 þúsund manns „ofurföstu- daginn“ svonefnda, sem er met, og 70% meiri fjöldi en á venjuleg- um degi. Með strætisvögnum ferðuðust 27% fleiri í fyrstu ól- ympíuvikunni en í sömu viku í fyrra og reiðhjól, sem taka má á leigu víða um borg, leigði meira en milljón manna í fyrsta sinn á ein- um mánuði. Loks hefur nýja kláf- ferjan sem liðast um yfir London notið mikilla vinsælda en með henni hafa um 25 þúsund manns tekið sér far dag hvern. Borgarbúar á brott Þótt almenningur láti yfirvöld ekki segja sér um of fyrir verkum þykir sem stór hluti íbúa London hafi hlýtt kalli og komið sér úr bænum meðan á leikunum stend- ur. Og sýnt þykir að túristar eru miklu færri í London en að jafnaði á sama tíma. Veitinga- og versl- unarmenn hafa kvartað sáran undan og sagt það hafa bitnað á veltu sinni. Fáir kæmu í búðir og veitingahúsin væru yfirleitt hálf- tóm. Forsætisráðherrann David Cameron brást við með því að hvetja fólk til að flykkjast á ný til London, ótti þeirra um erfiðar samgöngur væri ástæðulaus. Upplýsingar úr samgöngu- kerfinu styðja þó ekki kenningar um að miðborgarsvæðið, West End, sé sem draugaborg. Þannig fóru 7-12% fleiri farþegar alla daga síðustu viku um sjö stöðvar í miðborginni. Bara sl. laugardag nýttu 27% fleiri sér jarðlestakerfið en aðra laugardaga vikurnar fyrir ólympíuleikana. Bjórinn þvarr hvergi Hendy segir samgöngukerfið hafa tekið við óviðjafnanlegum fjölda og borgar- og viðskiptalífið gengið eðlilega fyrir sig. „Hefði bjór gengið til þurrðar á krá í síð- ustu viku hefði það komist á for- síður blaðanna. Bjór þvarr hvergi, engan skorti brauð eða aðrar nauðsynjar, meira að segja blöð- unum var dreift eins og ekkert hefði í skorist.“ agas@mbl.is Ólympísk afrek unnin í samgöngum í Lundúnum Umferðin streymir- með góðu flæði AFP Umferð í London gengur smurt þrátt fyrir mannmergð á ÓL. Ýmsar ráð- stafanir voru gerðar í aðdraganda leikanna m.a. í umferðamálunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.