Morgunblaðið - 10.01.2013, Page 1
Morgunblaðið/ÞÖK
Keflavíkurflugvöllur Lögreglan
tók mann með fíkniefni innvortis.
Tæplega fertugur karlmaður frá
Senegal situr nú í gæsluvarðhaldi
vegna fíkniefnasmygls. Hann
mun vera búsettur á Spáni.
Lögreglan á Suðurnesjum
handtók manninn á Keflavíkur-
flugvelli 30. desember síðastlið-
inn. Hann var þá að koma frá
Kaupmannahöfn. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins
reyndist maðurinn vera með rúm-
lega hálft kíló af kókaíni innvortis.
Hann mun vera búinn að skila
efnunum af sér.
Hann var úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 11. janúar nk. Ekki
hafa fleiri verið handteknir vegna
málsins. Það er til rannsóknar hjá
lögreglunni á Suðurnesjum.
Í fyrra var fertugur karl tekinn
í Leifsstöð með tæplega 1,3 kíló af
kókaíni í iðrum sér. Það var talið
vera met, að minnsta kosti hér á
landi. Um miðjan október 2012
höfðu níu burðardýr verið tekin í
Leifsstöð það sem af var árinu
með samtals nærri 2,7 kíló inn-
vortis. gudni@mbl.is
Með kókaín innvortis
Útlendingur var tekinn með rúmlega hálft kíló af
kókaíni á Keflavíkurflugvelli og situr nú í gæsluvarðhaldi
F I M M T U D A G U R 1 0. J A N Ú A R 2 0 1 3
Stofnað 1913 7. tölublað 101. árgangur
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
GERÐI MYND UM
FJALLFERÐ
TUNGNAMANNA
ÚTRÁS ÍSLENSKS
ÚTIVISTAR-
FATNAÐAR
VERK Á MÖRKUM
VÍSINDA, LEIK-
HÚSS OG DANS
VIÐSKIPTABLAÐ STUNDARBROT 42ÓVEÐUR SKALL Á 10
Gangandi vegfarendur í Austurstræti og víðar í
höfuðborginni reyndu eftir mætti að verja sig
gegn rigningunni í gær, eftir því sem hægt var
vegna vindhviðanna sem stundum feyktu hlífunum
til. Útlit er fyrir áframhaldandi úrkomu á sunn-
anverðu landinu og framan af degi í dag er búist
við slyddu á vestanverðu landinu. Regnhlífarnar
geta því komið áfram að gagni. Veðurstofan spáir
bjartviðri á norðaustanverðu landinu. Veður fer
heldur kólnandi og er útlit fyrir að frost verði víð-
ast hvar um helgina. Kaldast verður í innsveitum
norðanlands.
Morgunblaðið/Ómar
Áfram þörf fyrir regnhlífar
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Hins vegar er ekki loku fyrir það skotið að
leyfishafar gætu krafið íslenska ríkið um
endurgreiðslu rannsóknarkostnaðar verði
vinnsluleyfi alfarið hafnað,“ segir Skúli
Thoroddsen, lögfræðingur Orkustofnunar,
spurður hvort
handhafi leyfis til
rannsókna og olíu-
leitar á Dreka-
svæðinu geti krafið
ríkið um bætur ef
ferlið er stöðvað
áður en að vinnslu
kemur, þrátt fyrir
að öll skilyrði hafi
verið uppfyllt.
Tilefnið er þau
ummæli Stein-
gríms J. Sigfússon-
ar, atvinnuvega- og
nýsköpunarráð-
herra, í útvarps-
þættinum Spegl-
inum að nýútgefin sérleyfi til tveggja hópa
„jafngildi ekki ákvörðun um að leyfa bor-
anir eða vinnslu“ á Drekasvæðinu.
Kostar tugi milljóna bandaríkjadala
Gunnlaugur Jónsson, stjórnarformaður
Kolvetna ehf., segir að á fyrstu stigum
rannsókna sé lagt út í svonefndar tvívíðar
mælingar sem kosti sem svarar 645-1.290
milljónum króna, og síðan í þrívíðar mæl-
ingar fyrir sömu upphæð. Gera það sam-
anlagt 1.290-2.580 milljónir króna.
Við það bætist sambærilegur kostnaður
hins leitarhópsins sem var úthlutað sérleyfi
og má því ætla að hóparnir þurfi að greiða
alls 2,5-5 milljarða fyrir mælingar. Olíu-
boranir þurfa að fara í umhverfismat.
MPólitísk inngrip »12-13
Skapi
bóta-
skyldu
Pólitísk íhlutun í
olíuleit yrði dýrkeypt
Áhættusamt
» Líkur á að til-
raunaboranir
leiði til uppgötv-
unar kolvetna-
lindar geta verið
á bilinu 10-20%.
» Kostnaður við
eina holu getur
verið allt að
26.000 milljónir
króna.
Veikindi tíu starfsmanna Land-
spítalans við Hringbraut eru talin
tengd myglusvepp sem greinst hef-
ur á vinnustað þeirra. Er það helm-
ingur þeirra starfsmanna sem hafa
vinnuaðstöðu í viðkomandi álmu
elsta hluta spítalahússins.
Sumir starfsmannanna hafa ver-
ið á ströngum lyfjakúrum vegna of-
næmissjúkdóma í öndunarfærum
og ofnæmisbólgu í nefholum og
aðrir hafa auk þess farið í skurð-
aðgerðir í nefholi í von um að losna
við veikindin. Sumir fóru að finna
fyrir einkennum fyrir 3 árum. »4
Tíu starfsmenn
Landspítala
hafa veikst
Skemmdir Rakavandamálin eru í elstu
byggingu Landspítalans við Hringbraut.
Flugmála-
stjórn Íslands
mun í dag gefa út
ný lofthæfis-
skilríki á allan
flugflota Land-
helgisgæslunnar.
Er það gert til
þess að skýra
betur orðalag
sem í núgildandi
skilríkjum veldur
misskilningi um hvort heimilt sé að
fljúga vélum út fyrir 12 mílur.
Í gærkvöldi sótti TF-LÍF, þyrla
Gæslunnar, veikan sjómann um
borð í fiskiskip sem var statt á
Halamiðum, 21 sjómílu frá landi og
flutti hann til Reykjavíkur. »14
Gefa út ný lofthæf-
isleyfi á allar vélar
Æfing Þyrla Gæsl-
unnar við æfingu.
Greiðslur úr sjúkra-
sjóðum verkalýðs-
félaganna hafa auk-
ist mjög síðustu
árin. Forsvarsmenn
félaga og sjóða
rekja þetta til
krafna um að menn
ljúki réttindum sín-
um hjá sjúkrasjóði
áður en önnur úr-
ræði komi til. Þá
hafi langtímaveikindi aukist. Vinnuálag
hafi aukist, sérstaklega hjá opinberum
fyrirtækjum, og það leiði til aukinna
veikinda. Mest er þetta áberandi í
kvenna- og umönnunarstörfum. »6
Veikindi vegna
vinnuálags