Morgunblaðið - 09.08.2012, Qupperneq 19
9. ágúst 2012 finnur.is 19
Suzuki bílar hf • Skeifan 17 • 108 Reykjavík • Sími 568 5100 • www.suzuki.is
Hyunday I30
Skr. 05.2011
Ekinn 33.000 km
Bensín, beinsk.
Verð kr. 2.190.000
Suzuki Grand
XL7
Skr. 06.2007
Ekinn 86.000 km
Bensín, sjálfsk.
Verð kr. 2.790.000
Suzuki Swift
Skr. 06.2011
Ekinn 42.000 km
Bensín, beinsk
Verð kr. 2.250.000
Toyota RAV4
Skr. 12.2004
Ekinn 144.000
Bensín, beinsk.
Verð kr. 1.470.000
Chevrolet
Captiva
Skr 12.2010
Ekinn 24.000 km
Diesel, beinsk
Verð kr. 4.450.000
Suzuki Jimny
JLX
Skr. 06.2007
Ekinn 68.000 km
Bensín, beinsk
Verð kr. 1.750.000
Nissan X-Trail
LE
Skr. 04.2008
Ekinn 83.000 km
Bensín, sjálfsk.
Verð kr. 3.290.000
Gott úrval af notuðum bílum
Komdu og
skoðaðu úrvalið
Ford Escape
XLT
Skr. 08.2007
Ekinn 58.000 km
Bensín, sjálfsk.
Verð kr. 2.890.000
Suzuki Grand
Vitara PR
Skr. 06.2010
Ekinn 52.000 km
Bensín, beinsk.
Verð kr. 3.490.000
Bílar frá Vauxhall eiga vaxandi
vinsældum að fagna í heimaland-
inu, Bretlandi. Nýjustu sölutölur
benda til að Vauxhall ógni Ford
sem eftirlætis bílaframleiðandi
Breta.
Í júlí jókst sala Vauxhall-bíla um
11,1% miðað frá því sem var í
sama mánuði í fyrra, samkvæmt
upplýsingum frá því sem kalla
mætti breska bílgreinasam-
bandið, SMMT. Á sama tíma bætti
Ford við sig 1,55% í bílasölu.
Fjórir af fimm efstu
Bílar frá Ford og Vauxhall sitja í
fjórum af fimm efstu sætum lista
yfir mest seldu bíla. Besti bíllinn
að mati breskra neytenda er Ford
Fiesta, en af henni seldist mest í
júlí. Í næstu tveimur sætum eru
Vauxhall Corsa og Astra. Í fjórða
sæti er Ford Focus og fimmti
mest seldi bíllinn er Volkswagen
Golf.
Þótt Corsa dragi á er Fiestan
söluhæsti fólksbíll Bretlands í ár.
Til júlíloka seldust 67.103 Fiestur
en 52.956 Corsa. Bílar undir
10.000 pundum drottna í sölutöl-
um í flokki smærri bíla, en þeir
nema þriðjungi allra selda bíla í
landinu. Á sama tíma og önnur
lönd glíma við þverrandi bílasölu
varð 9,3% aukning á sölu nýrra
bíla í Bretlandi í júlí. Var það
fimmti mánuðurinn í röð sem
aukning á sér stað en í heild fyrir
árið er búist við 3,5% aukningu.
Mikil söluaukning
Aukning varð á sölu bíla í öllum
eldsneytisflokkum, þar af 45,9% í
flokki bíla sem knúnir eru með afl-
rás sem brúkar aðra orku en ein-
göngu bensín eða dísilolíu.
Í síðustu viku voru birtar upp-
lýsingar sem benda til að fólk
mæti kreppu með því að snúa sér
í auknum mæli að minni og hag-
kvæmari notuðum bílum, árs-
gömlum eða eldri.
Fiesta og Corsa berjast um toppsætið
Vauxhall ógnar Ford
Vauxhall Corsa sækir ört á í keppninni við Ford Fiesta um titilinn vinsæl-
asti bíll Bretlands. Ford Focus og Vauxhall Astra njóta líka hylli.
ekki um tvinnbíl að ræða.
Jeep Liberty fékk einhverja léleg-
ustu einkunn úr reynsluakstri
Consumer Report. Segir blaðið
aksturseiginleika hans slaka á veg-
um en viðkunnanlegri utan vegar.
Lesendur ritsins gáfu Ford Edge
slaka einkunn fyrir endingu, sögðu
hana langt undir meðallagi. Þeir
kunnu heldur ekki að meta „flókið
og innsæislítið“ upplýsinga- og
Bandaríska neytendaritið velur ár-
lega og útnefnir fimm vinsæla bíla
sem það segir að neytendur ættu
að forðast. Meðal þeirra í ár eru
Toyota Prius C og Honda Civic,
sem notið hafa mikilla vinsælda í
Bandaríkjunum.
Blaðið segir að bílarnir fimm séu
eflaust ofarlega í huga fólks sem
hyggi á bílakaup. Þeim væri nær að
láta þá eiga sig. Ástæðan er sú að
þeir komu ekki nógsamlega vel út
úr tilraunum tímaritsins eða bila
oft.
Tímarit þetta er í metorðum haft
og eftir umsögnum þess tekið. Auk
Prius og Civic eru á lista þess í ár
hálfjeppinn Jeep Liberty, Ford Edge
og Dodge Grand Caravan.
Rykkjóttur og hávaðasamur
Blaðið segir að Honda „hafi stytt
sér of oft leið við nýjustu útfærslur
Civic. Bíllinn sé misþýður á ferð, of
mikill hávaði sé í farþegarými, stýr-
ið svari ómarkvisst og lítið sé varið í
innréttinguna. Þó megi bíllinn eiga
það að hann sé áreiðanlegur og
endingargóður.
Prius C er ódýrasta útgáfa tvinn-
bílsins frá Toyota og segir blaðið
ekki mega blanda honum saman
við aðrar útgáfur sem skapað hafi
Toyota gott orð á sviði tvinnbíla.
Edge fær slæman dóm
„Það hve hastur hann er, hávaði í
farþegarými, slök hröðun og bil-
lega útlítandi innrétting þjakar C-
bílinn,“ segir blaðið og ráðleggur
lesendum að kaupa sér frekar
Honda Fit en hann, en þar er þó
hljómkerfi bílsins, MyFord Touch.
Aðstandendum Dodge Grand
Caravan verður tæpast skemmt
við lesturinn. Þessi æruverðugi
sendibíll er „fjölhæfur, nytsamur
og vel búinn. En hann þjáist af braki
og brestum, skrölti, slakri innrétt-
ingu og óþjálli hliðarhurð. Eyðslu-
semi hans var ekki til að bæta upp
á sakirnar“.
agas@mbl.is
Neytendasamtök vara við fimm bílum
Prius og Civic vafasamir
AFP
Í bandarískri bílasmiðju. Margt ber að hafa í huga og varast við bílakaup.