Morgunblaðið - 22.01.2013, Side 12
SVIÐSLJÓS
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
„Við köllum þetta veitinga- og
skemmtistað stúdenta,“ segir Re-
bekka Sigurðardóttir, upplýsinga-
fulltrúi Félagsstofnunar stúdenta,
um nýja Stúdentakjallarann sem
opnaður var á Háskólatorgi síðast-
liðinn fimmtudag. Staðurinn er í
senn kaffihús, veitingastaður og
skemmtistaður og mun hýsa margs
konar viðburði, allt frá kvikmynda-
sýningum til kappræðna.
Forverinn í Gamla-Garði mátti
muna fífil sinn fegurri þegar hann
hætti starfsemi árið 2007 en hug-
myndir um að endurvekja Stúd-
entakjallarann vöknuðu á vinnufundi
stúdentaráðsliða haustið 2011. Þær
voru í kjölfarið bornar undir for-
svarsmenn FS, sem tóku ákvörðun
um að standa að rekstri staðarins og
byggja undir hann kjallara við Há-
skólatorg.
Vantaði stemninguna
„Háskólatorgið heppnaðist ein-
staklega vel og það kom í ljós um leið
og opnað var hvað þörfin var orðin
mikil fyrir einhverja miðju þar sem
fólk gæti komið saman. Háma varð
nánast strax of lítil og miðað við eft-
irspurnina skynjuðum við að þetta
samfélag þyldi alveg viðbót,“ út-
skýrir Rebekka.
Upphaflega stóð til að Háma, veit-
ingasala FS, myndi sinna hlutverki
gamla Stúdentakjallarans; þar yrði
bar og rými fyrir nemendur til að
hittast og slappa af að skóladegi
loknum. Gríðarleg aðsókn yfir dag-
inn setti þessum möguleika þó
ákveðnar skorður og aldrei skap-
aðist sú stemning sem menn höfðu
væntingar um að myndi verða til
seinnipart dags.
Allir velkomnir
Stúdentakjallarinn verður opinn
alla daga vikunnar en virka daga
verður sérstakur hádegismatseðill í
gildi milli kl. 11 og 14 og stærri mat-
seðill seinna um daginn. Um helgar
verður boðið upp á brunch fyrir börn
og fullorðna. Staðurinn er með leyfi
fyrir 350 manns og segir Rebekka
alla velkomna, stúdenta, fjölskyldur
þeirra, kennara, gesti og gangandi.
„Við höfum ráðið dagskrárstjóra í
hlutastarf sem mun stilla upp dag-
skrá í samráði við svokallað kjall-
araráð en í því sitja fulltrúar nem-
endafélaga og stúdentaráðs. Þetta er
stór hópur sem hittist reglulega, því
staðurinn virkar ekki nema þau búi
til stemninguna sjálf, hugmyndirnar
verða að koma frá þeim,“ segir hún.
Gömlu og nýju var blandað saman
til að skapa hlýlega stemningu á
staðnum, sem stúdentar virðast
kunna vel að meta, að sögn Re-
bekku. „Það kemur þeim á óvart að
ganga svolítið inn í annan heim. Allt í
einu eru þau komin inn í aðra stemn-
ingu og fá hvíld frá hversdagsleik-
anum sem fylgir þessu námsmanna-
lífi.“
Morgunblaðið/Kristinn
Stemning Næstu daga verður boðið upp á sérstaka innflutningsdagskrá í Stúdentakjallaranum en hún samanstendur m.a. af spilakvöldi, pub quiz, upplestrum og tónleikum.
Stúdentakjallarinn endurvakinn
Veitinga- og skemmtistaður stúdenta Andrúmsloft og stemning sem varð aldrei til á Háskóla-
torgi Opið alla daga vikunnar og allir velkomnir Loksins hægt að fá almennilegt kaffi
Saman Stúdentakjallarinn verður opinn alla daga og allir eru velkomnir.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013
„Það vantaði samkomustað fyr-
ir nemendur til að komast í ann-
að andrúmsloft og geta fengið
sér að borða og drekka og feng-
ið sér einn bjór,“ segir Sara Sig-
urðardóttir, formaður Stúd-
entaráðs, um tilefni endur-
vakningar Stúdentakjallarans.
Sara segir matseðil staðarins
góða viðbót við frábært veit-
ingaúrval Hámu og þá muni
námsmenn um að þurfa ekki að
sækja huggulega stemningu í
miðbæinn á köldum vetrar-
kvöldum. „Svo erum við ótrú-
lega ánægð með að vera komin
með te- og kaffivélar, þannig að
maður getur farið niður og
fengið sér alvörukaffi. Sem er
ekki leiðinlegt fyrir kaffiþyrsta
háskólanema,“ segir hún.
Ánægð með
alvörukaffi
STÚDENTAR