Morgunblaðið - 22.01.2013, Side 11
Ljósmynd/Kristinn R. Kristinsson
Garpar Ásdís Kristjánsdóttir, sem varð fyrst Íslendinga til að ljúka heilum Járnkarli, og Ása Guðný á fullri ferð.
nálægt vinnustöðum sínum og
reyna að skilja bílinn sem mest eft-
ir heima.
„Oft er mun fljótlegra að hjóla
en að fara akandi, sérstaklega í
styttri vegalengdum innanbæjar.
Ef ég freistast til þess að fara á
bílnum sé ég oft eftir því enda tek
ég oft fram úr bílum á hjólinu sem
hafa áður tekið fram úr mér.
Það er líka frábært að njóta
útiverunnar á hjólinu og veturinn
hefur verið frábær hingað til fyrir
utan hálkuna en þá munar öllu að
vera með góð nagladekk,“ segir Ása
Guðný.
Framundan hjá Ásu Guðnýju
er æfingaferð til Mallorca um
páskana og æfingar til að geta
stefnt á Smáþjóðaleikana. Þá
keppir hún eins mikið og hægt er í
ýmsum mótum hér heima yfir sum-
artímann.
„Sífellt fleiri skrá sig í félagið
en fólk mætti vera enn óhræddara
við að mæta í keppnir enda er það
besta æfingin sem völ er á. Maður
þarf ekki endalaust að reyna að
bæta tímann sinn heldur bara að
gera eins vel og maður getur og
þjálfa sig upp,“ segir Ása Guðný og
bætir við að þetta sé þó allt í rétta
átt. Þannig voru yfir hundrað
manns skráðir í keppnir síðastliðið
sumar, t.d. á Hvolsvelli þar sem 70
manns hjóluðu 100 km, og um 350
keppendur hafa mætt til leiks í
fjallahjólakepninnni Bláa lóninu. Sú
keppni er haldin í byrjun júní og er
hjólað frá Hafnarfirði í Bláa lónið,
60 km leið. Síðast voru tæplega 400
hjólagarpar skráðir til keppni enda
segir Ása Guðný keppnina stærstu
hjólreiðakeppni ársins fyrir marga.
Ljósmynd/Kristinn R. Kristinsson
Keppniskona Ása Guðný hefur markvisst æft hjólreiðar síðastliðin þrjú ár.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013
Uphill duel-mótið hefst klukkan 19 föstudaginn næstkomandi 25. janúar
og fer mótið fram í miðbæ Reykjavíkur.
Spretturinn hefst neðst á Skólavörðustíg þar sem tveir etja kappi
hverju sinni upp að næstu gatnamótum við Bergstaðastræti ca. 70 metra
sprettur. Keppendur geta valið hvaða hjól sem er: BMX, fjallahjól, götu-
hjól eða fixed-gear eða það hjól sem kemur viðkomandi hraðast þessa 70
metra í samhliða spretti þar sem einn fer áfram í næsta riðill þar til ein-
ungis tveir takast á í lokaspretti. Keppendum er raðað af handahófi í
byrjun (það verður framkvæmt af starfsmanni ÍBR) og sá sem sigrar fær-
ist upp í næsta riðil og þannig koll af kolli þar til það standa eftir tvær
konur og tveir karlar.
Raðað af handahófi
UPHILL DUEL-MÓTIÐ
Rannsóknir hafa sýnt fram á að hug-
leiðsla getur stuðlað að því að
minnka streitu, bæta geð og svefn,
draga úr þreytu og auka einbeit-
ingu. Hugleiðsla er ákveðin tegund
einbeitingar sem felst í að víkja til
hliðar hugsunum sem í eðli sínu eru
sífellt að leggja undir sig hugann.
Það er ekki úr vegi í erli dagsins að
gefa sér smástund til að hægja á sér
og hugleiða. Enda endurnærir það
fólk og eykur einbeitingu sem er
nokkuð sem marga vantar eftir
langan og strangan dag í skamm-
deginu.
Í vetur verður hægt að sækja
opna hugleiðslutíma hjá Lindu
Gunnarsdóttur, lögg. sjúkraþjálfara.
En hún mun leiða hugleiðslu á
fimmtudögum kl. 12.15 til kl. 13.00
hjá Heilsuborg í Faxafeni og er ekk-
ert þátttökugjald.
Endilega …
… komdu við
í hugleiðslu
Hugleiðsla
Bætir geð
og svefn.
Fæst í næsta apóteki
Mildur handáburður sem gengur hratt inn í húðina.
Áburðurinn gefur húðinni raka og ver hana fyrir daglegu áreiti.
Húðin verður hvorki sleip né klístrug við notkun.
Engin ilm- eða litarefni og án parabena.
STJÖRNU
HANDÁBURÐUR
HLÚÐU AÐ VIÐKVÆMRI HÚÐ Í FROSTINU
GOTT
VERÐ!
Það bar heldur betur til tíðinda í
enska bænum Harrogate í síðustu
viku þegar tilkynnt var að bærinn yrði
einn af viðkomustöðum keppenda í
hinni þekktu Tour de France-
hjólreiðakeppni. Það kann að hljóma
einkennilega að lítill bær í
N-Yorkshiresýslu hljóti þennan heiður
en ekki er allt sem sýnist í þessum
litla bæ sem hvað þekktastur er fyrir
notaleg tehús. Í bænum var t.a.m.
stofnaður einn fyrsti hjólreiðaklúbb-
ur Englands árið 1878 af Skotanum
Stanley Cotterell en hann hjólaði alla
leið til Harrogate frá Edinborg til að
kynnast öðru áhugafólki um hjólreið-
ar.
Í Harrogate bjó einnig um tíma ein
þekktasta hjólreiðakona Bretlands,
Beryl Burton, sem lést árið 1996. Hún
vann sjö heimsverðlaun, yfir 90
landsverðlaun og setti árið 1967
heimsmet í 12 tíma hjólakeppni sem
enn stendur. Um þetta má lesa nánar
á vefsíðu breska dagblaðsins Guardi-
an á www.guardian.co.uk en í grein-
inni segir einnig að íbúar bæjarins
séu nú þegar orðnir mjög spenntir
fyrir franskri hjólainnrás í bæinn.
Harrogate verður viðkomustaður í Tour de France
AFP
Samstarf Formaður Tour de France c (t.v.) og sendiherra Breta í Frakk-
landi, Peter Ricketts, takast í hendur.
Frönsk hjólainnrás á N-Englandi
AFP
Garpar Tour de France er ein
þekktasta hjólakeppni heims.