Morgunblaðið - 22.01.2013, Síða 1

Morgunblaðið - 22.01.2013, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 2. J A N Ú A R 2 0 1 3  Stofnað 1913  17. tölublað  101. árgangur  Þú leggur línurnar létt&laggott DANS Í ÓBYGGÐ- UM SAMSTARF FIMM ÞJÓÐA ERFITT EN GAMAN Í PARÍS-DAKAR HJÓLREIÐAGARPAR SPRETTA Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG BÍLAR HJÓLREIÐAMÓT 1010 SVIÐSLISTAHÓPAR 38 Mánuður var í gær liðinn frá vetrarsólstöðum hinn 21. desem- ber. Sólin hefur verið sjaldséður gestur á landinu undanfarið í svartasta skammdeginu en lét þó sjá sig aðeins um helgina. Nú horfir hins vegar allt til betri vegar. Á þeim mánuði sem liðinn er frá því að dagurinn var sem stystur hefur hann lengst um klukkustund og 53 mínútur samkvæmt upplýs- ingum frá Almanaki Háskóla Íslands. Að meðaltali lengist dagurinn um rétt tæpar sex mínútur á degi hverjum um þess- ar mundir. Dagurinn orðinn tæplega tveimur klukkustundum lengri Morgunblaðið/Kristinn Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Ég ætla að vona að næsta þing stað- festi nýja stjórnarskrá, ef okkur tekst það sem við ætlum okkur, að ljúka gerð hennar fyrir kosningar. Ég vænti þess að nýtt þing staðfesti það sem fyrra þing hefur gert,“ segir Álfheiður Ingadóttir, varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, um stöðu stjórnlagamálsins. Að sögn Álfheiðar er ætlunin að afgreiða málið úr nefndinni í dag þannig að 2. umræða um það geti hafist í þinginu á fimmtudag. Álfheiður tekur fram að hugað verði að breytingatillögum á meðan þingið hefur málið enn til umsagnar. Segir ekki koma til greina að velja úr einstakar greinar Spurð hvort samþykkja eigi frum- varpið í því sem næst óbreyttri mynd vísar Álfheiður til þjóðaratkvæða- greiðslu um tillögurnar í haust. Þar hafi þjóðarviljinn komið fram. „Um 67% þeirra sem tóku þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni 20. októ- ber sl. töldu að svo ætti að vera.“ Þingfrestun er fyrirhuguð 15. mars nk. og þarf nýtt Alþingi að staðfesta nýja stjórnarskrá eftir kosningar til að hún geti tekið gildi. Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segir það draum sinn að ný stjórnar- skrá verði samþykkt eftir kosningar, þ.e. í maí. Ekki komi til greina að velja úr einstakar greinar frum- varpsins en leggja aðrar til hliðar. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, gagnrýnir áform- in og spáir miklum átökum um málið. Svo gæti farið að Alþingi starfaði nánast til kjördags, líkt og 2009. MSamþykki tillögur »6 Ný stjórnarskrá líti dagsins ljós í maí  Stjórnarskrárfrumvarpið fer í 2. umræðu á fimmtudag Jöklar á Íslandi hopuðu á síðasta ári sautjánda árið í röð, að sögn Odds Sigurðssonar, jöklasérfræð- ings á Veðurstofunni. Öll þessi ár hefur meðalhiti ársins verið meiri en á viðmiðunartímabili áranna 1961-1990. Mælingar á sporðum jökla hafa farið fram hér á landi í rúmlega 80 ár og mynda niðurstöð- urnar merkilegan gagnagrunn um þróunina. Lengstu jöklarnir hafa hopað mest og má þar nefna Breiðamerk- urjökul og Skeiðarárjökul. Aðrir jöklar hafa þynnst svo þeir ná tæp- ast þeirri skilgreiningu sem notuð er um jökla. Má þar nefna Ok, Hofs- jökul eystri og Þrándarjökul austan Vatnajökuls og Torfajökul og Kaldaklofsjökul. »14 Jöklarnir hafa hopað samfleytt í sautján ár Morgunblaðið/Ómar Jökulsárlón Breiðamerkurjökull hefur hopað mikið síðustu árin. Stjórnmálamenn verða að líta á það sem viðfangsefni hvernig hægt sé að skapa forsendur fyrir stöð- ugleika og hvaða efnahagsstefnu þurfi til þess, að sögn Gylfa Arn- björnssonar, forseta ASÍ. Að sögn Gylfa þarf þetta að gera óháð kosn- ingum. „Það þurfa allir flokkar að koma að því að móta þennan grundvöll, ekki bara ríkis- stjórnarflokkar. Tökum Dani, Svía og Norðmenn sem dæmi. Þar er engin grundvallardeila á milli flokka um það að vera með agaða hagstjórn og stöðugt gengi, það eru bara allir sammála um slíkt,“ segir Gylfi. Að sögn Ólafs Loftssonar, for- manns Félags grunnskólakennara, eru félagsmenn ennþá með lausan kjarasamning og því sé ekkert opið og ekkert í gangi hjá þeim. „Þannig að við fáum ekki neinar hækkanir í mars eins og þetta lítur út núna,“ segir Ólafur. skulih@mbl.is »4 Skapi forsendur stöðugleika  Grunnskólakennarar ennþá með lausan kjarasamning Morgunblaðið/RAX Sátt Aðilar vinnumarkaðarins framlengdu kjarasamninga í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.