Morgunblaðið - 10.01.2013, Page 48
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 10. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Ekki útilokað að annar hafi horft
2. Lokaði konu sína og börn inni í ár
3. 7 óhollustur sem ber að forðast
4. Myglusveppur á Landspítalanum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tökulið á vegum kvikmyndafyrir-
tækisins Dreamworks mun taka upp
efni fyrir kvikmynd sem fjallar um
uppljóstrunarvefinn WikiLeaks og
stofnanda hans, Julian Assange, hér
á landi í mánuðinum og verður m.a.
tekið upp atriði á Austurvelli fimmtu-
daginn næsta, 17. janúar. Í atriðinu
verður hin svonefnda búsáhaldabylt-
ing tekin fyrir og mun þar þingmað-
urinn Birgitta Jónsdóttir, eða sú leik-
kona sem fer með hlutverk hennar,
verða umkringd fréttamönnum.
Fyrirtækið True North þjónustar
hið erlenda tökulið og hefur nú aug-
lýst eftir raunverulegum fréttamönn-
um fyrir atriðið, að þeir taki þátt sem
aukaleikarar með lj́ósmyndavélar,
upptökutæki og önnur tilheyrandi at-
vinnutæki. Á annað hundrað manns
verður á Austurvelli í tökunum. Kvik-
myndin muna bera titilinn The Man
Who Sold the World, eða Maðurinn
sem seldi heiminn.
Búsáhaldabyltingin í
WikiLeaks-mynd
Bókin Sex kíló
á sex vikum sit-
ur í efsta sæti
metsölulista Ey-
mundsson en
254 eintök af
bókinni seldust í
síðustu viku. Í
tilkynningu
vegna þessa er
bent á að ef titill bókarinnar reynist
sannur megi gera ráð fyrir því að hluti
þjóðarinnar verði 1,5 tonnum léttari
eftir sex vikur, að því gefnu að einn
lesi hvert eintak. Á kiljulistanum situr
Sjálfstætt fólk Halldórs Laxness í
efsta sæti en vinsælasta barnabókin
er Dagbók Kidda klaufa.
Einu og hálfu tonni
léttari eftir sex vikur?
Á föstudag Suðaustan 5-10 m/s A-lands, annars hægari breytileg
átt. Slydda eða snjókoma með köflum á vestanverðu landinu.
Á laugardag Hæg suðlæg átt, bjartviðri á N- og NA-landi, en él S-
og V-lands síðdegis. Frost yfirleitt 0 til 8 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 5-13, en hægari V-til. Rigning eða
súld SA-lands, slydda fram eftir degi á V-verðu landinu. Kólnandi.
VEÐUR
Þórey Edda Elísdóttir, verk-
efnastjóri Frjálsíþrótta-
sambands Íslands, hefur
þurft að hafna mörgum er-
lendum keppendum sem
óskuðu eftir því að keppa á
Reykjavíkurleikunum um
aðra helgi. Flest besta
frjálsíþróttafólk landsins
tekur þátt og margt af því
fær keppni frá sterkum er-
lendum mótherjum í Laug-
ardalshöllinni. »2
Þurftu að hafna
mörgum beiðnum
Aron Rafn Eðvarðsson markvörður úr
Haukum hreppti sextánda og síðasta
sætið í leikmannahópi íslenska hand-
boltalandsliðsins fyrir heimsmeist-
arakeppnina á Spáni. Aron Krist-
jánsson þjálfari segir
að það hafi verið
mjög erfið ákvörðun
en Hreiðar Levý Guð-
mundsson, sem hef-
ur verið lengi í
landsliðinu, var
sendur heim í
staðinn. »1
Mjög erfið ákvörðun að
skilja Hreiðar eftir
Haukar og Valur koma sterkir til leiks
í úrvalsdeild kvenna í körfuboltanum
á nýju ári en KR er í vandræðum
vegna meiðsla og skorts á erlendum
leikmanni. Þessi lið eru í hörðum slag
um þriðja sætið í deildinni og Valur
vann stórsigur á KR í gær. Keflavík
komst aftur á sigurbraut og fór létt
með Grindvíkinga, Haukar unnu
Njarðvík og Snæfell lagði Fjölni. »4
Harður slagur um þriðja
sætið í kvennadeildinni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þetta er gamall draumur og ég lét
hann rætast,“ segir Gunnar Ólafs-
son, sem tók skíðakennarapróf í
Austurríki 2010, þá 69 ára, og hefur
síðan kennt kúnstina að renna sér á
skíðum í austurrísku Ölpunum. „Ég
var elsti nemandinn og sennilega sá
elsti í sögu skólans,“ segir hann.
Gunnar fer til Austurríkis á laug-
ardag vegna næstu kennslulotu í
skíðaskóla Ottós í Katschberg, en
þar er ein lengsta skíðabrekka lands-
ins, A1. Hann býr hjá Þuríði og
Dodda á Speiereck-skíðahótelinu í
St. Martin í Lungau og kennir 14-15
ára skólakrökkum frá Englandi, Hol-
landi og Danmörku auk þess að
pússa til stílinn hjá hótelgestum. „Ég
laga hjá þeim stellingarnar í byrjun
skíðavikunnar, kynni þeim umhverf-
ið og brekkurnar,“ segir hann.
„Sagt hefur verið um hótelið að
það sé best geymda leyndarmál aust-
urrísku Alpanna og skíðasvæðið er
frábært,“ heldur Gunnar áfram um
leið og hann gjóar augunum í átt að
Bláfjöllum og hristir höfuðið. „Hérna
er enginn snjór og alltaf leiðinda-
veður. Í Austurríki gengurðu að snjó
og góðu veðri vísu. Það er ekki hægt
að bera þetta saman.“
Þegar Gunnar var níu ára fékk
hann sín fyrstu skíði. „Þá voru mér
gefin eldgömul skíði, kantlaus og
fín,“ rifjar hann upp. „Þá fór ég upp í
Öskjuhlíð og renndi mér fram og til
baka. Síðan fór ég með krökkunum
mínum í skíðaferð til útlanda þegar
þeir voru 13 til 14 ára og svo byrjaði
ég aftur á skíðum þegar ég var kom-
inn á sjötugsaldur. Þá fór ég fyrst að
taka þetta alvarlega og hef farið víða,
verið á skíðum í Þýskalandi, Frakk-
landi, Sviss og Austurríki, en nú er
ég að fara í sjötta skipti til Þuríðar og
Dodda.“ Hann bætir við að í fyrstu
hafi hann aðeins farið í vikuferðir en
á seinni árum hafi ferðirnar staðið yf-
ir í einn til tvo mánuði.
Fjölskyldustaður
„Eftir að ég fann hótelið hjá Þuríði
og Dodda hef ég hvergi annars stað-
ar viljað vera,“ segir Gunnar og
áréttar að St. Martin sé ekki fyrir
fólk sem leiti að skemmtunum á næt-
urklúbbum því slíkir klúbbar séu
ekki til staðar heldur sé þetta kær-
kominn staður fyrir fjölskyldur og
annað fólk sem setji skíðaiðkunina í
forgang. Þorpið sé lítið meira en ein
gata, nokkrir bændur séu með kýr
sem auki á huggulegheitin og við-
mótið á hótelinu sé einstaklega gott.
„Lungau er sólríkasti staður Austur-
ríkis, uppáhaldsstaðurinn minn,“
segir skíðakennarinn Gunnar.
Tók kennaraprófið 69 ára
Með elstu skíðakennurum í
Austurríki og gefur ekkert eftir
Skíðakennarinn Gunnar Ólafsson kann vel við sig í austurrísku Ölpunum
þar sem hann kennir einkum unglingum að renna sér á skíðum.
Til þess að fá að taka þátt í námskeiði til að verða
viðurkenndur skíðakennari í Ölpunum varð Gunnar að
fá meðmæli og fékk þau hjá skólastjóra skíðaskólans í
Katschberg í Lungau, skammt frá St. Martin. Hann hef-
ur síðan kennt í skólanum og fékk bestu einkunn eftir
að hafa skilað fyrsta hópnum frá sér. „Þetta voru al-
gjörir byrjendur en þeir voru flinkir í lokin og náðu
tækninni á mettíma. Ég fékk hæstu mögulegu einkunn
hjá skólastjóranum,“ segir Gunnar.
Fékk strax ágætiseinkunn
GUNNAR ÓLAFSSON SKÍÐAKENNARI