Morgunblaðið - 22.01.2013, Side 9
FRÉTTASKÝRING
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Umtalsverðar breytingar hafa verið
gerðar á fyrirkomulagi kosninga til
Stúdentaráðs Háskóla Íslands en til
þeirra verður gengið 6. og 7. febrúar
næstkomandi. Undanfarin ár og ára-
tugi hafa stúdentar kosið milli fram-
bjóðenda á lista en nú verða ein-
staklings- og hópframboð einnig
leyfileg. Þá hefur orðið sú breyting á
að í stað þess að nemendur háskólans
kjósi sér fulltrúa til setu í Stúd-
entaráði munu nemendur innan ein-
stakra fræðasviða kjósa sér fulltrúa
til setu í svokölluðum sviðsráðum.
Betri tengsl við nemendur
Sara Sigurðardóttir, formaður
Stúdentaráðs, segir breytingarnar
viðbrögð við gríðarlegri sprengingu í
fjölda nemenda við háskólann í kjöl-
far bankahrunsins og sameiningar
við Kennaraháskóla Íslands.
„Stúdentaráð hefur verið að upp-
lifa að það sé að missa tenginguna við
nemendur, því þetta er orðið svo mik-
ið og útbreitt og ólíkar aðstæður hjá
nemendum á hverju sviði. Þannig að
við ákváðum að fylgja eftir stjórn-
sýslubreytingunum hjá Háskólanum
árið 2008 þegar fræðasviðin fimm
urðu til,“ útskýrir hún.
Fræðasviðin fimm eru félags-
vísindasvið, heilbrigðisvísindasvið,
hugvísindsvið, menntavísindasvið og
verkfræði- og náttúruvísindasvið og
munu nemendur innan viðkomandi
sviða aðeins geta boðið sig fram til
setu í viðkomandi sviðsráði. Hvert
sviðsráð verður skipað fimm fulltrú-
um, utan sviðsráð félagsvísindasviðs,
sem vegna nemendafjölda verður
skipað sjö fulltrúum. Sviðsráðsfull-
trúarnir 27 munu einnig sitja í Stúd-
entaráði, sem áfram mun berjast fyr-
ir sameiginlegum hagsmunum
nemenda háskólans, en sviðsráð-
unum verður hins vegar látin eftir
hagsmunagæsla fyrir nemendur við-
komandi sviða.
Sara segist vonast til þess að
breytingarnar skili sér í betri
tengslum við nemendur og nemenda-
félögin en þá sé það ekkert launung-
armál að undanfarin ár hafi um 70%
stúdentaráðsliða komið af fé-
lagsvísindasviði. Nýja fyrirkomulagið
verði vonandi hvatning fyrir nem-
endur hinna sviðanna til að taka auk-
inn þátt í réttindabaráttu stúdenta.
Renna blint í sjóinn
„Við rennum náttúrlega dálítið
blint í sjóinn með þetta en það verður
rosalega spennandi fyrir það fólk sem
verður kosið að fá að vera með frá
byrjun í því að móta stefnuna og
hvernig þetta verður,“ segir Sara.
Sú breyting hefur einnig verið gerð
að kosið er til eins árs í stað tveggja
áður. Þá munu sviðsráðin taka til
starfa strax að loknum kosningum í
febrúar en kjörnir fulltrúar taka sæti
í Stúdentaráði í maí.
„Fólk vill breytingar og það vill sjá
hlutina gerða betur og við reynum
eftir fremsta megni að verða við
þeirri kröfu,“ segir Sara. Það verði
síðan að koma í ljós hvort ánægja
verður með breytingarnar eða ekki.
Fyrirkomulagi kosninga til
Stúdentaráðs HÍ gjörbreytt
Nemendur sviða kjósa í sviðsráð Einstaklings- og hópframboð leyfð
Morgunblaðið/Golli
Kosningar Sara segir gríðarlega fjölgun nemenda háskólans á síðustu ár-
um hafa kallað á breytingar á fyrirkomulagi kosninganna til Stúdentaráðs.
Ljósmynd/Jeffrey Donenfeld
Á suðurpólnum Vilborg komst á pólinn fyrir helgi.
Vilborg Arna Gissurardóttir hafði ís-
lenska fánann með í farteskinu á pól-
inn og brosti breitt þegar hún lét
mynda sig með hann að ferðalaginu
loknu. Vilborg lauk 1.140 km ferð-
inni á suðurpólinn sl. fimmtudag en
hún tók 60 daga. Á laugardag var
hún flutt í Union Glacier Camp sem
eru tjaldbúðir starfræktar af ALE
(Antarctic Logistics & Expeditions)
en heldur væntanlega til Síle í dag.
Þaðan heldur hún áfram til Íslands
aðfaranótt næsta mánudags.
Vilborg
til Síle
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C
Opið alla virka daga 12-18 og laugardaga frá 11-16
Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri
Slár með allt á 2.000 og 3.000 kr.
ÚTSALAN ENN Í GANGI
ALLAR VÖRUR Á 50% AFSLÆTTI
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Buxur nú: 5.950.-
Buxur nú: 6.450.-
Peysur nú: 3.450.-
Peysur nú: 5.450.-
Úlpur nú: 11.950.-
Kjólar nú: 5.450.-
Kjólar nú: 6.450.-
Bolir nú: 2.750.-
Bolir nú: 3.450.-
ÚTSALA
Útsalan heldur áfram
20-50% afsláttur
Opið: má-fö. 12:30-18 Dalvegi 16a
Rauðu múrsteinshúsunum Kóp. 201
S. 517 7727 www.nora.is facebook.com/noraisland
mbl.is
alltaf - allstaðar