Morgunblaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 10
fasteignir Robie House eftir Frank Lloyd Wright er með merkustu húsum Bandaríkjanna. Húsið var byggt 1910 og er í Chicago. Ríkið greiddi um sl. mánaðamót nærri 8,8 milljarða í bætur vegna gjalda greiddra í fyrra af lánum vegna íbúðarkaupa. Alls fengu 46.415 fjölskyldur þessar vaxtabæt- ur greiddar. „Sérstök vaxtaniðurgreiðsla sem nemur 0,6% af skuldum upp að hámarki sem er skert af eignum nemur samtals 5,7 millj- örðum og hana fá rúmlega 97 þúsund ein- staklingar. Stuðningur ríkisins við íbúðar- eigendur nemur þannig samtals 14,6 milljörðum, sem er yfir fjórðungur af heild- arvaxtakostnaði heimila í landinu vegna íbúðarkaupa,“ segir í frétt frá fjár- málaráðuneytinu. Ríkissjóður reiðir af hendi Morgunblaðið/Ómar 8,8 milljarðar króna greiddir í vaxtabætur Talsverð sveifla og aukn- ing hefur verið í fast- eignaviðskiptum á helstu stöðum úti á landi að undanförnu, skv. nýjum tölum Þjóðskrár. Þannig var alls 37 samningum landað á Akureyri í sl. mánuði. Þar af var 21 samningur um eignir í fjölbýli, fimmtán vegna sérbýli og einn vegna sölu annars konar eignar. Heildarveltan var 1.058 millj. kr. og meðalupphæð hvers samnings var 28,6 millj. kr. Byggingahefð hvers bæjar endurspegl- ast ágætlega í markaðstölum Þjóðskrár. Fyrir austan fjall er rík hefð og áhugi fyrir litlum og ódýrum sérbýliseignum, það er einbýlis-, par og ráðhúsum. Á Árborgar- svæðinu var 22 samningum þinglýst í sl. mánuði, þar af átján vegna sérbýliseigna. „Markaðurinn hefur heldur vænkast síð- asta árið eða svo. Þó finnum við alls ekki sömu aukningu og rætt er um að sé á höf- uðborgarsvæðinu,“ segir Elvar Gunnars- son hjá fasteignasölunni Stað á Selfossi. „Mest og best seljast minni sérbýliseignir, sem kosta þá 30 millj. kr og þaðan af minna. Sársaukalínan er skýr.“ Í júlí var 21 samningi þinglýst í Reykja- nesbæ. Þar af voru fjórtán um eignir í fjöl- býli. Á Akranesi náðust ellefu samningar í höfn, þar af sjö vegna fjölbýlishúsa. Skagamenn virðast samkvæmt þessu vilja búa í blokkum. Ágæt fasteignasala úti á landi Sársaukamörkin eru 30 millj. kr Skagamenn vilja fjölbýli. L augardalurinn er mynd- rænn og á sér merka sögu. Því verður gaman að labba þarna um, rifja upp sögu og heyra ef til vill frá- sagnir fólks sem þekkir til,“ seg- ir Þorgrímur Gestsson rithöf- undur. – Í kvöld, fimmtudaginn 9. ágúst, klukkan 20 standa Grasagarður Reykjavíkur, Fjöl- skyldu- og húsdýragarðurinn og Ljósmyndasafn Reykjavíkur fyr- ir ljósmyndagöngu um Laug- ardalinn. Þar verða, undir leið- sögn Þorgríms, rifjaðar upp minningar og sögur af fólki og mannvirkjum. Einnig fjallað ræktun og búskap fyrri tíma, en sú var tíðin að Laugardalurinn var sveit í borginni. Laugarnes er landsnámsjörð Þorgrímur þekkir vel til Laugarness og -dals. Hann skrifaði á sínum tíma bókina Mannlíf við Sund, sem fjallaði um mannlíf og sögu Laugarnessins og nærliggjandi svæða. „Rætur mínar liggja þarna. Föðurafi minn og amma, Þorgrímur Jónsson og Ingibjörg Þóra Kristjánsdóttir, voru síðustu formlegu bændurnir í Laugarnesi, bjuggu þar frá 1915 þar til afi lést, 1944. Laugarnes er landnáms- jörð og þar var kirkja frá því fyrir 1200. Bæ- irnir Kleppur, Bústaðir, Skildinganes og Rauðará og mörg smábýli sem byggðust í landi Laugarness áttu þangað kirkjusókn á fyrri öldum. Snemma á 20. öld tóku Reykvík- ingar að byggja sumarbústaði í Laugarnesl- andi, meðal annars margir hinna svonefndu „betri borgara“. Þar má t.d. nefna herrafata- kaupmanninn Guðstein Eyjólfsson sem átti bústað þar sem Hrísateigurinn var síðar lagður en þangað var síðar fluttur fjöldi húsa úr Skerjafirðinum sem víkja þurftu við gerð Reykjavíkurflugvallar. Þá geri ég ráð fyrir að margir þekki Laugarnesið sem sögusvið minningabóka Sigurðar A. Magnússonar,“ segir Þorgrímur sem í kvöld ætlar að ganga með fólki við Þvottalaugarnar, Grasagarðinn og þar í kring; slóðir þar sem sagan er við hvert fótmál. Allt dafnar í aldinreit „Grasagarðurinn á sér langa og merka sögu,“ segir Þorgrímur og rifjar upp að árið 1920 fengu hjónin Valgerður Halldórsdóttir og Eiríkur Hjartarson úthlutað 2,6 ha. erfða- festulandi við Þvottalaugarnar. Um 1930 byggðu þau sér þar reisulegt íbúðarhús og gáfu nafnið Laugardalur – eftir Laugardal í uppsveitum Árnessýslu þaðan sem Val- gerður var. Árið 1938 settu þau hjónin, með Hlín dótt- ur sinni, gróðrarstöð á laggirnar og hófu síð- ar ræktun skógar- og skrautlegra blóma. Garðurinn sá var falinn Reykjavíkurborg árið 1961. Síðan hefur hann verið stækkaður og er nú sannkallaður aldinreitur. „Söguritarar borgarinnar héldu sig við gömlu Reykjavík, inn að Rauðará, en Laug- arnes var fyrir austan bæ. Og margt merkilegt gerðist í mýr- inni sem nú er kölluð Laug- ardalur, þar var búskapur, þar voru laugar sem notaðar voru til þvotta og baða, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Þorgrímur. Sannkölluð gullæð Hann vekur athygli á því að í kvöldgöngunni verði hafðar meðferðis stórar, gamlar ljós- myndir úr dalnum sem sýni þróunina þar býsna vel og því vel til fundið að nefna þennan göngutúr „ljósmyndagöngu“. Eitt af því merkilega sem ber á góma er að 1929 var borað eftir heitu vatni við gömlu Þvottalaugarnar og til þess notaður sami nafarinn og not- aður var til að bora eftir gulli í Vatnsmýrinni í byrjun 20. aldarinnar. Ekkert fannst þó gullið þar en aftur á móti kom borinn niður á sann- kallaða gullæð við Þvottalaugarnar Þar fannst heitt vatn sem leitt var í Austur- bæjarskólann og hús við Bergþórugötu en þessar byggingar voru reistar um 1930 og voru hinar fyrstu sem ornaðar eru með hefð- bundinni hitaveitu. Sundhöllin var svo byggð við Barónsstíg til þess að þangað mætti veita affallsvatningu nýta það til fullnustu. Og enn er Laugardalurinn býsna drjúgur því nærri lætur að um 7% af heitu vatni sem kemur inn á kerfi Orkuveitu Reykjavíkur séu úr borholum þar. Minjar sögunnar eru víða „Laugardalurinn hefur breyst mikið í ár- anna rás og er allt öðru vísi en þeg ar ég man fyrst eftir mér. Allt er fyrir löngu orðið gróið og fallegt en ef vel er að gáð eru minjar sög- unnar ótrúlega víða,“ segir Þorgrímur Gests- son. sbs@mbl.is Þorgrímur Gestsson með söguferð um Laugardalinn í Reykjavík í kvöld Morgunblaðið/Sigurður Bogi „Laugardalurinn hefur breyst gríðarlega mikið í áranna rás,“ segir Þorgrímur, hér með þvottalaugarnar og dæluhús Orkuveitunnar í baksýn. Aldinreitur og gullbor Laugardalurinn 1 2 3 4 5 Loftmyndir ehf. 1 Þvottalaugar 2 Húsdýragarður 3 Grasagarður 4 Skautahöll 5 Laugardalshöll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.