Morgunblaðið - 09.08.2012, Side 8
8 finnur.is 9. ágúst 2012
F
yrir rúmum þremur árum var ég mjög leitandi, ég fann fyrir leiða
og langaði að finna mér eitthvað til viðbótar við leiklistina og
magadansinn,“ segir Jóhanna Jónasdóttir, leikkona og veit-
ingastjóri á Grænum kosti. „Ég vildi róa á ný mið en hafði ekki
hugmynd um hvert. Ég álpaðist á helgarnámskeið hjá bandarískum
kennara frá Barbara Brennan School of Healing og það gerðist eitthvað
merkilegt, ég varð hugfangin.
Ég ákvað að demba mér í fjögurra ára nám í heilunarfræðum og út-
skrifast í maí á næsta ári sem Brennan-heilari. Þetta er bandarískur
skóli, stofnaður af Barböru Brennan, höfundi metsölubókarinnar Hands
of Light. Hún starfaði fyrst sem vísindamaður hjá bandarísku geim-
ferðastofnuninni NASA en gerðist síðar þerapisti og heilari og stofnaði
fyrir 30 árum þennan skóla, sem er með höfuðstöðvar í Miami í Flórída.
Stór ákvörðun
Barbara Brennan School of Healing er með útibú fyrir Evrópubúa rétt
hjá Salzburg í Austurríki. Þangað fer ég annan hvern mánuð yfir vetrar-
tímann og sit vikunámskeið í senn, en er annars í fjarnámi. Þetta var
mjög stór ákvörðun en mér finnst ég hafa himin höndum tekið. Þó að
námið sé mjög stíft og oft erfitt þá er þetta svo gefandi og þroskandi að
lífið verður aldrei eins hér eftir.“
Jóhanna hefur ekki lagt leiklistina á hilluna, þó hún einbeiti sér nú að
öðru. „Leiklistin átti hjarta mitt um langt skeið og þangað eru alltaf opn-
ar dyr, eins og verða vill. Ef til mín koma verkefni á þeim vettvangi þá
skoða ég þau með gleði og sé hvort ég anna þeim. Framundan er til
dæmis lítið verkefni á Lókal-listahátíðinni í lok ágúst með öðlings-
listakonunum Charlottu Böving og Maríu Ellingsen; ég hlakka mikið til
að láta sköpunarkraftinn flæða með þeim.“
Ofurfæði í krukku
Hún segist njóta þess að vinna á Grænum kosti, í heilsusamlegu og
gefandi umhverfi. „Ég elska að borða og ég elska góðan mat. Ég hef allt-
af verið dugleg að elda og byrjaði 12 ára að matreiða fyrir mína stóru
fjölskyldu; sex systkin og foreldra. Ég kynntist grænmetisfæði fyrir al-
vöru þegar ég bjó í Los Angeles og fann hvað mér leið ótrúlega vel af því.
Fyrir nokkrum árum varð ég svo alfarið grænmetisæta, borða hvorki
kjöt né fisk, og sakna einskins.
Undanfarnar vikur hef ég verið full af innblæstri eftir frábæran fyrir-
lestur hjá hráfæðimeistaranum David Wolfe. Ég keypti mér allskonar of-
urfæði í framhaldinu; meðal annars hveitigrasduft, spirulina, maca,
goji-ber og chia-fræ og er nú á smá trippi að búa mér til allskonar þeyt-
inga úr þessum eðalvörum.
Ég er sérstaklega sæl með að hafa uppgötvað kakónibburnar, set
þær meðal annars út í alla þeytinga og ávaxtasalöt og skynja vel kraft-
inn frá þeim. Wolfe segir kakóbaunina og lífrænt dökkt súkkulaði vera
lífsins elexír svo nú borða ég það án samviskubits og nýt þess til hins
ýtrasta.
Uppáhaldsuppskriftin mín þessa dagana er morgun-orkuþeytingur.
Ég hef komið mér upp litlum, fallegum krukkum á eldhúsborðinu með
öllu góða ofurhráefninu og fleygi svo teskeið af þessu og hinu út í eins
og mig lystir.“
beggo@mbl.is
Matgæðingurinn Jóhanna Jónasdóttir leikkona
Krafturinn úr kakónibbum
Morgunblaðið/Kristinn
Jóhanna Jónasdóttir kynntist grænmetisfæði fyrir alvöru þegar hún bjó í Los Angeles.
Jóhanna Jónasdóttir fann það sem hún leit-
aði að; tileinkaði sér grænmetisfæði og
stundar nám í heilunarfræðum við Barbara
Brennan School of Healing.
Morgunorkubomban
handfylli af vínberjum eða önnur uppáhalds-
ber, t.d. frosin jarðarber eða bláber
1 appelsína, afhýdd eða pera
1 banani
2 tsk. kakónibbur
1 tsk. hveitigrasduft
1 tsk. spirulina-duft
1 tsk. maca-duft
2 tsk. lucuma-duft
1 tsk. blómafrjókorn
náttúruleg sæta að smekk, t.d. niðurskornar
döðlur eða svolítið af lífrænu hunangi eða
agave-sýrópi
glas af vatni, eða þar um bil
Appelsína/pera og banani skorið í bita, öllu
fleygt saman í blandara og blandað vel í eð-
alþeyting. Hér eru engar reglur, notið sköp-
unarkraftinn, prófið ykkur áfram, verið sveigj-
anleg og þolinmóð og hættið ekki fyrr en þetta
bragðast eins og ykkur finnst best. Njótið þess
svo að finna kraftinn líða um kroppinn!
3. þáttur
Dásamlegt
sumarpastasalat!
400 gr spelt spaghettí eða pasta
3 hvítlauksrif
25-50 gr basilika
70-100 gr íslenskt klettasalat
1 dl ólífuolía (eða olían af La Selva
tómötum!)
50 gr rifinn parmesanostur
100 gr sólþurrkaðir tómatar (til
dæmis frá La Selva)
1 stk. chilli aldin (má sleppa)
sjávarsalt og nýmalaður pipar
50-70 gr furuhnetur
50 gr rifinn fituríkur ostur (má
sleppa)
1. Sjóðið spaghettíið/pastað eftir leið-
beiningum á pakkanum (yfirleitt um 10
mínútur og 1 msk. af ólífuolíu sett út í
vatnið)
2. Setjið hvítlauk, basiliku og helminginn
af klettasalatinu í matvinnsluvél ásamt
helmingnum af La Selva tómötunum,
allri olíunni af þeim (og má bæta við
kaldpressaðri ólífuolíu svo maukist vel),
parmesan og helmingnum af furuhnet-
unum og maukið vel saman, saltið og piprið
eftir smekk
3. Setjið pastað í skál og hellið pestóinu yfir
og blandið vel saman
4. Skreytið með afganginum af klettasalat-
inu, tómötunum, chilli aldini smátt skornu
ef vill, furuhnetum og rifnum osti (ef vill)
5. Tilbúið!
Fylgstu með í MBL
sjónvarpi alla miðvikudaga.