Morgunblaðið - 10.01.2013, Qupperneq 22
Sænskur saksóknari sagði
í gær að tveir Bretar hefðu
hagnast um milljónir evra,
eða hundruð milljóna ís-
lenskra króna, á því að
smygla kínverskum hvít-
lauk frá Noregi til Svíþjóð-
ar og koma sér þannig hjá
því að greiða innflutnings-
tolla Evrópusambandsins.
Saksóknarinn hefur óskað eftir því að dóm-
stóll í Gautaborg dæmi Bretana í varðhald.
Ekki hefur enn verið gefin út handtöku-
tilskipun á hendur þeim. Talið er að þeir hafi
stundað smyglið frá febrúar 2009 til júní
2010.
Saksóknarinn segir að mennirnir hafi kom-
ið sér hjá því að greiða alls 10,6 milljónir
evra, andvirði tæpra 1.800 milljóna króna, í
ESB-tolla með því að flytja inn hvítlauk til
Noregs og þaðan til Svíþjóðar. Hagnaður
þeirra hafi þó ekki verið svo mikill því þeir
hafi þurft að greiða tolla í Noregi, sem eru
lægri, auk þess sem dýrara sé að flytja hvít-
laukinn frá Kína með viðkomu í Noregi en
beint til Svíþjóðar. bogi@mbl.is
Högnuðust um hundruð
milljóna á hvítlaukssmygli
SVÍÞJÓÐ
Nýleg skoðanakönnun bandaríska fyrirtækis-
ins Public Policy Polling bendir til þess að að-
eins 9% Bandaríkjamanna hafi jákvæð við-
horf til Bandaríkjaþings. Svipað hlutfall, eða
10%, ber traust til Alþingis samkvæmt könn-
un Capacent Gallup hér á landi á liðnu ári.
Public Policy Polling ákvað að gera annars
konar könnun til að rannsaka vinsældir eða
óvinsældir Bandaríkjaþings í samanburði við
26 menn eða fyrirbæri. Í ljós kom að þingið
nýtur minni vinsælda en lýs, kakkalakkar,
umferðarteppur og fleiri óþægileg fyrirbæri.
Þegar þátttakendurnir voru spurðir hvort
þeir hefðu meira álit á þinginu eða lúsum
nefndu 69% lýs en 19% þingið. Að sögn fyrir-
tækisins er ástæðan líklega sú að fólk getur
losað sig við lýs en síðustu kosningar bendi til
þess að erfiðara sé að losna við þingmenn.
Munurinn var minni þegar vinsældir
kakkalakka og þingsins voru bornar saman.
45% höfðu meira álit á kakkalökkum en 43%
á þinginu. bogi@mbl.is
Lýs miklu
vinsælli en
þjóðþingið
Banda-
ríkjaþing
Vinsælli
en þingið
Óvinsælli
en þingið
Rósakál
Lýs
Ristilspeglun
Sölumenn
notaðra bíla
Tann-
rótargöng
Umferðar-
teppur Frakkland
Kakkalakkar
Donald Trump
Stjórnmála-
skýrendur í Washington
Lindsay
Lohan
Genghis Khan
Kardashian-fjölskyldan
Lekandi
Einelti
í skólum
Símasölumenn
Ebola-
veiran
Hagsmunaverðir í Washington
Fidel
Castro
Metamfetamínverksmiðjur
Kommúnismi
Norður-
Kórea
Þingið nýtur ekki svo
mikilla vinsælda
830 Bandaríkjamenn tóku þátt í könnuninni
dagana 3.-6. janúar,
Public Policy Polling
Niðurstöður könnunar
sem gerð var til
að bera vinsældir
Bandaríkjaþings
saman við vinsældir
ýmissa manna
og fyrirbæra
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013
Utanríkisráðherra Indlands kallaði
sendiherra Pakistans á sinn fund í
gær til að mótmæla árás pakist-
anskra hermanna sem Indverjar
segja að hafi fellt tvo indverska
hermenn í Kasmír og skorið höfuð-
ið af öðrum þeirra.
Utanríkisráðherra Pakistans
neitaði því að pakistanskir her-
menn hefðu skotið indverska her-
menn til bana eða farið inn á yfir-
ráðasvæði Indverja í Kasmír.
Hann lagði til að Sameinuðu þjóð-
irnar hæfu rannsókn á málinu.
Forðist aðgerðir sem
auki spennuna
Ríkisstjórn Indlands kom saman
til að ræða hvernig bregðast ætti
við árásinni. Báðir utanríkisráð-
herrarnir hvöttu til þess að ríkin
forðuðust hvers konar aðgerðir
sem gætu aukið spennuna í Kasm-
ír. Indland og Pakistan hafa þrisv-
ar sinnum háð stríð sín á milli frá
því að löndin fengu sjálfstæði frá
Bretlandi árið 1947, þar af tvisvar
vegna deilu þeirra um Kasmír.
Pakistanar segja að indverskir
hermenn hafi skotið pakistanskan
hermann til bana í Kasmír á
sunnudag. Indverjar segja að pak-
istanskir hermenn hafi farið inn á
indverska yfirráðasvæðið í fyrra-
dag og fellt hermennina tvo í skot-
bardaga. Þeir hafi síðan skorið höf-
uðið af öðru líkinu og tekið það
með sér. Þeir hafi einnig reynt að
afhöfða hitt líkið en ekki tekist
það. „Það var sár á hálsinum á
öðru líkinu,“ hefur fréttaveitan
AFP eftir indverskum herforingja.
bogi@mbl.is
Sagðir hafa af-
höfðað hermann
Indverjar mót-
mæla árás Pakistana
í Kasmír
AFP
Spenna Lík hermannanna tveggja
flutt frá bænum Rajouri í Kasmír.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Embættismenn Sameinuðu þjóðanna segja að
hjálparstofnanir hafi ekki komið matvælum til
allt að milljónar manna sem þurfi á neyðar-
aðstoð að halda vegna átakanna sem geisað
hafa í Sýrlandi síðustu 22 mánuði.
Embættismenn Matvælaáætlunar Samein-
uðu þjóðanna (WFP) segja að talið sé að um 2,5
milljónir manna þurfi á matvælaaðstoð að
halda í landinu vegna átakanna. Aðstæðurnar á
átakasvæðunum hafi versnað og það hafi orðið
til þess að aðeins hafi verið hægt að koma mat-
vælum til 1,5 milljóna manna. Þörfin á aðstoð
hafi aukist en á sama tíma verði sífellt erfiðara
að koma hjálpargögnum á svæði þar sem
ástandið er verst.
Matvælaáætlun SÞ hefur veitt neyðarað-
stoðina í samstarfi við Rauða hálfmánann og
nokkrar aðrar hjálparstofnanir í Sýrlandi.
Skortur á hveiti og eldsneyti
Uppreisnarmenn hafa sótt í sig veðrið síð-
ustu vikur í baráttunni við hersveitir einræðis-
stjórnarinnar sem hafa veitt harða mótspyrnu í
grennd við Damaskus og fleiri borgir. Harðn-
andi átök og loftárásir stjórnarhersins hafa
orðið til þess að Matvælaáætlun SÞ hefur
neyðst til að flytja starfsmenn sína frá Homs,
Aleppo, Tartus og Qamisly, að því er fréttavef-
ur breska ríkisútvarpsins hefur eftir Elizabeth
Byrs, talsmanni stofnunarinnar.
Árásum á flutningabíla á vegum Matvæla-
áætlunar SÞ hefur fjölgað og tíu bílum hefur
verið stolið. Skortur á eldsneyti hefur einnig
hamlað hjálparstarfinu og dregið úr matvæla-
framleiðslunni í Sýrlandi.
Stór svæði hafa orðið uppiskroppa með
hveiti á síðustu mánuðum og langar biðraðir
eru orðnar daglegt brauð í bakaríum landsins.
Mörg bakarí í Aleppo hafa þurft að leggja nið-
ur starfsemi eða draga úr framleiðslunni. Upp-
reisnarmenn saka hersveitir einræðisstjórnar-
innar um að hafa gert árásir á bakarí af ásettu
ráði til að reyna að svelta andstæðinga hennar
til uppgjafar, að sögn breska dagblaðsins The
Guardian.
Koma ekki mat til
milljónar manna
Átökin harðna í Sýrlandi og neyðin eykst
AFP
Hörmungarástand Sýrlenskur piltur í flóttamannabúðum við landamærin að Tyrklandi.
GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ -ÞAÐ ER TENGI
Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 • www. tengi.is • tengi@tengi.is
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
STURTU- OG BAÐHURÐIR
með hertu öryggisgleri
ALMAR STURTUHAUSAR FJÖLBREYTT ÚRVAL
STAR STURTUHORN ÁN BOTNS OASIS STURTUHURÐ ÁN BOTNS
SKINNY handsturtuhaus
SPRING sturtuhaus
EMOTION sturtuhaus