Morgunblaðið - 05.01.2013, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2013
ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939
Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00
Opið um helgar frá 18:00 - 23:00
frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com
Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar
Þrír Frakkar
Café & Restaurant
Grilluð lúðuflök
m/soya-smjörsósu og
wasabi-kartöflumús
ÓDÝRU BÍLALEIGUBÍLARNIR
VORU AÐ KOMA!
Vertu fyrstur, fáðu þann besta!
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | hofdahollin@hofdahollin.is
Eigum allskonar bíla,
langar þig í einn?
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 580 8900 | bilalind.is
Ertu með kaupanda?
Skjalafrágangur frá 14.990 kr.
Löggildir bílasalar tryggja öryggi beggja aðila
Fylgstu með okkur á facebook
Sölulaun
frá 39.900 kr.
…„ fór drýgsti hluti áramótaávarps
forsetans í að fjalla um þá meinloku
ríkisstjórnarinnar að kollvarpa þurfi
stjórnarskrá landsins. Engin skýring
er til á hvað rak ríkisstjórnina í það
verk né hvers vegna hún setti málið í
hinn fráleita far-
veg.“
Orð þessi eru
fengin úr leiðara
Morgunblaðsins
þann 3. janúar síð-
astliðinn, sem
fjallar um ávarp
forseta Íslands á
nýársdag. Þar tók
hann fyrir tillögur
stjórnlagaráðs,
sem er eins og kunnugt er eitt af
„rifrildum“ stjórnmálanna og þar sem
hver höndin er upp á móti annarri.
Leiðarinn ómerkti ber allur þess
merki að vera verk fyrrverandi for-
sætisráðherra landsins, Davíðs Odds-
sonar, annars ritstjóra blaðsins. Svo
virðist vera sem höfundur sé búinn að
gleyma því hvaðan krafan um nýja
stjórnarskrá kemur. Nú, þá er eins
gott að rifja það upp, en ný stjórn-
arskrá og stjórnarfarslegar umbætur
voru eitt af því sem fylgdi „Búsá-
haldabyltingunni“ í kjölfar skipbrots
banka og efnahagskerfisins haustið
2008.
Andstaðan við nýja stjórnarskrá
kemur mest frá íhaldsöflum þessa
samfélags. Öflum sem á fögrum
stundum tala um fullveldi landsins
og að við því megi alls ekki hrófla.
En er það ekki einmitt merki um
fullvalda og sjálfstæða þjóð að setja
sér eigin stjórnarskrá í kjölfar jafn
dramatískra atburða og hér gerðust
árið 2008? Bandaríkin settu sér sína
stjórnarskrá að loknu sínu frels-
isstríði gegn breska heimsveldinu og
tók hún gildi í mars 1789. Núverandi
stjórnarskrá Frakklands á einnig
rætur að rekja til sama árs, þegar
lýðræðisbylting skók franskt sam-
félag og hafði áhrif um allan heim.
Bandaríkin hafa gert um 27 breyt-
ingar á sinni stjórnarskrá, en þær
breytingar sem gerðar hafa verið á
þeirri íslensku eru aðeins um sjö frá
árinu 1944.
En sú 320.000 manna þjóð sem
býr hér á Íslandi skal rífast um
stjórnarskrá. Er málið enn ein birt-
ingarmynd þess að hér á landi eru
hagsmunir ákveðinna hópa varðir
með kjafti og klóm. Einhvers staðar
á milli þessara sérhagsmuna velkist
svo almenningur og hagsmunir
hans; „almannahagsmunirnir“. Og
einhvern veginn fær maður það allt-
af á tilfinninguna að það séu þeir
sem bera skarðan hlut frá borði. Það
er það sorglega í þessu öllu saman.
GUNNAR HÓLMSTEINN
ÁRSÆLSSON,
framhaldsskólakennari.
Meðvitað minnistap?
Frá Gunnari Hólmsteini
Ársælssyni
Gunnar Hólm-
steinn Ársælsson
Bréf til blaðsins
Smávægileg
mistök urðu
við vinnslu
töflu í grein
Sigurbjörns
Svav-
arssonar í
blaðinu í
gær. Við
birtum töfl-
una aftur
leiðrétta og
biðjumst vel-
virðingar á
mistökunum.
LEIÐRÉTT
Tafla 2: Verðbólga - raunveruleg eða útreiknuð?
100 107,5 115,0 111,5 111,9
100 112,4 125,9 132,7 138,0
B
re
yt
in
g
í%
150
140
130
120
110
100
2007 2008 2009 2010 2011
100 100
107,5
112,4
125,9
115,0
132,7
111,5
138,0
111,9
Neysluút-
gjöld (raun)
Vísitala
neysluverðs
Mistök í vinnslu
Verðbólga er alvar-
legt vandamál sem
stjórnvöldum hefur
ekki tekist að ráða við.
Í stað þess að koma
böndum á sjálfa verð-
bólguna hefur vand-
anum verið sópað und-
ir teppi
verðtryggingar. Sú leið
felur í sér að fjárfestar
njóta tryggingar gegn
verðbólgu en því miður er sú trygg-
ing á kostnað allra annarra í sam-
félaginu.
Um þá leið verður seint sátt og
enn síður ef verðtrygging er einnig
túlkuð sem altrygging gegn efna-
hagsáföllum. Með því að velta þann-
ig verðbólgu og efnahagsáföllum al-
farið á lántakendur munu
tugþúsundir heimila og þúsundir
fyrirtækja burðast með stökkbreytt
lán árum saman. Sá skuldaklafi tef-
ur mjög endurbata í hagkerfinu og á
því tapa allir, einnig fjárfestar.
Trygging gegn hruni?
Það sætir furðu að hrein vinstri-
stjórn skuli standa að því óréttlæti
að velta hruninu alfarið á lántak-
endur. Næsta ríkisstjórn verður að
hafa kjark til að gera almenna
skuldaleiðréttingu. Allt umfram
venjulegar verðhækk-
anir er efnahagshrun
sem fjárfestar og lán-
takendur eiga að bera í
sameiningu. Hvar
stendur í lánasamn-
ingum að lántaki tryggi
lánveitanda gegn efna-
hagsáföllum og setji að
veði aleigu sína og
framtíðartekjur?
Rót vandans
En hver er raun-
veruleg rót vandans?
Hvernig mætti draga úr verðbólgu
og fyrirbyggja annað efnahagshrun?
Hér sem annars staðar hafa bankar
fengið að auka peningamagn mun
hraðar en hagkerfið vex. Afleiðingin
er sú að sífellt fleiri krónur eltast við
sömu framleiðsluna, sem leiðir til
verðhækkana og verðbólgu. Fái pen-
ingamagn að fimmfaldast á fimm ár-
um, eins og hér gerðist á árunum
2003-2008 þá leiðir það óhjákvæmi-
lega til hruns.
Taumlaus peningamyndun
Peningaþensla er afleiðing þess að
viðskiptabönkum er leyft að auka
peningamagn að vild. Ekkert hefur
verið gert til að koma böndum á pen-
ingamyndun banka eða fyrirbyggja
annað hrun af þeirra völdum í fram-
tíðinni. Viðskiptabankar græða enn
á verðbólgu og fá vexti af þeim pen-
ingum sem þeir skapa. Þetta fyr-
irkomulag er beinlínis hættulegt.
Örugg lausn
Lausnin er að setja lög sem koma
í veg fyrir að bankar geti aukið pen-
ingamagn. Hlutverk banka verði að
miðla sparnaði til lántakenda, en
ekki að búa til nýja peninga eins og
nú er. Peningamyndun verði alfarið í
höndum Seðlabanka með þarfir hag-
kerfisins og verðstöðugleika að leið-
arljósi. Ágóði af nýmyndun peninga
rennur þá óskiptur til almannahags-
muna en ekki til eigenda bankanna.
Þessi breyting myndi draga úr
peningaþenslu og verðbólgu af
hennar völdum. Auk þess myndi
vaxtabyrði í samfélaginu og skuldir
fara minnkandi eins og lýst er nánar
á þessari vefsíðu www.betrapen-
ingakerfi.is
Ráðumst að rót
verðbólgunnar
Eftir Frosta
Sigurjónsson »Hvar stendur í lána-
samningum að lán-
taki tryggi lánveitanda
gegn efnahagsáföllum
og setji að veði aleigu
sína og framtíðar-
tekjur?
Frosti Sigurjónsson
Höfundur er rekstrarhagfræðingur
og skipar 1. sæti Framsóknarflokks-
ins í Reykjavík norður.
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift