Morgunblaðið - 22.01.2013, Side 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013
Hundruð þúsunda manna söfnuðust saman við
þinghúsið í Washingtonborg í gær til að fylgjast
með því þegar Barack Obama sór embættiseið
forseta Bandaríkjanna og flutti ræðu í tilefni af
því að síðara kjörtímabil hans er hafið. Obama, 44.
forseti Bandaríkjanna, rétti hægri höndina upp
og lagði þá vinstri á biblíur, sem voru eitt sinn í
eigu Martins Luthers Kings og Abrahams Lin-
colns, þegar hann fór með forsetaeiðinn.
Samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna lýkur
kjörtímabili forsetans á hádegi 20. dag jan-
úarmánaðar. Ef hann ber upp á sunnudag sver
forsetinn fyrst eiðinn í Hvíta húsinu þann dag og
síðan aftur daginn eftir við þinghúsið.
John Roberts, forseti hæstaréttar Bandaríkj-
anna, stjórnaði athöfninni í gær og á meðal tuga
gesta sem fylgdust með henni voru Jimmy Carter
og Bill Clinton, tveir af forverum Obama í forseta-
embættinu. Í ræðunni lagði Obama áherslu á
mikilvægi þjóðareiningar og jafnrétti allra borg-
aranna. Eftir ræðuna tók hann þátt í skrúðgöngu
að Hvíta húsinu. Embættistökunni var einnig
fagnað með tónleikum og dansleikjum. Mikill ör-
yggisviðbúnaður var í Washington vegna
embættistökunnar. Brynvögnum var lagt á götum
í grennd við þinghúsið til að loka þeim og margir
lögreglumenn og þjóðvarðliðar voru á varðbergi.
AFP
Nýtt tímabil Barack Obama flytur ávarp sitt eftir að hafa svarið embættiseið forseta Bandaríkjanna við þinghúsið í Washingtonborg í gær.
1920 1930 1940 1950 1960 1970 1980 1990 2000 2010
Forsetar Bandaríkjanna frá árinu 1913
Heimild: Forsetaembættið í Bandaríkjunum
1913-1921 1933-1945 1945-1953
Woodrow
Wilson
Warren
Harding
Calvin
Coolidge
Herbert
Hoover
Franklin
Roosevelt
Harry
Truman
Dwight
Eisenhower
Richard
Nixon
Gerald
Ford
Jimmy
Carter
Ronald
Reagan
Bill
Clinton
Repúblikanar
Demókratar
George
W. Bush
1921-1923
1923-1929
1929-1933
1953-1961
1969-1974
1974-1977
1977-1981
1981-1989
George Bush
1989-1993
1993-
2001
Barack
Obama
kjörinn
árið 2008
2001-2009
endurkjör-
inn 2012
1961-1963
1963-1969
John F.
Kennedy
Lyndon
Johnson
Obama settur í embætti á ný
Réttarhöld hófust í Nýju-Delhí á Ind-
landi í gær yfir fimm karlmönnum
sem hafa verið ákærðir fyrir að
nauðga 23 ára konu með hrottalegum
hætti í strætisvagni 16. desember og
verða henni að
bana. Faðir kon-
unnar hvatti dóm-
arana til að flýta
meðferð málsins
og dæma mennina
til hengingar.
Saksóknarar
kröfðust þess að
mennirnir yrðu
dæmdir til dauða
fyrir manndráp,
nauðgun, mannrán og þjófnað.
Lögmaður eins af mönnunum
fimm sagði að skjólstæðingur sinn
væri yngri en átján ára og því ætti
mál hans heima fyrir unglingadóm-
stól. Lögreglan sagði hins vegar að
maðurinn væri tvítugur.
Saksóknarar segja að DNA-
rannsókn á blóðblettum á fötum og
öðrum lífsýnum, sem fundust við
rannsókn málsins, hafi tengt alla
mennina fimm við málið. Þeir telja að
þetta sé nóg til að fá mennina sak-
fellda. Að sögn indverskra fjölmiðla
er þó ekki víst að gögnin nægi til að
ná fram sakfellingu. DNA-rann-
sóknir hafi hingað til ekki þótt upp á
marga fiska á Indlandi og það sé m.a.
skýringin á því að sakfellt er í fáum
nauðgunarmálum í landinu.
Verjendur mannanna segja að þeir
ætli að sýna fram á að DNA-
rannsóknin sé ónákvæm og ómark-
tæk.
Krefst
dauðadóms
Nauðgunum mót-
mælt í Delhí.
Dóttir Júlíu
Tímósjenkó,
fyrrverandi for-
sætisráðherra
Úkraínu, sakaði
í gær yfirvöld
um að ætla að
drepa móður
hennar sem er í
fangelsi og á yf-
ir höfði sér lífstíðardóm sam-
kvæmt nýjum ákærum. Saksókn-
arar segja að Tímósjenkó, sem
afplánar sjö ára dóm fyrir að mis-
nota vald sitt, sé grunuð um aðild
að morði á þingmanni árið 1996.
Dóttir Tímósjenkó, Évgenía, sem
er 32 ára, segir að líf móður sinn-
ar sé í hættu. „Ég bið ekki einu
sinni um að þið fylgið lögum og
reglum … Ég bið ykkur aðeins um
eitt – ekki drepa móður mína,“
sagði hún.
ÚKRAÍNA
„Ekki drepa
móður mína“
Enski afinn Paul
Marshallsea var
ekkert að tví-
nóna við hlutina
þegar neyðar-
bjöllur vöruðu
við hákarli við
strönd eina í
Brisbane í Ástr-
alíu á dögunum,
þar sem hann var staddur.
Marshallsea óð umsvifalaust
þangað sem kvikindið svamlaði í
grynningum, greip um sporð þess
og reyndi að beina frá börnum og
fullorðnum sem höfðu verið þar að
leik. Hákarlinn glefsaði í Marshall-
sea og barðist um til að reyna að
losa sig. Litlu munaði að hann næði
að bíta í fót mannsins. Að lokum
tókst að beina hákarlinum frá
landi.
Ástralska strandgæslan kveðst
ekki mæla með því að menn ráðist á
hákarla með þessum hætti.
ÁSTRALÍA
Afinn tókst á við há-
karl og hafði betur
Tri ehf.
Suðurlandsbraut 32
104 Reykjavík www.tri.is
Verslunin er opin:
Alla virka daga kl. 09:00-18:00
Laugardaga kl. 10:00-16:00
Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu
og á allar afgreiðslustöðvar Flytjanda á
landsbyggðinni.
Ný sending af CUBE 29” hjólum komin í hús
Verð frá 139.990 kr. til 289.990 kr.