Morgunblaðið - 10.01.2013, Qupperneq 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Taktu það ekki nærri þér, þótt ein-
hverjir bregðist illa við þegar þú vilt eiga við
þá samvinnu. Láttu alla hlutaðeigendur koma
með hugmyndir og finndu svo lausn sem allir
geta sætt sig við.
20. apríl - 20. maí
Naut Nýttu tækifærið til þess að skemmta
þér. Maki þinn sýnir rausnarskap, kannski
ekki í stórum dráttum, en á lítinn, nánast
ósýnilegan máta sem styrkir böndin.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú lætur einskis ófreistað í leit að
sannleikanum, jafnvel þótt það baki þér óvin-
sældir. Fólk er mun opnara fyrir hugmyndum
þínum og spyr þig frekar ráða en áður.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Sjálfsöryggi bætir upp litla reynslu
þínu á ákveðnu sviði. Verkefni tengd leiðbein-
ingum, menntun og menningu eru styrkur
þinn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það hentar þér best að vinna ein/n í
dag því aðrir munu bara tefja þig og jafnvel
eyðileggja fyrir þér. Dirfska þín í verkefnavali
vekur aðdáun annarra.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Viðskipti geta verið varasöm, þegar
ekkert tillit er tekið til aðstæðna. Taktu þér
tíma til þess að kanna heilsuna.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú er ekki rétti tíminn til að byrja á nýju
verkefni því þú ert of annars hugar til þess.
Slúðrið sem þú heyrir reynist sérstaklega vel.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert einstaklega vinnusamur í
eðli þínu og munt ná takmarki þínu ef þér
tekst að virkja annað fólk til að bera sinn
hluta byrðarinnar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það þýðir ekkert að sitja með
hendur í skauti og bíða þess að aðrir geri
hlutina fyrir mann. Fyrirætlanir þínar eru
fyrsta skrefið að breytingum í lífi þínu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vertu ekki alltaf að velta því fyrir
þér hvað öðrum kunni að finnast um orð þín
og gjörðir. Haltu þig við raunveruleikann og
þá fer allt vel. Njóttu kvöldsins með bestu
vinum þínum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Dagurinnn á eftir að reynast þér
erfiður og engu líkara en að þú sitjir löngum
stundum fastur í umferðarhnút. Fólk laðast
að þér af persónulegum ástæðum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vinnuaðferðir þínar mæta nú skilningi
manna og þú getur reiknað með því að ár-
angurinn láti ekki á sér standa. Leyfðu þér að
njóta lífsins því lífið er stutt, sama hversu
gömul við verðum.
Páll Jónasson sendi vinum sínumáramótagátu, smá heila-
leikfimi með steikinni um kvöldið:
Margur þetta mannsnafn ber,
merkilegur fugl sá er,
orðið dauða merkir menn,
menn þar sparka bolta enn.
Hann óskaði eftir svari í bundnu
máli. En í millitíðinni fékk hann
hugmynd að vísu sem hann lét
flakka „óslípaða“:
Óskin mín er alveg klár,
óðar færð í bundið mál:
Að gott þið fáið át og ár,
ætlar Páll að vona. Skál!
Jón Gissurarson heimsótti Jóa í
Stapa og voru margar góðar vísur
rifjaðar upp. Það varð til þess að
Jón kastaði fram hringhendu:
Ellin mæðir ekki par
illt þó næði tíðarfar
og af gæðum ágætar
út þá flæða vísurnar.
Jói í Stapa verður 89 ára nú í jan-
úar og það tók hann ekki langan
tíma að svara í sömu mynt:
Rökin slyngur rekur þar,
rím í syngur muna
og hann þvingar ekki par
að yrkja hringhenduna.
Kristján Runólfsson segist ekki
hafa gert mikið af hestavísum, en
teflir fram einni sem varð til í kaffi-
tímanum. Þetta er krosshenda sem
má lesa bæði lárétt og lóðrétt.
Sprækur foli fetar veginn,
foli nettur vakur rásar,
fetar vakur valur tauma,
veginn rásar tauma slakur.
Jón Ingvar Jónsson hefur einnig
gert hestavísu:
Þótt ég eigi afbragðs prest
og oft mig krossi,
æ, mér líður alltaf best
oná hrossi.
Ragnar Ingi Aðalsteinsson rifjar
á Boðnarmiði upp vísu eftir Hákon
bróður sinn, sem fékk boð um að
koma í útreiðartúr og afþakkaði
það í bundnu máli:
Týndir og slasaðir bíða menn bana
sem bægslast á hestum um grundir og
hlíð.
Ég hef fram að þessu haft fyrir vana
að horfast í augu við það sem ég ríð.
Sá gamli yrkir á fésbókinni:
Gott að vanda er geðið vort.
Gaman finnst mér þó að
lengi hafi ég lítið ort
og lengi hafi snjóað.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af áramótagátu, Jóa í
Stapa og hestavísum
eftir Jim Unger
„HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ÉG HEYRÐI AÐ ÞÚ
HEFÐIR HÆTT Í BANKANUM?“
HermannÍ klípu
„ÞARNA LIGGUR VANDINN. ÞEGAR ÞÚ
UPPFÆRIR TÆKJABÚNAÐINN ÞARFTU
LÍKA AÐ UPPFÆRA STARFSFÓLKIÐ.“
eftir Mike Baldwin
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hlakka til að eiga
annað dásamlegt ár
með þér.
ÉG VEIT AÐ ÞÚ
ERT AÐ BRALLA
EITTHVAÐ!
JÁ, EN
HVAAAAÐ?
ÉG FANN LOKS LAUSNINA
Á HREKKJUSVÍNSVANDAMÁLI
ÞÍNU, HAMLET ...
HVER ER
HÚN?
HENGDU ÞETTA Á
BAKIÐ Á HREKKJU-
SVÍNINU!
ÉG E
R
HRE
KKJU
SVÍN
,
SPA
RKA
ÐU Í
MIG
!
brúðkaupsafmælið
Til hamingju með
Víkverji hefur löngum velt fyrir sérstarfsemi mannanafnanefndar
og valdinu, sem fylgir því að fá að
ákveða hvað annað fólk má og má
ekki heita. Nú fyrir jólin samþykkti
mannanafnanefnd til dæmis að skíra
mætti nafninu Alína, en ekki mætti
heita Christa. Þá hlutu nöfnin Kjói og
Hylur náð fyrir augum nefndarinna,
en ekki X.
x x x
Þau rök voru meðal annars notuðað í íslensku byrjuðu engin nöfn
á stafnum X. Víkverji veit að slík nöfn
eru ekki algeng, ekki heldur í erlend-
um nöfnum, en man þó í fljótu bragði
eftir tveimur, Persakónginum Xerx-
esi og Xanþippu, eiginkonu Sókrat-
esar, en hann mun hafa sagt að erf-
iðast væri að lynda við hana af öllum
konum og einmitt þess vegna hefði
hann gengið að eiga hana. Víkverji
bíður þess að mannanafnanefnd fái
annað þessara nafna til að skera úr
um hvort nota megi á íslensk börn.
x x x
Víkverji fór að velta manna-nafnanefnd fyrir sér þegar
komst í heimsfréttirnar að Blær
Bjarkardóttir mætti ekki lengur
heita Blær vegna úrskurðar manna-
nafnanefndar. Blær mun vera karl-
mannsnafn og nefndin telur að það sé
hætt við glundroða geti kvenmenn
einnig borið nafnið.
x x x
Víkverji veit til þess að í útlöndumviðgengst slíkur óskundi. Nafnið
Andrea er til dæmis notað um jafnt
karla sem konur og má benda á að
ítalskur karlsöngvari heitir Andrea
Bocelli. Þá hefur körlum verið gefið
nafnið María, samanber belgíski
markmaðurinn Jean-Marie Pfaff.
Hvorugt þessara tilfella mun hafa
valdið miklum usla í heimalöndum
þessara ágætu karla.
x x x
Auðvitað getur verið vandræðalegtað fá tölvupóst frá ókunnugum
einstaklingi þar sem nafnið gefur
ekki ótvírætt til kynna hvort um sé að
ræða karl eða konu, en slík vandræði
munu vart breyta gangi himin-
tunglanna. víkverji@mbl.is
Víkverji
En Drottinn er hinn sanni Guð, hann
er lifandi Guð og eilífur konungur.
Jörðin skelfur fyrir heift hans og þjóð-
irnar standast ekki reiði hans.
(Jeremía 10:10)
Ert þú frjáls?
Handfrjáls höfuðtól
SÍÐUMÚLA 35 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS
Dasan
Létt og þægilegt höfuðtól frá Dasan sem hægt er
að teng ja með USB við tölvu eða hefðbundnu síma-
tengi við borðsíma.
Jabra Pro 920 / 930 - þráðlaust
Þráðlaust DECT höfuðtól sem tengist nær öllum
gerðum símtækja og skiptiborða. Allt að 120m
drægni. Falleg og stílhrein hönnun.
USB 12.900 kr. Borðsíma eða USB - 33.900 kr.Borðsíma 9.900 kr.
Við bjóðum mikið úrval af handfrjálsum og
þráðlausum höfuðtólum. Kíktu til okkar, við
tökum vel á móti þér.