Morgunblaðið - 22.01.2013, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 22.01.2013, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013 TILBOÐ á 1 lítra Kókómjólk Skúli Hansen skulih@mbl.is „Við teljum að þetta hafi verið besta niðurstaðan í stöðunni. Við teljum að það skipti afar miklu máli að hefja undirbúning að næstu samningum sem allra fyrst og að það skipti miku máli að horfa til lengri tíma og ná árangri í að byggja upp lífskjör á grundvelli stöðugleika og lágrar verðbólgu,“ segir Vilhjálmur Egils- son, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, um samkomulag um framlengingu kjarasamninga sem aðilar vinnumarkaðarins undirrituðu í gær. Að sögn Vilhjálms hefur verið ákveðið að fara strax af stað með mótun sameiginlegrar atvinnustefnu sem og stefnu í verðlags-, gengis- og peningamálum. „Að sjálfsögðu teljum við að fyr- irtæki þurfi að viðhalda virkri sam- keppni á sínum mörkuðum eins og vera ber,“ segir Vilhjálmur aðspurð- ur hvað felist í þeirri stefnu og bætir við: „Það sem við teljum líka að þurfi að gera er að horfa til lengri tíma og spá í það á hvaða grunni, t.d. varðandi gengi krónunnar, við eigum að starfa og hvernig við getum brotist undan þeirri verðbólgu sem er fyrirsjáanleg út af gjaldeyrishöftunum og hvernig hægt er að brjótast undan þeim.“ Hann bendir þó á að ekki sé mein- ingin að setja hér á verðstöðnun enda hafi slíkt aldrei staðið til. Þá segist Vilhjálmur eiga von á því að vinnan við sameiginlegu atvinnustefnuna hefjist í byrjun febrúar. „Við þurfum að vera komnir með útlínurnar aðeins í lok febrúar,“ segir Vilhjálmur og bætir við að þá verði hægt að kynna stefnuna fyrir stjórn- málaflokkunum og fá afstöðu þeirra til hennar svo að sú afstaða liggi fyrir áður en gengið verður til kosninga. Aðspurður út í vinnuna við næstu kjarasamninga segir Vilhjálmur að hana þurfi að hefja sem fyrst og að fyrir næsta sumar þurfi menn í stórum dráttum að vera komnir með sameiginlega sýn. „Þetta var fín niðurstaða. Ég held að það hafi tekist að skapa nokkuð breiða sátt um þetta innan okkar raða,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, for- seti Alþýðusambands Íslands, um samkomulagið og bætir við að hann telji að þessar aðstæður hafi að mörgu leyti verið flóknari en oft áður. Að sögn Gylfa eru menn með þessu að tryggja að launahækkanirnar komi til framkvæmda 1. febrúar. „En það er líka ljóst að orsakavaldurinn fyrir því að við náum ekki markmið- um okkar er auðvitað verðbólgan, hún er alltof há,“ segir Gylfi og bætir við að aðilar vinnumarkaðarins ætli að sameinast um að ná tökum á verð- bólgunni með því að eiga samráð við stjórnmálin um forsendur gengis og verðlags. Einnig verði stofnunum og fyrirtækjum veitt aðhald þegar kem- ur að ákvarðanatöku um verðlag. Verðbólgan engum í hag „Við einfaldlega höfðum til allra aðila að það hefur enginn hag af verð- bólgu. Það er í okkar allra þágu að ná tökum á henni vegna þess að hér munu vextir lækka og þar af leiðandi skiptir auðvitað gríðarlegu máli að ná vöxtunum niður í þessu mjög svo skuldsetta atvinnulífi okkar og það gerum við með lægri verðbólgu,“ seg- ir Gylfi. Morgunblaðið/RAX Handsal Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, Vilmundur Jósefsson, formaður SA, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, handsala samkomulagið. Framlengdu kjarasamninga  Aðilar vinnumarkaðarins eru sáttir við niðurstöðuna og hefja brátt vinnu við sameiginlega efnahagsstefnu  Leggja áherslu á að minnka verði verðbólguna Orðspor Íslands er í húfi ef ekki verður látið af hvalveiðum. Þetta stendur m.a. í fjölda- tölvupósti sem sendur var í hundraðavís og stílaður á Stein- grím J. Sigfússon atvinnu- og ný- sköpunarráðherra. Afrit fengu Svandís Svavarsdóttir umhverf- isráðherra og fjölmiðlar. Pósturinn var sendur frá einstaklingum í Bandaríkjunum og Bretlandi. Steingrímur skipaði nefnd um griðasvæði hvala og dýravernd- unarsjónarmið. Svandís Svav- arsdóttir sagði að væntanlega fengi nefndin afrit af póstinum. Ekki náð- ist í Steingrím. Verndarar hvala senda Steingrími fjölda tölvuskeyta Steingrímur J. Sigfússon Ögmundur Jón- asson innanrík- isráðherra hefur ákveðið að láta yfirfara alla málsmeðferð við hælisumsóknir. Í gærmorgun fundaði ráð- herrann með Kristínu Völund- ardóttur, for- stjóra Útlendingastofnunar, í fram- haldi af umdeildum ummælum hennar í síðustu viku. Í tilkynningu frá innanríkisráðu- neytinu í gær kemur fram að ráð- herrann hafi í framhaldi af þessu ákveðið að yfirfara alla máls- meðferð við hælisumsóknir. Þá verði kannaður málshraði og meðferð hælisumsókna hjá stofnunum og öðrum aðilum sem hlut eiga að máli. Málsmeðferð tekin til endurskoðunar Ögmundur Jónasson Svo gæti farið að 13-15 flokkar verði í framboði til alþingiskosn- inga nú í apríl. Framboðsfrestur rennur út á hádeginu hinn 12. apríl. Samkvæmt upplýsingum frá innan- ríkisráðuneytinu hefur fimm nýjum framboðum verið úthlutað listabók- stöfum. Það eru Samstaða, flokkur lýðræðis og velferðar (C), Hægri grænir, flokkur fólksins (G), Bjart- sýnisflokkurinn (E), Björt framtíð (A) og Húmanistaflokkurinn (H). Þá eru umsóknir þriggja annarra framboða í vinnslu hjá ráðuneytinu. Dögun hefur óskað eftir bókstafn- um T en vinnsla á umsókn þess flokks er á lokastigi. Þá hefur Framfaraflokkurinn sent inn með- mælendalista en óvíst er með lista- bókstaf hans. Píratar hafa einnig skilað inn sínum lista og hafa óskað eftir stafnum Þ. Þá segir Vésteinn Valgarðsson, sem situr í bráðabirgðastjórn Al- þýðufylkingarinnar, að flokkurinn skili inn umsókn um listabókstaf á næstu dögum. Aðaláherslur flokks- ins eru andstaða gegn gróðadrif- inni fjármálaþjónustu og Evrópu- sambandinu og barátta fyrir félagsvæðingu grunnstoða sam- félagsins. Flokkurinn ætlar að bjóða fram í öllum kjördæmum. kjartan@mbl.is Mikill fjöldi framboða til alþingiskosninganna  Níu ný framboð hafa fengið listabókstaf eða sótt um Morgunblaðið/Golli Nýtt Forsvarsmenn Bjartrar fram- tíðar kynna framboð sitt í haust. „Það er endurskoðunarákvæði í kjarasamningum aðildarfélaga BSRB sem segir að ef kjarasamn- ingi er sagt upp á almennum markaði eða gerðar á honum verulega breytingar þá eigi að fara í viðræður um þær breyt- ingar,“ segir Elín Björg Jóns- dóttir, formaður BSRB, aðspurð hvernig samkomulagið blasi við henni. Elín Björg bætir við að hún sé búin að boða samningsein- ingar BSRB á fund á miðvikudag- inn þar sem tek- in verði ákvörðun um hvernig BSRB fer í þetta verk. „Ég á von á því að það verði gerðar einhverjar sambærilegar breytingar á kjarasamningum aðildarfélaga BSRB og þarna er,“ segir Elín Björg. Á von á svipuðum breytingum SAMNINGSEININGAR BSRB MUNU FUNDA Á MORGUN Elín Björg Jónsdóttir Lögreglan á Blönduósi telur ekki annað fært í stöðunni en að vara fólk við því að keyra um þjóðveg 1 í bæði Austur- og Vestur-Húnavatns- sýslum vegna tjörublæðinga í mal- bikinu. Lögreglu hafa borist tugir til- kynninga um að rífa þurfi dekk undan fólksbílum. Tjaran getur ógnað umferðaröryggi. Höskuldur Erlingsson, vaktstjóri lögreglunnar á Blönduósi, segir að ástandið hafi verið slæmt á föstu- dag, skánað aðeins yfir helgina en sé nú mjög slæmt. „Við erum búin að fá tvær tilkynningar í kvöld [gærkvöldi] um skemmdir á fólks- bílum. Þetta er bara stórhættu- legt.“ una@mbl.is Vara við akstri vegna tjörublæðinga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.