Morgunblaðið - 10.01.2013, Page 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013
Það er ekkert
launungarmál að á
næstsíðasta ári varð
ég að sækja um
greiðsluaðlögun. Ég,
eins og margir Ís-
lendingar, hafði of
bjartsýna áætlun
fram í tímann. Áætl-
un sem gekk ekki
upp. Ég reisti mér
hurðarás um öxl.
Þrátt fyrir að hafa
nú selt þá fasteign
sem ég átti hlutdeild í, er mínu
máli ekki enn lokið hjá umboðs-
manni skuldara (UMS). Í þessu
sambandi verð ég að taka fram
að sá tilsjónarmaður sem mér
var skipaður hefur staðið sig
með prýði og komið málinu
áfram úr, að því er virðist, snig-
ilshjólförum UMS. Til að varpa
ljósi á þetta mál langar mig að
sýna þér, lesandi góður, feril
þessa máls.
1. 1. desember 2011 sótt um
greiðsluaðlögun.
2. mars 2012 kallað eftir upp-
lýsingum bæði símleiðis og bréf-
leiðis.
3. júní 2012 greiðsluaðlögun
samþykkt eftir 7 mánaða bið og
öflun gagna.
4. október 2012 loks skipaður
tilsjónarmaður með
aðsetur utan veggja
skrifstofu umboðs-
manns.
5. desember 2012
fasteign seld.
6. Þegar þetta
skrifað er ekki enn
komið svokallað
frumvarp fram um
hver endalok minna
mála verða.
Staðan er því sú að
skuldaúrlausnin nær
til þriðja almanaks-
árs, og er ekki lokið enn!
Mér er það fullljóst að þarna er
um flókin mál að ræða en sá bið-
tími sem er milli hvers skrefs er
óeðlilega langur.
Stytta þarf þennan tíma. Það
er allra hagur.
Hvað er eðlilegur
tími fyrir
greiðsluaðlögun?
Eftir Berg Þorra
Benjamínsson
Bergur Þorri
Benjamínsson
»Mér er það fullljóst
að þarna er um
flókin mál að ræða en
sá biðtími sem er milli
hvers skrefs er óeðli-
lega langur.
Höfundur sækist eftir 5. sæti í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Norðausturkjördæmi
Vantar þig heimasíðu?
...eða er kominn tími til að hressa upp á þá gömlu?
Við setjum upp heimasíður sem aðlaga sig að öllum skjástærðum.
Fyrirtæki með yfir 20 ára reynslu
Sími 553 0401
www.tonaflod.is
Verð frá 14.900 kr. + vsk
Hvern ætlar þú að
gleðja í dag