Morgunblaðið - 22.01.2013, Side 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013
Stefnt er að því í Bolungarvík að
framleiða mjólk fyrir þá sem eru
með mjólkuróþol. Það er gert með
því að fjarlægja mjólkursykurinn.
Hálfdán Óskarsson mjólkurtækni-
fræðingur og Þórarinn Egill
Sveinsson mjólkurverkfræðingur
standa á bak við verkefnið í gegn-
um fyrirtækið Örnu ehf.
Þróun á þessum nýju mjólkur-
afurðum hefur tekið u.þ.b. ár. Í
samtali við mbl.is segir Hálfdán að
nýja framleiðslan sé sambærileg
vara og hefðbundnar mjólkur-
afurðir. Munurinn sé örlítill en
varla marktækur. „Fólk með mjólk-
uróþol er með óþol fyrir mjólk-
ursykrinum, þannig að með því að
fjarlægja hann getur fólk með óþol
neytt mjólkur eins og aðrir,“ segir
Hálfdán.
Aðferðin er ekki ný af nálinni,
heldur er um að ræða vaxandi
grein innan mjólkuriðnaðarins víða
um heim, að sögn Hálfdáns. Meðal
annars sé mikill vöxtur í sölu á
Norðurlöndunum. Einnig verði þró-
aðar aðrar vörur sem séu vinsælar
hér en hafi enn ekki verið fram-
leiddar mjólkursykurslausar er-
lendis. Nefnir hann í því samhengi
til dæmis skyrið sem þeir félagar
hafi verið að þróa.
Mjólk fyrir þá
sem eru með óþol
Vöxtur í sölu á Norðurlöndunum
Morgunblaðið/Þorkell
Mjólk Aðferðin er ekki ný af nálinni, heldur er um að ræða vaxandi grein.
Fengu styrk
» Landsbankinn úthlutaði fyr-
irtækinu 1,5 milljónum í ný-
sköpunarstyrk. Þrjú verkefni
fengu styrki.
» Talið er að 5 til 10% af íbú-
um á Vesturlöndum séu með
mjólkuróþol, eða 16 til 30 þús-
und Íslendingar.
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Sími: 564 4700
Opnunartími Dalvegi:
Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
VINSÆLASTA RJÓMATERTAN Í 45 ÁR
fæst hjá Reyni bakara
...alveg með’etta
Fylgir Morgunblaðinu alla fimmtudaga