Morgunblaðið - 22.01.2013, Síða 27

Morgunblaðið - 22.01.2013, Síða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013 „Ég kem hér með smágjöf til þín. Þú tekur hana upp á jólunum,“ sagði Haf- þór vinur minn við mig nokkrum dögum fyrir jól. Síðan ræddum við að á næsta ári ættum við hálfrar aldar útskriftarafmæli frá Reykjaskóla í Hrútafirði. Vonuðumst við til þess að hóp- urinn hittist og bundum við fast- mælum að vera þar báðir. Í lok heimsóknar kvaddi hann mig mjög innilega svo hress og glað- ur að ekki kom mér í hug að þetta yrði okkar síðasti sam- fundur. Ég var fullur tilhlökk- unar að opna þennan óvænta pakka og skynjaði hvað þar biði. Á aðfangadagskvöld var í mín- um höndum kverið „Í góðum gír“, áritað af höfundi. Það yljaði að lesa það og aftur las ég það nokkrum dögum síðar þegar hann hafði kvatt þennan heim. Þar eru ljóð og minningabrot um foreldra hans og samferða- menn og sagt frá ýmsu sem á dagana hafði drifið. Hafþór var gleðimaður og góður hagyrðing- ur, sem naut þess að gleðja fólk með skemmtisögum og vísum. Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar við ungir námum í Reykjaskóla. Þar var Hafþór hrókur alls fagnaðar og öflugur í félagslífinu. Námsmaður var hann líka góður og erfitt að keppa við hann á því sviði. Síðar vorum við saman í starfi Lions- klúbbs Blönduóss þar sem hann var ávallt í fylkingarbrjósti með- an hann var þar félagi. Hann var sjaldan með í nokkru bara til að vera með, ávallt fremstur meðal jafningja og lét til sín taka. Hafþór vann fjölmörg ár í Trésmiðjunni Stíganda. Þar var hann hægri hönd Hilmars fram- kvæmdastjóra. Milli þeirra var náið samstarf og gott til þeirra að leita. Ég átti marga fundi með þeim félögum þegar þeir tóku að sér að endurbyggja Flóðvang, veiðihúsið við Vatns- dalsá. Án útboðs samdi veiði- félagið við fyrirtækið um þetta verk og þótti mörgum ég sem formaður félagsins tefla djarft að fá þessum vinum mínum verkið án útboðs. En svo vel tókst þeim til að húsið var af- hent mánuði fyrir skiladag og var þó búið að gera mun meira en upphaflega var lagt upp með. Kostnaður varð hins vegar ekki meiri í heild en upphaflega var áætlað fyrir minni verkþátt. Var þó allt vandað vel og þykir með glæsilegustu veiðihúsum lands- ins. Þarna stjórnaði Hilmar af festu og Hafþór iðinn við að ná hagkvæmum innkaupum á efni til verksins. Þeir félagar taka ekki fleiri verk að sér hér um slóðir, en það veit ég að Hilmar hefur tekið vel á móti vini sínum og saman geta þeir tekið til hendi, sé þess þörf þar sem þeir dvelja nú. Blessuð sé minning þeirra. Við fáum ekki fleiri snjallar vísur eða skemmtisögur frá Haf- þóri, en minning um góðan fé- laga lifir. Ég veit að ég tala fyrir munn okkar allra skólasystkin- anna frá Reykjaskóla að hans verður saknað á mótinu okkar í sumar og biðja þau fyrir sam- úðarkveðjur til fjölskyldunnar. Hafþór nefndi það á okkar síð- asta fundi að hann hefði verið of oft fjarverandi þá við hittumst, en ætlaði svo sannarlega að Hafþór Örn Sigurðsson ✝ Hafþór ÖrnSigurðsson fæddist á Hafurs- stöðum í Vindhæl- ishreppi 24. mars 1945. Hann lést 6. janúar 2013. Útför hans fór fram frá Blönduós- kirkju 19. janúar 2013. bæta úr því í sum- ar. Örugglega verð- ur hann með okkur í anda. Eftirlifandi konu, börnum og barna- börnum sendi ég innilegar samúðar- kveðjur frá okkur hjónum. Megi minning um góðan dreng ylja um ókomin ár. Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum. Sunnudagurinn 6. janúar, síð- asti dagur jóla, rann upp líkt og aðrir dagar. Yfir þennan dag, sem kenndur er við sólina, lagð- ist skyndilega dimmur skuggi þegar okkur hjónum barst sú fregn að Hafþór Örn Sigurðsson góðvinur okkar hefði látist eftir stutt en erfið veikindi á Borg- arspítalanum í Reykjavík, aðeins 67 ára að aldri. Stórt skarð er höggvið í vinahópinn og fallið er í valinn einstakt ljúfmenni sem bar með sér gáskann og gleðina og gerði heiminn betri. Leiðarlok í lífi sérhvers manns eru öll eins en lífsgangan er mislöng og margvísleg. Í dag kveðjum við kæran vin sem gerði líf okkar ríkara og fyllti það gleði. Það er erfitt að sætta sig við það að maður á besta aldri sé kallaður burt í þann mund sem hann hefur skilað ævistarfinu og framundan virð- ast kærleiks- og gleðiár. Ég kynntist þessum góða dreng fljótlega eftir að ég flutt- ist á Blönduós fyrir um 35 árum og þá í gegnum Ragnheiði (Löggu) konu hans sem vann í versluninni Vísi sem tengdafor- eldrar mínir ráku á sínum tíma. Seinna lágu leiðir okkar saman í gegnum starf í Lionsklúbbi Blönduóss þar sem Hafþór var grunnstoðin í jákvæðu og upp- byggjandi félagsstarfi. Það hljómar vafalítið yfirborðskennt en það er svo hreint í mínum huga að þar sem Hafþór lagði eitthvað til mála var það mann- bætandi og til þess fallið að létta á allri spennu. Fólk með þessa náðargáfu er til en það er pláss fyrir fleiri slíka í þessum tor- ræða heimi. Hafþór er og verður í mínum huga ætíð og ævinlega góður drengur með dásamlegt skop- skyn. Ef við ættum fleiri slíka væru vandamálin færri og lausn- irnar auðveldari. Hafþór var hagorður og átti auðvelt með að tjá sig í bundnu máli. Nú fyrir jólin gaf hann út minningabrot úr lífi sínu og kemur víða við. Ég las þessi minningabrot eftir að hann veiktist og minningarnar hrönn- uðust upp og seildust í gleðina í sálu minni. Mig langar að enda þessi fátæklegu kveðjuorð um góðan dreng með erindi úr ljóði hans til móður sinnar. Ennþá fyrir eyrum hér ómar fuglasöngur. Hreyfa streng í hjarta mér haust- og vorsins göngur. Ef til vill mín innsta þrá er að kvöldi heim að ná. Enginn veit hvar næst er næturstaður. Við hjónin kveðjum með sökn- uði góðan vin sem skilur eftir sig afar góðar minningar. Blessuð sé minning Hafþórs Arnar Sig- urðssonar og við biðjum algóðan Guð að styðja og styrkja ástvini sem og aðra sem syrgja. Jón Sigurðsson. Okkur langar að minnast í ör- fáum orðum Hafþórs Arnar Sig- urðssonar. Hafþór var náinn vin- ur og samstarfsmaður föður okkar í yfir 25 ár. Við kynnt- umst honum vel og hjartahlýrri mann er erfitt að finna. Alltaf var hann brosandi og léttur í lund, tilbúinn að leggja okkur lið og aðstoða eins og hann best gat. Hafþór var gamansamur og gerði bæði grín að sjálfum sér og öðrum, enda blundaði í hon- um skemmtilegt skáld. Bílar voru alltaf sérstakt áhugamál hans og er óhætt að segja að Hafþór hafi átt þá nokkra og alltaf voru þeir tilefni skemmti- legra umræðna. Við erum þakk- lát fyrir þær stundir sem við átt- um með honum og höfðum svo gjarnan viljað að þær hefðu orð- ið fleiri. Elsku Lagga, Þorsteinn, Auð- ur og fjölskyldur, guð styrki ykkur á þessum erfiðu tímum. Minningin um góðan dreng mun lifa um aldur og ævi. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Finnbogi, Hilmar Þór og Valgerður. Nóttin er nýliðin og Stíganda- menn í óðaönn að undirbúa verkefni dagsins. Sitt lítið af hverju vantar af lagernum, litlu, þröngu og yfirhlöðnu rými sem virðist ókunnugum skipulags- laust að mestu. Sá sem afgreiðir gengur þrátt fyrir þetta að hverjum einasta hlut vísum, vinnur verk sitt snöfurmannlega og gætir þess vandlega að allt sé hárrétt til bókar fært. Með ein- stöku samblandi af hlýju og gleði en um leið ódulinni und- irliggjandi festu stjórnar hann því sem fram fer, leiðbeinir og tekur við allra handa óskum um pantanir og fleira. Andrúmsloft- ið er létt, góðlátlegt spaug flýg- ur manna á milli og kannski er rifjuð upp vísan frá í gær. Þegar hægist um er bankað á lúguna milli lagers og verkstæð- is sem eingöngu er hægt að opna lagermegin. Grallarinn á lagernum kallar „kom inn“ hátt og snjallt. Hann kímir, vitandi að sá er bankar hefur engin ráð með að opna sjálfur. Aftur er bankað, nú mun fastar og grall- arinn lýkur upp lúgunni og fylgir bráðsmitandi skellihlátri sínum eftir með gamanyrðum. Að loknu örstuttu spjalli kemur svo hlýlega fram borin spurning að venju: „Jæja vinur minn, hvað get ég nú gert fyrir þig?“ Í fullan aldarþriðjung stóð öðlingsvinur okkar í Stíganda, Hafþór Örn Sigurðsson þessa vakt. Ótal verkefni önnur en að framan eru nefnd voru einnig í samviskusömum, nákvæmum og tryggum höndum hans. Vart er ofmælt að framlag hans til fyr- irtækisins sé ómetanlegt hvað unnin störf og fádæma tryggð varðar. Ekki síður er svo vegna starfsandans sem skapaðist kringum þá hlýju, jákvæðni og gleði sem nærvera hans skapaði löngum á vinnustaðnum. Þá eru ótalin umfangsmikil og góð sam- skipti við birgja og viðskiptavini sem eiga án nokkurs vafa drjúg- an þátt í orðspori fyrirtækisins og því mikla trausti sem það hefur notið gegnum árin. Efst við leiðarlok stendur þó hjartans þakklæti fyrir dýrmæt- an vinskap og lærdómsrík sam- skipti sem auðguðu líf okkar sem nutum. Stöku heimsóknir og kaffitímar hafa létt anda og geð undangengna mánuði eftir starfslokin snemma á síðasta ári. Oftar en ekki var tækifærið not- að, leitað í gömlu farsælu smiðj- una og holl ráð þegin um hvað- eina sem þörf var á. Nú eigum við endurminningar einar sem huggun harmi gegn. Víst er að nafnið okkar kæra vinar Haf- þórs, verður órofa hluti af sam- ræðum og sögum á kaffistofu Stíganda lengi enn. Því mun jafnan fylgja ósvikin gleði og góðar hugsanir. Fjölskyldu og vinum eru færðar alúðarkveðjur með sam- úð og hluttekningu. Ritað fyrir hönd stjórnar og starfsmanna Stíganda. Farðu vel, vinur minn! Einar Kolbeinsson. Það er ekki einleikið með þetta líf. Á vorum dögum munu ævilíkur þessarar þjóðar vera komnar um og yfir áttrætt. Þá þekkir maður fjöldann allan af mun eldra fólki sem er flest hvert hraust og skrafhreifið. Því er það að manni finnst ekki rétt gefið, þegar maður fylgir fyrr- verandi tengdamóður sinni til grafar ríflega fimmtugri, dóttur hennar og fyrrverandi eiginkonu tæplega 45 ára og nú verður Hafþór fornvinur minn borinn til grafar rétt kominn á ellilífeyri, sem amma Randý náði sex daga fram yfir þegar hún andaðist og afi Jón nýsjötugur. Öll eru þau okkur sem þekktum þau harm- dauði ærinn langt um aldur fram að manni finnst. Hafþór og ég kynntumst þar sem Lagga mín var oft að passa mig þegar hann var að gera hos- ur sínar grænar fyrir þeirri lag- legu snót. Það var mér til mikils láns hvað Hafþór var ávallt barngóður og þolinmóður, því annars hefði hann að líkindum hraðað sér á brott frá mér og þar með Löggu. Það hefði svo sem engan undrað, því ég var ekki auðveldasta barnið að passa og hafði lag á því að vaka lengi frameftir og trufla turtildúfurn- ar þegar þær vildu fá smá frið frá ólátabelgjum. Gæska hans var auðvitað verðlaunuð með því að vinna ástir hennar Löggu. Sem gefur að skilja þá sótti ég í að vera hjá þeim heiðurs- hjónum, hvort heldur sem var í gistingu eða heimsókn allt þar til ég fór að passa fyrir þau börn þeirra á meðan þau bjuggu enn „í bænum“. Eftir að þau fluttu alfarin norður á Blönduós var ekki heimsótt eins oft, en þá iðu- lega í 2-3 daga í senn. Það skorti ekkert á gestrisni þeirra nema síður væri og var slegið upp veislu með söng og gleði í hvert eitt sinn og skipti engu þó að fjölskylda mín stækkaði stöðugt. Það hlökkuðu allir til að koma á heimili þeirra Hafþórs og Löggu, enda hvort öðru skemmtilegra og var ávallt mik- ið hlegið og glatt á Hjalla al- mennt. Hafþór átti yndislega foreldra og ekki erfitt að sjá að eplið féll ekki langt frá eikinni. Ég var svo lánsamur að dvelja að Haf- ursstöðum, bæ þeirra Sigurðar og Auðbjargar, stöku sinnum sem barn og naut samvistanna við þau sem von var. Bifvélavirkinn Hafþór var þekktur fyrir mikil og ör bíla- viðskipti. Hann lagði ávallt mikla vinnu í að lagfæra og snurfusa bílana sína áður en hann seldi þá frá sér. Enginn var svikinn af viðskiptunum og hef ég eigin reynslu af því. Við þessi skelfilegu tímamót sem nú eru orðin eiga mjög margir um sárt að binda. Þannig er því stórt skarð fyrir skildi hjá fjölskyldu Hafþórs Arnar. Hann er sofnaður svefninum langa, en óþarft er að örvænta um of, því Drottinn segir um efsta dag í fimmta kafla Guðspjalls Jóhann- esar: „… þegar allir þeir, sem í gröfunum eru, munu heyra raust Hans og ganga fram, þeir, sem gjört hafa hið góða, munu rísa upp til lífsins …“ Í trausti þessa fyrirheits Frelsarans geta eftirlifandi ást- vinir Hafþórs Arnar vonast til að hitta hann á ný í himneskum heimkynnum í fyllingu tímans. Þangað til verða þeir sem eftir lifa að minnast góðs manns og þakka allar góðu stundirnar og þreyja þorrann með Guðs styrk. Megi Hafþór Örn hvíla í Guðs blessaða friði. Þorsteinn Halldórsson. ✝ Sigríður ÁstaGuðmunds- dóttir fæddist í Reykjavík 21. ágúst 1937. Hún lést á heimili sínu 30. des- ember 2012. Foreldrar henn- ar voru Eyfríður Guðjónsdóttir, f. 10.4. 1908, d. 20.4. 2004, og Guð- mundur Guð- jónsson, f. 7.5. 1879, d. 9.6. 1944. Bræður: 1) Guðni Ragnar Þór- arinsson, f. 26.3. 1934, d. 12.10. 1990, kvæntur Margréti Þóru Vilbergsdóttur, f. 28.8. 1938. Börn þeirra Kristinn, Guð- mundur, Vilberg og Eyþór. 2) Oliver Guðmundsson, f. 10.1. 1908, d. 29.8. 1982. Hann giftist fyrst Lovísu Edvardsdóttur og áttu þau börnin Edvard og Sigríði, svo giftist hann Láru Einarsdóttur og áttu þau börnin Guðbjörgu og Sig- urbirnu. Sambýlismaður Sigríðar var Jó- hann Bragi Frið- bjarnarson, f. 30.11. 1935, d. 12.6. 1990. Hann átti tvö börn, Önnu og Agnar. Sigríður vann á þremur stöð- um á ævinni; byrjaði í Seres og fékk svo vinnu á Landspít- alanum við símsvörun í örfá ár og endaði á Hagstofu Íslands og vann þar lengst. Sigríður var jarðsungin frá kirkju óháða safnaðarins 16. janúar. Þegar ég kveð Siggu mág- konu mína eru minningarnar ómetanlegar. Sigga var alin upp á Bræðraborgarstíg númer 3 ásamt Guðna bróður sínum, alltaf var stutt í brosið hjá þeim. Þegar við Guðni fórum að búa fluttu Sigga og tengda- mamma inn til okkar og voru hjá okkur í rúm fimm ár. Þær fluttu svo aftur á Bræðraborg- arstíg númer 4. Sigga var lagin við að láta strákana okkar gegna sér og ef einhver spurði þá af hverju hún væri svona lít- il þá lumbruðu þeir á þeim því að það var ekkert óeðlilegt við hana að þeirra mati, Sigga var bara Sigga. Við fórum margar ferðirnar austur í hreppa í Nefsholt og líka að Þingskálum og það var ekki leiðinlegt, fórum einnig til Siglufjarðar og einu sinni hringinn í kringum landið. Í þessari hringferð okkar var ég á gömlum Rússajeppa og for- eldrar mínir á eftir mér og var mikið hlegið og skemmt sér við alls konar uppákomur eins og þegar við fórum upp að Svarta- fossi í Skaftafelli. Það þurfti nefnilega að setja trefil um augun á Eyju mömmu Siggu til að koma henni yfir eina brúna því að það var smálækur undir og hún vildi ekki yfir. Sigga hló svo mikið að þessu að hún ætl- aði ekki að komast úr spor- unum fyrir hlátri. Seinna fór ég svo með tengdamömmu og Siggu til Danmerkur og þar leigði ég bíl og hjólastól og ókum við um alla borgina okkur til mikillar ánægju. Þær voru yfirleitt öll jól hjá mér og líka alltaf ef það stóð eitthvað til, þá voru þær sóttar. Nema þessi jólin, þá treysti hún sér ekki til að koma og þótti mér það leitt. Strákunum mínum þótti mjög vænt um Siggu og voru þeir boðnir og búnir að hjálpa henni þegar hún hóaði, svo var reyndar um okkur öll. Ef það þurfti að laga eitthvað þá talaði hún við Villa og bað hann að redda því. Ef það þurfti að sendast fyrir hana þá var það annaðhvort ég eða Gummi sem fórum af stað. Við vorum hvort eð er alltaf á ferðinni. Nú kveð ég þig kæra Sigga mágkona. Guð geymi þig. Þóra og fjölskylda. Mér er sérlega ljúft að minn- ast æskuvinkonu minnar Sig- ríðar Ástu Guðmundsdóttur. Sigga var orðin vinur foreldra minna þegar ég man fyrst eftir mér á Vesturgötu 46 en hún var þá á unglingsaldri og kær- kominn daglegur gestur á heimilinu. Sigga fylgdi okkur systkinunum fimm, hverju af öðru, í gegnum bernskuna fram á fullorðinsár og var virkur þátttakandi í lífi okkar. Sigga bjó með Eyju móður sinni og Guðna bróður sínum á Bræðraborgarstíg 4. Þær mæðgur voru einstaklega sam- rýndar og miklir mannvinir. Þær voru ræðnar, ráðagóðar og hláturmildar. Heimili þeirra stóð vinum og vandamönnum opið hvenær sem var sólar- hringsins. Ómur af sérstökum hlátri Eyju barst iðulega inn um opinn glugga á Vesturgötu 46 og þá heyrðist gjarnan í skákmönnum að tafli: „Hátt hlær Eyfríður Íslandssól.“ Sigga var dvergvaxin og varð fyrir einelti sökum þess. Það varð henni til bjargar að hún var æðrulaus, stórhuga, skap- stór, glaðlynd, skýr, góðhjörtuð og þakklát. Í huga okkar vin- anna var Sigga „rokkstjarna“ og við vorum sjálfskipaðir „líf- verðir“ hennar. Þegar vinahóp- urinn fór t.d. í bíó var mynd- aður verndarhringur um hana og hver sá sem vogaði sér ná- lægt Siggu utan hópsins átti ekki von á góðu. Sigga var áhugaljósmyndari og náði að festa á filmu mörg ógleymanleg atvik í lífi og leik okkar vinanna. Til dæmis tók hún myndir af „brúðkaupi“ Ingu frænku og Emils á móti, sem bæði voru fjögurra ára en „séra“ Gunnar Felixson vinur okkar sá um athöfnina. Sigga hvatti mig óspart til iðkunar fimleika og tók ófáar myndir af mér með þjáningarsvip við þá iðju. Magnús Víglundsson iðn- rekandi lét reisa stórhýsi á Bræðraborgarstíg 7 árið 1952 og rak þar spunaverksmiðju, Sameinuðu verksmiðjuaf- greiðsluna og Verksmiðjuna Fram. Að loknum vinnudegi verksmiðjufólks stóðu í porti hússins stórar körfur fullar af nýspunnum efnisbútum í öllum heimsins litum. Þeir urðu okk- ur krökkunum uppspretta fjölda leikja en úr bútunum bjuggum við til búninga, leik- tjöld og hvers kyns leikmuni. Sigga náði að mynda og varð- veita þannig eftirminnilegustu sköpunarverkin, sem urðu til í porti spunaverksmiðjunnar. Sigga vissi allt um frægu bandarísku kvikmyndaleikar- ana úr söng- og dansbíómynd- unum. Við sáum flestar þeirra mörgum sinnum og kunnum ut- anað. Ég þekkti engan sem átti annað eins safn af leikara- myndum og Sigga. Hún lagði ríka áherslu á að við vinirnir vissum eitthvað um leikara og bíómyndir. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst Siggu, hennar góða fólki og ekki síst öllum sameig- inlegum vinum. Samskiptin við hana auðguðu andann og veittu innblástur. Ég sendi fjölskyldu Siggu mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Ágústa Guðmundsdóttir. Sigríður Ásta Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.