Morgunblaðið - 09.08.2012, Side 11

Morgunblaðið - 09.08.2012, Side 11
9. ágúst 2012 finnur.is 11 Eigulegir hlutir Sítrónupressa sem sparar handtökin Íslendingar búa svo vel að geta fengið tandurhreint og ískalt vatn beint úr krananum. Það má þó gera vatnið ögn betra með smábragði af ferskum ávexti og mörgum þykir al- veg kjörið að bæta ögn af sí- trónusafa út í glasið. Nú er hægt að fá þennan bráð- snjalla sítrónupressuhatt sem setja má beint ofan á vatnsflöskuna, og beina nýkreistum sítrónusafanum rakleiðis ofan í ílátið. Pressan er fáanleg í grænum og gulum lit og passar ofan á allar venjulegar flöskur svo notagildið er það sama hvort sem fólk vill fá ferskan safann út í vatnið eða létt- bjórinn. Pressan heitir Sombrero Citrus Juicer og er m.a. til sölu á Amazon- .com og kost- ar núna litla 8 dollara. Við bætist síðan sendingarkostn- aður og opinber gjöld. ai@mbl.is Í minningunni er fjöldi krakka í hverri einustu íbúð. Maður átti fjölda leikfélaga í þessu skemmtilega umhverfi í hrauninu. Við strákarnir lékum okkur saman alla daga. Þannig mynduðust milli okkar sterk vin- áttubönd sem eru enn til staðar og verða líklega alla tíð,“ segir Guðjón Árnason sem býr við Álfaskeið í Hafnarfirði. Ódýrt, gott og öruggt Hafnarfjörður var á miklu breyt- ingaskeiði á árunum upp úr 1960. Íbúum fjölgaði ört og brjóta varð ný lönd undir byggingar. Bærinn í fjör- unni og undir hraunjaðrinum þand- ist út. Þegar hér var komið sögu var bygging fjölbýlishúsa orðin al- gengur byggingamáti. Með þessu gafst fólki líka kostur á að festa sér ódýrt, en öruggt og gott húsnæði. Blokkirnar við Álfaskeið í Hafnar- firði eru byggðar í kringum 1965 og blasa við vegfarendum sem fara um Reykjanesbraut. „Foreldrar mínir, Árni Guðjónsson, og Lilja Guðjónsdóttir, hófu sinn búskap í Kinnunum en fluttu á Álfaskeiðið 1966. Ég var þá þriggja ára gamall og man fyrst eftir mér þarna,“ seg- ir Guðjón sem varð fljótt virkur í íþróttastarfi. „Þetta var fótbolti frá morgni til kvölds og allskonar leikir. Við Álf- skeiðingar útbjuggum okkar eigin vopn; svo sem tálguð spjót og skildi. Fórum svo niður á svo- nefndan Einarsreit þar sem Fálka- hraunið er núna og fórum þar í miklar orrustur við strákana á Arn- arhrauninu. Allir komust þó held ég óskaddaðir úr þessum leikum, sem voru þó ansi líflegir,“ segir Guðjón og heldur áfram: „Seinna tók handboltinn við og við vorum að minnsta kosti fjórir strákar af Álfaskeiðinu sem vorum alveg á kafi í handboltanum. Auk mín voru þetta þeir Guðmundur Karlsson, velþekktur fyrir góðan árangur í sleggjukasti, og Sigþór Jóhannesson. Við lékum allir með FH. Þá var þarna einnig Hauka- og handboltamaðurinn Ágúst Sindri Karlsson, síðar skákkappi og lög- maður. Nú og svo bjuggu þarna við götuna ýmsir sem síðar urðu nafn- togaðir menn. Þar get ég t.d. nefnt vin minn Ævar Örn Jósepsson glæpasagnahöfund og í næsta stigagangi við okkur bjó Sólon Sig- urðsson með fjölskyldu sinni seinna bankastjóri Búnaðarbank- ans og Kaupþings. Já, bankastjóri í blokk; þannig bara var þannig.“ Aldrei búið annars staðar Hafnfirðingar, sem gjarnan eru nefndir Gaflarar, eru býsna trúir bænum sínum og vilja varla færa sig milli hverfa. „Ég starfaði í mörg ár við sölu á fasteignum og þá kynntist ég því að Norðbæingar vilja halda sig þar, fólk af Holtinu hugsar svipað og svo framvegis. Sumir Hafnfirð- ingar segja sem svo að þeir vilji vera í hverfinu þar sem amma og afi bjuggu eða foreldrarnir eða nefna einhverjar sambærilegar skýringar. Þessi tilvik eru alveg óteljandi,“ segir Guðjón sem skv. þessu býr auðvitað á Álfaskeið- inu. Gatan nálgast raunar að vera tveggja kílómetra löng – og nú býr Guðjón niður undir Reykjavík- urvegi; en þar við upphaf göt- unnar eru lægstu húsnúmerin. „Ég hef aldrei búið annars stað- ar en hér í Hafnarfirði,“ segir Guð- jón sem er verkefnisstjóri á sviði vinnu- og atvinnumála hjá Hafn- arfjarðarbæ. Kona hans er Hafdís Stefánsdóttir, starfsmaður Ís- landsbanka. Þau eiga tvö börn, Árna Stefán og Hildi Rún. Segir faðirinn börnin býsna helg Hafn- arfirði og það sé í öllu samræmi við uppvöxt þeirra og ættarfylgju. sbs@mbl.is Gatan mín Álfaskeið í Hafnarfirði Tálguð spjót og skildir Morgunblaðið/Eggert Maður átti fjölda leikfélaga í þessu skemmtilega umhverfi í hrauninu, segir Álfskeiðingurinn Guðjón Árnason. Hafnarfjörður Álfaskeið Á lfaskeið Re yk jav íku rve gu r Re yk ja ví ku rv eg ur Fjarðargata Lækjargata Fjarðarhraun Flatahraun Hjallabraut Hra unb rún Öryggisbelti? Svo þú getir gengið burt af slysstað. - örugg bifreiðaskoðun Sími 570 9000 - Þjónustuver og tímapantanir 570 9090 - www.frumherji.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.