Morgunblaðið - 10.01.2013, Side 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013
Leikfélag Kópavogs frumsýnir í
kvöld, fimmtudag klukkan 20, í
Leikhúsinu Funalind 2, leik-
dagskrána Harmur, hundar og hýr-
ar konur. Hér er á ferðinni dagskrá
úr fjórum leikþáttum, innlendum
og erlendum. Þættirnir eru Arf-
urinn eftir Örn Alexandersson,
Samtal fyrir eina rödd og Við höf-
um allar sömu sögu að segja eftir
Dario Fo og Franca Rame og Girnd
á Geirsnefi eftir Dennis Schebetta.
Örn Alexandersson leikstýrir eigin
þætti en Hörður Sigurðarson hin-
um þremur. Alls taka tíu leikarar
þátt í uppfærslunni.
„Þessir þættir raðast skemmti-
lega saman,“ segir Hörður sem er
formaður leikfélagsins auk þess að
leikstýra þáttunum. Hann segir
fæsta leikaranna hafa langa
reynslu af leik. „Helmingurinn er
tiltölulega nýr en svo eru reynslu-
boltar innan um. Við höfum unnið
markvisst að því að fá nýtt blóð inn
í félagið á undanförnum árum og
það hefur skilað sér. Við erum nú
næstum því með offramboð á leik-
urum, sem er nokkur breyting frá
árunum þar á undan. Við höfum
boðið upp á námskeið fyrir byrj-
endur í leiklist og það er gríðarleg
eftirspurn. Margir hafa áhuga á að
prófa; sumir hafa gengið lengi með
leiklistardrauma.“
Leikfélag Kópavogs hefur verið
með starfsemina í húsnæðinu að
Funalind í fjögur ár en áður tók
tæpt ár að smíða leikhús inn í
geyminn sem þar var. „Mikill pen-
ingur og tími hefur farið í að smíða
leikhúsið og búa það tækjum,“ seg-
ir Hörður. „Nauðsynlegur tækja-
kostur í leikhúsi er dýr en ég vil
meina að þetta sé að verða besta
litla leikhús á landinu.“ efi@mbl.is
Þáttur Arnfinnur Daníelsson, Bjarni Daníelsson, Þórarinn Heiðar Harðar-
son og Sunneva Lind Ólafsdóttir í hlutverkum sínum í Girnd á Geirsnefi.
Harmur, hundar
og hýrar konur
Leikdagskrá Leikfélags Kópavogs
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Myrkraverk nefnist nýjasta breið-
skífa þungarokkssveitarinnar
Dimmu sem kom út á síðasta ári, sú
þriðja sem sveitin sendir frá sér en
sú fyrsta með
íslenskum laga-
textum. Fyrri
tvær breið-
skífur hljóm-
sveitarinnar eru
Dimma frá
árinu 2005 og
Stigmata frá árinu 2008. Hljóm-
sveitin var stofnuð árið 2004 af
bræðrunum Ingó og Silla Geirdal
sem leika á gítar og bassa og í hljóm-
sveitinni í dag eru, auk þeirra,
söngvarinn Stefán Jakobsson og
trommuleikarinn Birgir Jónsson.
Ingó segir Dimmu-menn hafa ver-
ið iðna við kolann allt frá stofnun
hljómsveitarinnar fram til ársins
2008, m.a. farið til Spánar og tekið
upp þrjú myndbönd fyrir Stigmata
og hitað upp fyrir Alice Cooper.
„Svo flutti ég til Svíþjóðar og starf-
aði þar sem atvinnutöframaður en
kom heim aftur 2011,“ segir Ingó.
-Sýnirðu kannski töfrabrögð á
tónleikum?
„Nei, en við erum með heilmikið
„show“, þetta er mikið sjónarspil.
Fyrir utan að leggja mikið upp úr
því að vera dúndurþéttir erum við
með mikla sviðsframkomu og það er
ljósasýning, sprengjur og allar græj-
ur,“ segir Ingó.
Eigin stíll
-Þetta er fyrsta platan ykkar á ís-
lensku. Af hverju ákváðuð þið að
syngja að þessu sinni á móðurmál-
inu?
„Á Stigmata er lag sem heitir
„Dimmey“ þar sem viðlagið var
sungið á íslensku. Það gerði sig mjög
vel og varð nokkuð vinsælt í útvarpi
og við fórum að hugsa meira út í
þetta, líka af því hljómsveitin heitir
íslensku nafni. Í byrjun 2011, þegar
það urðu mannaskipti í hljómsveit-
inni, nýr söngvari og nýr trommu-
leikari komu inn, Stefán og Birgir,
þá fóru þeir að ýta á það að við skipt-
um yfir í móðurmálið. Við ákváðum
að gefa út stuttskífu sem var kölluð
Dogma og á henni tónleikaupptökur
af lögum sem voru á fyrri plötunum
og lag sem heitir „Þungur kross“.
Við gerðum það bæði á ensku og ís-
lensku, þetta var tilraun hjá okkur,
að sjá hvernig mér myndi ganga að
semja texta á íslensku og okkur
fannst það koma mun betur út, vera
meira sannfærandi þannig að við
ákváðum að taka þennan pól í hæð-
ina. Við Stefán sömdum alla textana
á Myrkraverk og okkur finnst þetta
ekki aðeins meira sannfærandi held-
ur náum við líka að skapa okkur eig-
in stíl með þessu,“ segir Ingó.
Þykir vænst um þessa
-En hefur tónlistin breyst milli
platna?
„Já, ég myndi segja það. Þetta var
aðeins meira „goth“ á fyrstu plöt-
unni, önnur platan var tilrauna-
kenndari og hægari og þessi er sú
rokkaðasta. Hún er bæði þyngsta og
rokkaðasta platan okkar og þó
manni þyki vænt um öll börnin sín
þá þykir okkur eiginlega vænst um
þessa,“ segir Ingó. Textarnir séu
langflestir mjög persónulegir, alls
engir partítextar. Og myrkir eru
þeir. „Það er t.d. lag á plötunni sem
heitir „Skuggakvæði“ og þar byggði
ég textann á kenningu Carls Gust-
avs Jungs um skuggann. Kenningin
var sú að hverjum manni fylgir
skuggi sem hann verður að horfast í
augu við og þessi skuggi er í raun-
inni bara myndlíking fyrir þessar
myrku hliðar sálarlífsins sem mann-
eskjan verður að takast á við, annars
fær skugginn yfirhöndina,“ segir
Ingó. Platan gangi að miklu leyti út
á þetta.
Dimma heldur tónleika í Hörpu
17. janúar nk. kl. 20, í Norður-
ljósasal, og degi síðar á Sauðárkróki
með hljómsveitinni Sólstöfum. 19.
janúar heldur Dimma svo tónleika á
Græna hattinum á Akureyri, einnig
með Sólstöfum.
Ingó segir Dimmu sérstaklega
stolta af því að verða fyrst þunga-
rokkshljómsveita til að halda eigin
tónleika í Hörpu, þ.e. tónleika sem
eru ekki hluti af hátíð. Tónleikarnir í
Hörpu verði auk þess teknir upp á
myndband, með sýningu í sjónvarpi
eða útgáfu á mynddiski í huga. Það
verði mikið í þá lagt.
Þyngsta og rokkað-
asta platan til þessa
Dimma gefur út þriðju breiðskífuna og syngur á íslensku
Skuggalegt Dimma gaf í fyrra út plötuna Myrkraverk og koma hin ýmsu
myrkraverk við sögu á henni og kenning Carls Gustavs Jungs um skuggann.
www.gilbert.is
JÓLAMYND2012
FRÁ ÞEIM SÖMU OG
FÆRÐU OKKUR
OG
NAOMI WATTS
TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA
BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI
100/100
„Fer beint í efsta sæti yfir þær myndir
sem fólk verður að sjá á árinu.“
100/100
„Ógnvænlega vel gerð.“
JÓLAMYND 2012
-V.J.V., SVARTHÖFÐI.IS
-EMPIRE
JÓLATEIKNIMYNDIN Í ÁR!
Í 2D OG 3D MEÐ
ÍSLENSKU TALI
-SÉÐ & HEYRT/VIKAN
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
PARANORMAL ACTIVITY OG INSIDIOUS
80/100
VARIETY
75/100
R. EBERT
STRANGLEGA BÖNNUÐ BÖRNUM
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
VIP
SINISTER KL. 8 - 10:20
HOBBIT: UNEXPECTED JOURNEY3D KL. 8
HOBBIT: UNEXPECTED JOURNEY KL. 6 - 10
HOBBIT: AN UNEXPECTED JOURNEY VIP
KL. 6 - 10
THE IMPOSSIBLE KL. 5:50 - 8 - 8:20 - 10:30
SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 5:50
SAMMY 2 ÍSLTAL3D KL. 5:50
RED DAWN KL. 10:50
RISE OF GUARDIANS ÍSLTALI KL. 5:50
AKUREYRI
SINISTER KL. 10:20
THE IMPOSSIBLE KL. 8 - 10:20
RED DAWN KL. 8
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
SINISTER KL. 5:40 - 8 - 10:20
THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 - 10:30
LIFE OF PI KL. 8
SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 5:50
SKYFALL KL. 10:40
KEFLAVÍK
THE IMPOSSIBLE KL. 8 - 10:20
HOBBIT: AN UNEXPECTED JOURNEY 3D KL. 8
SINISTER KL. 10:40
HOBBIT: UNEXPECTED JOURNEY 3D KL. 4:40 - 8
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR Á HOBBIT
VERÐA Á MORGUN 10. JAN (EGILSHÖLL)
HOBBIT: 2D KL.7-10:20
LIFE OF PI 3D KL. 5:20- 8
THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 - 10:30
SAMMY 2 ÍSLTAL3D KL. 5
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á