Morgunblaðið - 10.01.2013, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013
Vef-Þjóðviljinn skrifar: Munamenn eftir honum Kyoto? Það
er samningnum sem gaf meiri út-
blástur frá samninganefndamönn-
um á ferð og flugi en flestir aðrir
samningar fyrr og
síðar?
Nú er víst komið
að reikningsskilum
því samningurinn
snerist um að ríki
myndu halda út-
blæstri gróðurhúsa-
lofttegunda í skefj-
um þannig að hann yrði ekki meiri
árið 2012 en hann var 1990.
Tvö ákafaríki um málið, Hollandog Kanada, hafa aukið út-
blástur á þessum tíma um og yfir
20%. Japan lofaði 6% samdrætti en
jók útblástur um 7% þrátt fyrir
stöðnun í efnahagslífi landsins um
árabil.
Bandaríkin tóku ekki þátt í þessu
og hafa aukið útblástur um 10% á
þessu tímabili þrátt fyrir góðan
hagvöxt mikinn hluta þess.
The Wall Street Journal segir aðaukningin hafi ekki verið
meiri meðal annars vegna þess að
með nýrri tækni tókst að vinna
jarðgas í miklum mæli. Óvíst er að
menn hefðu fengið að prófa sig
áfram með þessar nýju aðferðir ef
Al Gore hefði orðið að þeirri ósk
sinni að Bandaríkin tækju þátt í
Kyoto.
En hvað með góða Evrópusam-bandið? Jú, það virðist í heild
sinni ætla að mæta mörkunum í
Kyoto. Það lánast með því að telja
fyrrum kommúnistaríki Austur-
Evrópu með í reikningnum en þar
lagðist mengandi iðnaður af eftir
hrunið.
Jafnframt hefur efnahagslegstöðnun hjálpað til og lög og
reglur sambandsins hafa hrakið
iðnað á brott.“
Minnt á karlinn
Kyoto
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 9.1., kl. 18.00
Reykjavík 5 rigning
Bolungarvík 8 alskýjað
Akureyri 6 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 5 rigning
Vestmannaeyjar 8 rigning
Nuuk -6 skýjað
Þórshöfn 6 léttskýjað
Ósló -5 skýjað
Kaupmannahöfn 6 skúrir
Stokkhólmur -1 alskýjað
Helsinki 0 skýjað
Lúxemborg 1 skúrir
Brussel 5 þoka
Dublin 5 léttskýjað
Glasgow 6 léttskýjað
London 7 léttskýjað
París 5 alskýjað
Amsterdam 7 skýjað
Hamborg 7 skýjað
Berlín 7 skúrir
Vín 2 skýjað
Moskva -11 snjókoma
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 5 skýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 12 skýjað
Róm 11 skýjað
Aþena 5 skýjað
Winnipeg -5 skýjað
Montreal -2 skýjað
New York 8 heiðskírt
Chicago 4 léttskýjað
Orlando 25 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:05 16:07
ÍSAFJÖRÐUR 11:41 15:41
SIGLUFJÖRÐUR 11:25 15:23
DJÚPIVOGUR 10:42 15:29
Landsvirkjun
hyggst í sumar
vinna mat á um-
hverfisáhrifum
þriggja smárra
virkjana við
Blönduvirkjun.
Drög að tillögu
að matsáætlun
hafa verið kynnt á vef Landsvirkj-
unar.
Til athugunar er að nýta 68
metra fall á núverandi veituleið
Blönduvirkjunar, frá Blöndulóni að
Gilsárlóni, en það rennur nú um
veituskurði á um 20 kílómetra
kafla. Þær eru liður í áætlunum
Landsvirkjunar um að bæta nýt-
ingu á núverandi aflsvæðum.
Áætlað er að heildarorkugeta
þriggja smárra virkjana verði 170
gígawattstundir á ári, eða allt að 32
megawött. Til samanburðar má
geta þess að uppsett afl Blöndu-
virkjunar er 150 MW.
Stækkun
undirbúin
Matthías Máni Erlingsson, fanginn
sem strauk af Litla-Hrauni í desem-
ber, er laus úr einangrun. Eftir að
Matthías gaf sig fram var hann sett-
ur í einangrun í 15 daga.
Í samtali við Mbl.is sagði Margrét
Frímannsdóttir, forstöðumaður á
Litla-Hrauni, að einangrunarvist
Matthíasar væri í samræmi við aga-
viðurlög við stroki. Nú myndi Matt-
hías taka þátt í daglegu lífi innan
fangelsisins eins og aðrir fangar.
Matthías strauk af Litla-Hrauni 17.
desember og umfangsmikil leit var
gerð að honum þangað til hann gaf
sig fram á aðfangadag.
Matthías flúði á álagstíma í fang-
elsinu þegar allir fara til vinnu eða
skóla. Margrét segir nauðsynlegt að
fjölga útiverkstjórum á álagstímum,
þ.e. þegar fangar fara til vinnu,
skóla eða í útivist. Niðurskurður tor-
veldi slíkt, en verklagi hafi þó verið
breytt til að koma betri stjórn á
fyrirkomulag á þessum tíma dags.
Matthías
laus úr
einangrun