Morgunblaðið - 10.01.2013, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 10.01.2013, Qupperneq 25
25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013 Ævintýri Vera má að álft þessi sé að spyrja spegilinn rétt eins og í ævintýrinu hver sé fegurst í heimi hér. En þó er líklegra að hún sé að fá sér að drekka af því vatni sem flýtur ofan á ísnum. Ómar Mikið hefur verið fjallað um myglu- sveppi sem hafa tekið sér bólfestu í híbýlum landsmanna og fór umræðan sérstaklega af stað þegar ljóst var að fjöldi nýrra húsa á Austurlandi er sýktur af myglusveppum. Sveppir af þessari tegund hafa fylgt hí- býlum manna alla tíð. Til dæmis er fjallað um þá í Biblí- unni, 3. Mósesbók. „Hús sem búið er í eiga að vera heilbrigð, án raka, sveppa og annarra óhreininda sem geta haft áhrif á heilsu fólks.“ Myglusveppurinn er hluti af hringrás lífsins, hlutverk hans í hringrásinni er að brjóta niður líf- ræn efni þannig að til verði jarð- vegur sem lífverur geta vaxið í. Sveppir senda frá sér örsmá gró. Hlutverk gróa er að festa rætur og mynda sveppi sem hefja niðurbrot. Forsendur þess að niðurbrot geti hafist eru að vatn, næring og hiti séu til staðar. Gróin svífa með vindinum og til- viljun ein ræður hvar þau lenda inni eða úti. Þau berast þannig inn í vistarverur okkar um glugga, hurðir, með loftræstikerfum og með loftun í veggjum og þökum. Gró sem berast inn í hús blandast við rykið sem er í húsinu og berast þannig um húsið og setjast ofan á hillur, undir rúm og inn í bækur; sem sagt alls staðar þar sem ryk sest. Í húsum sem eru laus við raka ná gróin ekki að spíra og eru fjar- lægð með öðru ryki þegar þurrkað er af og eða ryksugað. Gró sem berast inn í hús þar sem raki er vandamál spíra og hefja það verkefni sem þeim er ætlað að vinna að mynda sveppi sem brjóta niður lífræn efni svo sem pappa, pappír, lím, málningu, tré og öll lífræn efni sem finnast í ryki. Raki verður vandamál þegar hann kemst inn í lokuð rými. Til dæmis þegar rakasperra (rakavörn í veggjum) er óþétt og rakt inni- loftið kemst inn í veggi eða þök þar sem það mætir köldum flötum og rakinn þéttist úr loft- inu og sest fyrir (eins og droparnir sem myndast utan á glasi af köldu vatni). Sömuleiðis er raki oft mikill í byggingum á byggingartíma og þess ekki alltaf gætt að rakinn sé farinn þegar gengið er frá einangrun og veggj- um og þökum lokað, en þá myndast einnig kjöraðstæður fyrir gróin. Hús eru mjög þétt í dag og því helst raka loftið sem fylgir okkur inni í hús- inu ef við loftum ekki út. En raki myndast þegar við eldum mat, för- um í bað og eða bara öndum. Algeng orsök sveppa er vatns- leki og oft verðum við ekki vör við þennan leka fyrr en eftir langan tíma og þá hafa myndast kjör- aðstæður fyrir gróin að spíra. Þeg- ar vart verður við lekann þarf að uppræta hann og sjá til þess að raka svæðið verði þurrkað vel og sýkt svæði hreinsað áður en geng- ið er endalega frá. Fyrst þurfum við að hafa það í huga að gróin spíra í húsum okkar þegar raki og hiti er nægur. Því til viðbótar þurfa að koma til lífræn efni sem er nóg af í húsum. Dag- lega þurfum við að umgangast vistarverur okkar þannig að ekki geti myndast kjöraðstæður fyrir gróin til að spíra og það gerum við með því að lofta út. Þegar hús eru hönnuð þarf að gæta þess að loftunin sé rétt hönnuð. Hér er átt við alla loftun í húsum, klæðningu og þök að utan og innan. Frágangur á einangrun og rakavarnarlagi þarf einnig að vera rétt hannaður og hönnun á lögnum þarf að vera þannig að ekki sé hætta á smiti vegna kaldra röra. Óvönduð vinnubrögð við bygg- ingu húsa eiga stóran þátt í því að raki er í húsum. Þaksperrur geta hafa verið keyptar af timbursölum sem geyma efnið úti og þar af leið- andi safnast í sperrurnar raki sem hleypir af stað sýkingu. Einnig gerist það oft að verktakar koma með sperruefnið snemma á bygg- ingarstaðinn og skilja það eftir óvarið fyrir veðri og vindi. Einnig er það algengt að sperrur eru reistar og þakið klætt en stendur síðan óvarið í lengri tíma. Ef bygg- ingu er lokað áður en búið er að þurrka hana myndast kjör- aðstæður fyrir gróin að spíra. Byggingunum getur verið lokað í miklum raka, jafnvel með ofan- greindan raka byrgðan inni og þess ekki gætt að það lofti nægi- lega um byggingarnar. Þegar svo sólin skín og hiti hækkar inni vakna gróin til lífs og geta þessar byggingar þá orðið grámyglaðar að innan. Oft er gengið frá ein- angrun, klæðningu á veggjum og loftum og jafnvel innveggir reistir þegar þetta rakaástand er í bygg- ingunni og lokast þá af rými með kjöraðstæður fyrir gróin. Algengt er að veggir séu yfirborðs- meðhöndlaðir eftir að sýking hefur komist í fletina og við réttar að- stæður er hætta á að sveppirnir nái sér á strik. Í dag er mikið rætt um vistvæn- ar byggingar, en þessar byggingar eru gjarnan enn þéttari en aðrar og kalla á enn meiri aðgát við hönnun og að farið sé eftir öllum reglum hvað varðar framkvæmdir. Að auki þarf að lofta út í þessum byggingum eins og öðrum. Sveppir spyrja ekki að því hvaða lífræna efni þeir eru sestir á og ef raki og hiti er til staðar þá lifna þeir við. Því þarf að hafa í huga hvaða aðstæður auka líkur á sveppamyndun, hvort sem litið er til þess þegar hús eru byggð (t.d. varðandi rakastig á efni eða að- ferðir við byggingu) eða í þeim er búið (t.d. þegar vart er við leka eða hugað er að daglegri loftun). Eftir Eirík Þorsteinsson »Hvað þarf að hafa í huga varðandi að- stæður sem auka líkur á sveppamyndun í húsum og hvernig á að bregð- ast við? Eiríkur Þorsteinsson Höfundur er sérfræðingur í timbri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Trétækniráðgjöf slf. Hvað eru myglusveppir í húsum? Í Morgunblaðsgrein varaþingmanns Sjálf- stæðisflokksins, Óla Björns Kárasonar, er forsætisráðherra ásak- aður um að segja ósatt um skuldastöðu heimila og fyrirtækja í ára- mótaávarpi sínu. Sann- leikanum verður hver sárreiðastur. Varaþing- maðurinn spyr hvaðan upplýsingarnar koma um lækkandi skulda- stöðu heimila og fyr- irtækja og af sinni eigin visku kemst hann að allt annarri niðurstöðu en þar voru lagðar fram. Því er skemmst frá því að segja að tölur um skuldir fyrirtækja og heimila eru fengnar frá Seðlabanka Íslands sem kynnir þessar töl- ur reglulega og skil- merkilega. Í síðustu útgáfu Pen- ingamála Seðlabankans kemur fram svart á hvítu að skuldastaða heimila og fyrirtækja hefur lækkað um tvö- falda landsframleiðslu á einungis þremur árum eins og fullyrt var í áramótaávarpinu. Auðvitað eru af- skriftir erlendra kröfuhafa vegna falls íslensku bankanna ekki teknar með enda hefði lækkun skuldastöð- unnar verið miklu meiri hefði það verið gert. Skuldir heimila lækka um 300 milljarða Samkvæmt tölum Seðlabankans voru skuldir heimila og fyrirtækja 278% af landsframleiðslu 1. sept- ember síðastliðinn. Sé farið um þrjú ár aftur í tímann, að miðju ári 2009, voru skuldir heimila og fyrirtækja 484% af landsframleiðslu. Hæst fór skuldastaða heimila og fyrirtækja upp í 510% af landsframleiðslu og hafa þær því lækkað um tæpan helm- ing frá haustinu 2008. Skuldastaða fyrirtækja og heimila nú er svipuð og hún var í lok árs 2005 og ekki er víst að allir átti sig á þeirri staðreynd. Þetta kemur allt skýrt fram í töflum Seðlabankans sem ég hvet varaþingmanninn til að kynna sér áður en hann ryðst fram á rit- völlinn. Það er sérlega ánægjulegt að sjá að skuldir heimilanna hafa lækkað um tæp 23% prósentustig af lands- framleiðslu á þremur árum. Það er meira en 300 milljarða króna lækkun á skuldum heimilanna en ekki 200 milljarða króna lækkun eins og varaþingmað- urinn fullyrðir. Meiri hagvöxtur en annars staðar Auðvelt er að svara öðrum aðfinnslum vara- þingmannsins. Það er staðreynd að halli rík- issjóðs var 216 millj- arðar króna þegar Sjálfstæðisflokkurinn fór frá völdum. Og það er sömuleiðis staðreynd að tekist hefur nú að eyða nánast halla rík- issjóðs á fjórum árum. Þessi umskipti í ríkisfjármálunum hafa vakið mikla athygli erlendis þótt þau hafi farið framhjá varaþing- manninum. Það er einnig staðreynd að óstjórn Sjálfstæðisflokksins í Seðlabankanum kostaði ríkið um 270 milljarða króna en sú staðreynd sést í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Það er sömuleiðis staðreynd að hagvöxtur hefur verið meiri hér á landi und- anfarin tvö ár en í nánast öllum okkar samanburðarlöndum. Og hagvaxt- arhorfurnar eru bjartari hér en víð- ast hvar annars staðar. Þótt margt sé óunnið og fórnir almennings í kjölfar bankahrunsins hafi verið miklar er hins vegar ekki sanngjarnt að villa fyrir almenningi með þeim hætti sem varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins gerði í grein sinni. Hér hefur náðst ýmis árangur sem rétt er að halda á lofti og við erum farin að sjá til lands. Opinberar hagtölur staðfesta það burtséð frá heimatilbúnum hrak- spám varaþingmanns Sjálfstæð- isflokksins. Staðreyndir ljúga ekki Eftir Ágúst Ólaf Ágústsson Ágúst Ólafur Ágústsson » Í síðustu út- gáfu Pen- ingamála Seðla- bankans kemur fram svart á hvítu að skulda- staða heimila og fyrirtækja hefur lækkað um tvöfalda lands- framleiðslu. Höfundur er efnahagsráðgjafi forsætisráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.